Nöldur og ljótar hugsanir..!

08. jún. 2008

júre bjútífúl its trú

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:40

Ég var að fá nýjan nágranna hérna fyrir ofan mig.
Nafnið á bjöllunni er soldið latínó og hann er sjálfur suðrænn og seiðandi.
Soldið svona fótboltadúddalegur með múskla og gel í hárinu og notar einum of skratti mikið af ilmvatni.
Þegar ég sá kauða fyrst á föstudaginn heyrðist bara “hobba hobba” í hausnum á mér. Hrifiningin minnkaði aðeins við að finna lyktina af kauða. Er eiginlega stolt að hafa haldið meðvitund. Ekki gott ef að það hefði steinliðið undirritaða vegna ilmvatnstynku, hann gæti haldið að ég hefði fallið í yfirlið sökum hrifningar.
En ef ilmvatnið hefði ekki farið með það sem eftir var þá er það búið eftir daginn í dag.
Ég held að greyið sé í ástarsorg því að lagið You’re Beautiful með James Blunt er búið að spilast ógurlega oft núna í dag, og svo syngur hann með og snöktir hástöfum.

Hér er linkur á ógurlega lagið

Geðheilsu minnar vegna má hann helst ekki vera að gera mikið meira af þessu, því að hljóðin frá honum hafa svipuð áfhrif eins og þegar ungbarn fer að gráta, nema hvað mig langar ekki að hugga, heldur að skreppa til hennar mömmu minnar og ná í haglarann. Fjárbyssan hans pabba myndi ekki ná í gegnum gelið.

úfff…

Knúið af WordPress.com