Nöldur og ljótar hugsanir..!

31. okt. 2007

Kisukrús

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:51


Kannast aðeins við þetta….

Hvernig stendur á því …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:43

… að í hvert skipti sem ég sé nýja stjórnarformanninn í vinnunni, þá er ég að;
reykja
drekka kaffi við kaffivélina og slúðra
reykja
lemja ljósritunarvélina
reykja
tala við mömmu í símann
reykja
láta eins og fífl í símanum
reykja
já og reykja… og jömundur minn einasti… einu sinni var ég að bora í nefið.

28. okt. 2007

Símavesen.is

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:59

Fólkið í kringum mig er löngu hætt að furða sig á mínum símaraunum… en þessu hef ég aldrei lent í áður.

Titrarinn í símanum hætti að virka fyrir einhverju síðan, ég spáði ekkkert í því svosem, hélt að ég hefði einfaldlega slökkt á þeim fítusi. Svo þegar ég ætlaði að opna hann til að ná kortinu úr, var það bara ekkert svo auðvelt. Hélt fyrst að ég væri bara orðin eymingi og rembdist bara svolítið, endaði svo á því að ná mér í hníf og svo þurfti átök til. Eyðilagði auðvitað kvikindið endanlega hugsaði ég.

Þetta var það sem blasti við mér þegar ég opnaði símann, eða þegar ég var búin að rífa bakhliðina frá batteríinu. Hann er allur bráðin að innan. Þess vegna var svo erfitt að ná honun í sundur.

simi

næsti springur pottþétt..!

23. okt. 2007

Spliff, donk og gengja

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:51

Fór í óvissuferð með vinnunni á laugardaginn.
Það er samt eiginlega ekki hægt að kalla þetta óvissuferð, því okkur var skipt í mörg lið, afhent gögn og bíllyklar og svo út.
Meira svona eins og Amazing Race sem var á stöð 2 á sínum tíma.
Meðal verkefna var að skrifa niður númerin á gulum bílum, því fleiri því fleiri stig.
Þess má geta að ég er með mar eftir bílbeltið eftir eltingarleik við gulan bíl og ég er enn á þriðjudegi að æsa mig í traffíkinni yfir gulum bílum.

gulur b�ll

Finna mismunandi ílát undir Coca Cola.

Fá dót frá samkeppnisaðilum og nafnspjöld t.d.

gosi.jpg

Hér er Ásgeir með Zoolander svip og Mein Gott hvað nefið á mér er stórt!

zoolander.jpg

Fyrst ég er að þessu, hér er enn meiri Zoolander.

Fá eiginhandaráritun frá frægri persónu.
Fengum eiginhandaráritum frá fyrrum forseta vor. Skömm að segja frá því, en ég fór að flissa eins og smástelpa þegar hún sagðist vera til í þetta.

Taka mynd af elsta BMW’inum.
Mínum hóp tókst það að vísu ekki, en ég læt myndina fljóta með. Minnir að bíllinn sé frá 1973
bmw

Mynda einn meðlim liðsins með gæludýr á öxlinni.
Við fundum hund. En það voru nokkur lið sem fóru í hesthúsin hér í kring. Mjög orðheppin sú sem spurði einn sem var að teyma hrossið sitt hvort að hún mætti leggjast undir hann!

Mynd af nýju bílnúmeri sem myndar eitthvað sniðugt.
gay17.jpg
GAY17

hot69.jpg
HOT69

hyr16.jpg
HYR16

Fundum því miður ekki þessa, en við fundum OSL00 sem er samt kúl.

Taka mynd af ljótum bíl.

fiat.jpg

Oj

Finna langan trefil, stærstu blöðruna, skiptimiða úr strætó, skafmiða ofl ofl.

Pósa með styttum. Besta myndin hlaut 15 stig.
Þess má geta að einn gulur bíll var 5 stig.
BogJ

Ég ætla að taka það fram að þeir eru ódrukknir. (vonandi finna þeir aldrei þessa síðu mína)

Fara í Kolaportið og dressa upp einn meðlim liðsins fyrir 1500 kr.

Því miður gleymdist myndavélin þegar við fórum í Kolaportið, en boy ó boy hvað ég hló mikið.
Trausti var sko mikið meira en til í að láta dressa sig upp, meira segja fór hann í háa hæla.
Meig svo næstum því niðrúr þegar hann fór að ræða það við konuna sem var með básinn hvort að hún væri nú ekki til í að teikna á hann netasokkabuxur.
Myndavélaleysið kemur pottþétt ekki að sök, þarf ábyggilega bara að gúggla aðeins og þá finn ég fullt af myndum. Var orðin hálfblind af myndavélaflösum á tímabili.

En hér er afraksturinn af Kolaportsferðinni að pósa við stytturnar við Perluna.

styttur.jpg
Ef vel er að gáð, er hægt að sjá myndina sem var teiknuð á bakið á honum, af því það var ekki sjens að renna kjólnum upp.
Tek það fram. Enginn drukkinn. Enn.

Svo var það mesti höfuðverkurinn.
Við áttum að finna spliff, donk og gengju.
Við fórum í gegnum símaskrána okkar allra og samtölin voru öll á þessa leið.
- Hæ! Áttu spliff, donk og gengju og ég er ekki að djóka!?!

Ég var orðin mjög mjög örvæntingarfull, ég meira segja í örvæntingu minni fékk vinkonu mína til að setja auglýsingu á barnaland.is og auglýsa þar eftir þessu. Fékk engin svör.

Einu liðinu tókst að ná í þetta okkur öllum hinum til mikillar mæðu, enda 100 stig í boði. Alveg 20 gulir bílar sko!
spliff.jpg
Þetta er Benni, með helvítis spliff, andskotans donk og skrattans gengjuna.

Góðar stundir!

15. okt. 2007

Ég væri til í…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:57

Ég fór á rúntinn með vini mínum um daginn. Við sumsé keyrðum um alla borg til að sjá friðarsúluna hennar Yoko frá sem flestum sjónarhornum. Friðarsúlan er svaka flott og falleg, en djöfull kom upp í manni púkinn.

Hugmyndin er komin, ég er búin að finna verkfræðinginn, hann ætti að geta fundið stálsmið og reddað efni.
Þá er bara eftir að redda báti, nokkrum kraftaköllum með skíðahettur og út í Viðey og skella einu Batman merki á!

Ohhh sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur. batman

ohhhh mig langar..!

13. okt. 2007

Hikk!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:53

Nú er svo komið í mínu lífi að ég á meira áfengi heldur en mat..!
Vann rauðvínspottinn í gær og á meira að segja enn afgang eftir síðasta vinning.
Skil þetta ekki… ég sem vinn aldrei neitt. Jú áfengi, sem ég er ferlega léleg að sulla í.

Talandi samt um áfengi, ég fékk einhvern skít í hálsinn um daginn og fór sárþjáð fram og gróf upp Grand Marnier flösku sem ég á, greip með mér glas og aftur upp í ból og fékk mér slurk. Skellti svo flöskunni á borðið. Horfði svo á hana grunsemdaraugum, því hún færi pottþétt í gólfið þar. Opnaði náttborðið og tróð henni þar inn. Hún er þar enn. Ætti kannski að koma henni á réttan stað ef svo ólíklega vildi að einhver væri að kíkja þarna inn.

Svo þegar ég sat heima í gær og horfði á allt þetta vandræðaáfengi sá ég að þetta var bara pottþétt afsökun til að kaupa mér stofumublu. Hef haft augastað á skenk í IKEA, en hann er alltaf “í pöntun”, held að það sé nýja orðatiltækið yfir “ekki til en væntanlegt”. Líkaði betur við “ekki til en væntanlegt”. Fannst það mun hreinskilnara.

08. okt. 2007

Flaut! Fíddfííjúúú! Flaut!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:47

Það var flautað á mig um daginn.
Ekki af því að ég er með svo sætan rass. Heldur af því að ég var að horfa á sætan karlmannsrass og gleymdi mér á ljósum. *flaut*

Þarf svo að fara í símaleiðangur fljótlega, minn er að gefa upp öndina tveimur mánuðum á undan áætlun.
Endast yfirleitt árið hjá mér og svo deyja þeir. Skil þetta ekki… ekki eins og ég sé að vinna einhverja verkamannavinnu með tilheyrandi skít og krambúleringum. Ekki nema sokkaálfurinn minn komi alltaf með mér í vinnuna og hafi það gott í töskunni og fremji myrkraverk á öllum þessum símum mínum..! Ef svo er, þá skil ég ekki þessa orku í honum að fela svo alla sokkana mína. Eða annan af parinu.
Núna kemur það mér í koll að eiga bara skræpótta sokka og engan eins.

Svo á ég nýja hetju… hún er að kenna mér skattskil.
Í kvöld gat hún farið með 110. gr. tekjuskattslagana 2 málsgrein án þess að draga andann, sleppa hvorki punkt né kommu og vera skýrmælt.
shit sko..!

01. okt. 2007

Með allt á hælunum….

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:20

eða hér um bil.

Oftast finnst mér alveg æði að hafa of mikið að gera, stundum er bara of mikið að gera. Sést á heimilinu. Gæti alveg eins fengið þær kellingar í Allt í drasli í heimsókn, og látið taka upp þátt án þess að skíta út í mánuð áður. Segi svona, væri samt alveg til í þær, geta þá kannski náð helvítis baðkarinu sæmilegu… og skrattans bakaraofninn.
Sumir dagar eru svo þannig að manni finnst að maður hefði bara ekkert átt að fara framúr, varla til að pissa. Föstudagurinn var þannig. Bara keis. t.d. dó rennilásinn á buxunum mínum á miðjum vinnudegi. Svona buxur sem er ekki hægt að redda með því að ja… tja… þið skiljið. Handaflið var það eina sem dugði. Og þetta var bara lítið sko….. Komst lífs af.
Lifði líka af helgina, gerðist húsmóðir með bú og börn um helgina. Lærði af reynslunni að takkaskór og kjóll eru bara flott blanda þegar maður vill vera fínn til að fara í bíó í höfuðborginni. Komst líka að því að það er dauðasök að henda sleikjunni í vaskinn án þess að heimasætan fái að sleikja. Og já…. það er ekkert til sem heitir of mikið súkkulaðikrem á köku. ;)

ps. Facebook er kúl.

Knúið af WordPress.com