Nöldur og ljótar hugsanir..!

18. nóv. 2007

Lært af reynslunni…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:24

Ég hef lært af reynslunni…
* að það er ekki sniðugt að gúffa í sig heilum sykurlausum/xylito risa Ópal eða Tópas. Er reyndar pottþétt leið til að verða boðið óvænt í bíó.
* að þrífa klósettið með lokaðan munninn.
* að tala ekki illa um ókunnuga, viðkomandi gæti verið móðir þess sem talað var við.
* að ef maður er ekki viss hvort að prump sé bara prump, er betra að gera það á klósettinu.
* að það er ekki sniðugt að bora í nefið á rauðu ljósi. Það er alltaf einhver sem sér þetta.
* að ef það er í ofninum, skal brúka ofnhanska. Alltaf.
* að ef ljósaperan var að springa, bíða í smá stund með að skipta, eða ofnhanska.
* að ef ég fer út úr húsi, ómáluð, krumpuð og í náttbuxunum. Hitti ég einhvern sætan.
* að ef ég fer í pæjuskóm í vinnuna, enda ég hlaupandi um allt hús og illt í fótunum.
* að ef ég fer krumpuð og illa tilhöfð í vinnuna, endar það með óvæntum fundi, eða fullt af kúnnum feis tú feis.
* að það er ekki sniðugt að éta hálfan poka af sveskjum á stuttum tíma.

14. nóv. 2007

ræstikrem og stuff

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:20

Kom maður í vinnuna í dag sem selur alls konar hreinsiefni og olíur ofl.
Hann talaði svo hátt um ágæti varanna hjá sér að ég var farin að sjá fyrir mér sjálfhreinsandi, sjálfskúrandi og eitthvað sem vaskar upp og brýtur saman þvottinn efni. Ég fer út út skrifstofunni og spyr með andakt hvort að hann eigi nú ekki eitthvað til að gera baðkarið mitt hreint fyrst að bílarnir gangi bara hér út eftir að hafa þefað af tappanum, hreinni en þeir fóru af færibandinu.
Ég sé búin að reyna margt, hann hlyti að eiga eitthvað fyrir mig.
Hann spyr hvað ég hafi notað, og ég byrja að þylja upp. Lýsi einnig brotnum nöglum og svita og blóði. Bíð svo spennt eftir niðurstöðunni.
Kall skellir bæklingunum sínum í skjalatöskuna og rýkur á dyr, heyri þegar hurðin er að skellast að hann ætli að hugsa málið fyrir mig.

Held að ég kveiki í helvítis karinu.
Það verður hvort eð er ekkert verra.

13. nóv. 2007

Hveravellir

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 00:30

Ég fór á Hveravelli núna síðustu helgi með fullt af fallegu fólki.
Á eftir að lifa lengi á þessari ferð.
Hef alveg farið nokkrar jeppaferðir, en aldrei í snjó. Puð og læti á leiðinni en veðrið var frábært eins og sjá má á þessari mynd hér.
Sérstaklega mikið puð þegar það voru nákvæmlega 2,6 km. eftir að skálanum. Horfði stíft á kílómetratöluna á GPS tækinu þarna undir það síðasta enda alveg gjöööörsamlega í spreng. Aldrei séð jafn fallegt klósett og þarna á Hveravöllum á laugardagskvöldinu.
Heimferðin var ekkert síðri.

Myndirnar sem ég linka á eru stolnar af heimasíðu Landroverklúbbsins islandrover.is og myndasmiðurinn heitir Kiddi og er snillingur.

07. nóv. 2007

Jóla hvað ..?

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:14

Skröggur er mættur á svæðið, stingur upp sínum ljóta haus í hvert skipti sem undirrituð sér Kringluna líta út eins og kelling sem kann sig ekki og mætir í heimapartý í galakjól, pinnahælum og með ref um hálsinn.
Þess vegna plantaði ég áminningu hérna til hliðar.

Knúið af WordPress.com