Nöldur og ljótar hugsanir..!

27. des. 2008

Litla vanrækta krílið mitt…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:20

Ég var hreinlega næstum því búin að gleyma því að ég ætti lítið illilega vanrækt blogghorn í útgeimum internetsins.

En já, annáll ~ hvernig væri það..!

Janúar – ég eignaðist þurrkara. Hvernig ég fór að áður er ofar mínum skilningi. Fékk nýjan bíl nr. 8 held ég… og svo skilur enginn af hverju er kreppa á skerinu. Ég átti afmæli og ló end behóld..! Ég hélt upp á það.

Febrúar – hmmm…. áfall yfir visa reikningum býst ég við. Man því miður ekkert eftir febrúar á því herrans ári 2008. Ábyggilega reynt nokkrum sinnum samt við skítabaðkarið á Skjólbrautinni sællar minningar.

Mars – Páskar – Aldrei fór ég suður hátíðin = fyllt lambalæri á la mamma, stuð, stemmari og þynnka.

Apríl – Árshátíð í vinnunni – ég lasin en tók hana með trompi á bandarískum verkjatöflum. Ég mætti í kjól. Galakjól.

Maí – Ég komst loksins í Þórsmörk. Án þess að blotna. Það er til videó. Á youtube. Jarðskjálftar og uppsagnir.

Júní – Einn sólríkasti mánuður sem Ísland hefur upplifað. Ég skilaði rúmlega 80+ yfirvinnutímum þann mánuðinn. Þannig að lítið fór fyrir freknusöfnun. Eignaðist nýjan nágranna, kynni mín við hann mun hafa áhrif á mig fram á grafarbakkann.
Ég fór á ættarmót fyrir norðan í lok mánaðarins. Það snjóaði á Akureyris. Engin sól þar, bara í hjartanu. Styrkti grun minn um að Akureyringar eru veðurljúgandi bullarar um allan helming.

Júlí – Fór í Húnaver í lúxus útilegu. Skrapp til Vestmannaeyja með ma, pa og lilla bró. Hitti Matta minn sem ég er búin að tala við í síma í að verða sex ár. Fékk óvænt til leigu íbúð í Hafnarfirði á besta stað sem þýddi kassar og flutningar á mettíma á heitasta degi ársins. Ég eignaðist uppþvottavél.

Ágúst – ég fór í sumarfrí í sæluna. Keypti flugmiða til New York.

September – Mætti til vinnu og búin að fá skrifstofu undir rassgatið á mér. Nýtt fólk. Meiri uppsagnir, vanlíðan og skítur.

Október – F5 takkinn á tölvunni minni bíður þessa mánaðar aldrei bætur. Hamaðist eins og asni á þessum takka til að sjá hvaða næsta katastrófa var að hellast yfir. Sá að ég bý í bananalýðveldi. Enn meiri uppsagnir, vanlíðan og skítur.

Nóvember – F5 takkinn fékk pásu. Hætt að kíkja á gengisskráningar, grenjaði pínu yfir reikningnum frá Lýsingu. Yndislegur klovn/klám skilmysingur á hárgreiðslustofunni. Hætti að horfa á fréttirnar.

Desember – New York! Æðis æðis æðis! Mig langaði bara ekkert aftur heim. Jólafrí með tilbehör. Sokkaheimtur voru góðar upp úr jólapökkunum þetta árið. Keypti flugmiða til London í janúar. Kreppa hvað. Enn ekki búin að taka fréttatímann í sátt.

Knúið af WordPress.com