eftir rúma 25 tíma verð ég búin með þetta blessaða nám og ég get farið að vinna í þessari ljótu sem ég er búin að safna síðustu daga, vonandi hverfur munnangrið sem er búið að hrjá mig og já… shit hvað ég verð fegin.
Íbúðin er í rúst, varla hrein flík til á þessu heimili.
Þá þarf ég aftur að spýta í lófana því ekki er hægt að hafa heimilið í þessu horfi yfir jólin. ó nei.
Viðurkenndi nefnilega fyrir mér fyrir nokkrum vikum að þetta sem ég er að læra er bara ekkert svo skemmtilegt. Svaka sneddí að fatta það svona á lokametrunum.
Gæti líka spilað inn í þetta stanslausa samviskubit sem er búið að hrjá mig síðan í lok ágúst.
Já og eins og Gnesan mín er búin að vera segja síðustu vikur…
Gemmér jól!