Nöldur og ljótar hugsanir..!

17. maí. 2008

Þórsmörk here I come..!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 00:06

Ræs snemma í fyrramálið, ég er að fara í Þórsmörk á morgun með fullt af fólki.
Taka 2 í að komast þangað, ég er búin að biðja nokkra um að biðja um gott veður og enga rigningu og lítið í ánum því að síðast þegar ég reyndi að fara þangað, var ég næstum því bara nett dáin.

En þið þjófar sem hugsið ykkur nú gott til glóðarinnar þar sem ég er að fara úr bænum, hann lilli bró verður heima og ætlar eftir því sem mér heyrist að nota tækifærið og spássera hér um allt á sprellanum. >.<

Góðar stundir.

11. maí. 2008

Uppskrift dagsins.

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 19:18

Franskar að hætti lilla bró.

Kveikja á bakaraofninum.
Skoða b2.is
Muna eftir ofninum.
Setja franskar í ofn.
Brenna sig smá.
Ofn lokaður.
Bíða þar til reykskynjarinn fer í gang.
Taka batterí úr reykskynjara.
Taka franskar út og tína verstu frá.
Borið fram með kokteilsósu.

Ef fólk vill vera grand á því, lofta út.

05. maí. 2008

Hí á …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 19:39

… Toyota Prius.

Jamm, ég get sko alveg híað á Toyota Prius sem rennur ó svo hljótt um götur landsins.
Það er nefnilega að koma í ljós að Prius’inn hefur bara ekkert með að monta sig með það að vera vistvænastur í geimi.
Neibb.
Feitasti Range Rover í bensínsvelgsútgáfu ku vera umhverfisvænni þegar til kemur heldur en tvinnmonthaninn. Það þarf víst að farga þessum hybrid bílum eins og öðrum. Svo er víst nastý framleiðslan á hybrid mótorum.

Dísel bimmi eyddi líka minni en þessi bíll í sparaksturskeppni sem farin var London – Genúa.
Bílstjórinn í Bimmanum steig meira að segja út ferskur og fínn þar sem hann meira að segja brúkaði AC’ið og útvarpið á leiðinni, en bílstjóri tréfaðmarans sté út argur og sveittur og illa lyktandi.

Ég er að setja þessi orð niður í tilefni þess að eyðslumælirinn sýnir alveg ó svo fallega tölu, eða 6,4 pr 100 km. Þess má geta að sparakstur eða jarðarfararakstur er ekki stundaður hér á bæ.
Bílkvikindið afrekaði það í Ástralíu af öllum stöðum að vera með 3,2 L pr. 100 km.
Toyota Prius var með 5,2

Nanananabúbú!

Djís samt hvað ég vona að greys ökumaðurinn í Ástralíu hafi fengið að nota AC’ið.

Knúið af WordPress.com