… Toyota Prius.
Jamm, ég get sko alveg híað á Toyota Prius sem rennur ó svo hljótt um götur landsins.
Það er nefnilega að koma í ljós að Prius’inn hefur bara ekkert með að monta sig með það að vera vistvænastur í geimi.
Neibb.
Feitasti Range Rover í bensínsvelgsútgáfu ku vera umhverfisvænni þegar til kemur heldur en tvinnmonthaninn. Það þarf víst að farga þessum hybrid bílum eins og öðrum. Svo er víst nastý framleiðslan á hybrid mótorum.
Dísel bimmi eyddi líka minni en þessi bíll í sparaksturskeppni sem farin var London – Genúa.
Bílstjórinn í Bimmanum steig meira að segja út ferskur og fínn þar sem hann meira að segja brúkaði AC’ið og útvarpið á leiðinni, en bílstjóri tréfaðmarans sté út argur og sveittur og illa lyktandi.
Ég er að setja þessi orð niður í tilefni þess að eyðslumælirinn sýnir alveg ó svo fallega tölu, eða 6,4 pr 100 km. Þess má geta að sparakstur eða jarðarfararakstur er ekki stundaður hér á bæ.
Bílkvikindið afrekaði það í Ástralíu af öllum stöðum að vera með 3,2 L pr. 100 km.
Toyota Prius var með 5,2
Nanananabúbú!
Djís samt hvað ég vona að greys ökumaðurinn í Ástralíu hafi fengið að nota AC’ið.
En er það ekki Priusinn sem getur parallel parkað sjálfur í stæði?
Samt, myndi aldrei kaupa hann fyrir það eitt að hann er svo assgoti ljótur.
Ummæli af Lilja — 22. maí. 2008 @ 03:53 |
Held ekki, er samt ekki viss.
En hann er með svona óþolandi bakkskynjara.
Var á bíl um daginn með svona bakkskynjara og svona stuff of nálægt sér skynjara. Óþolandi helvíti. Var eiginlega skapi næst að bakka á eitthvað á fullri ferð bara til að þagga niður í pípinu.
Ummæli af Ragnheiður — 22. maí. 2008 @ 18:52 |
Ég er með bakkskynjara og finnst það æði. Man ekki hvenær ég leit síðast í baksýnisspegilinn!
En ég man að það var til svona “self-parking” bíll í umboðinu þegar við keyptum Avensisinn en ég man ekki hvað hann heitir.
Ummæli af Lilja — 29. maí. 2008 @ 00:36 |