Jæja blessaða prófið var í kvöld.
Hefði alveg mátt ganga betur sko….. fraus, minnið flaug út um nasirnar á mér í einni snýtunni rétt fyrir prófið.
Minnið skall á með fullum krafti þegar ég lokaði á eftir mér hurðinni á leiðinni út úr prófinu. Alveg týpískt.
En svona er lífið. Ef illa fer, þá bara endurtektarpróf og þá á ég sko eftir að hrækja á það.
En að öðru skemmtilegu…
Er soldið búin að vera að leysa af á símanum núna í nokkrar mínútur á dag og ég er bara svei mér þá búin að sakna þess pínu.
Veit ekki hvað allir þessi nýju sölumenn halda þegar ég er búin að vera þarna í fimm og er farin að orga af hlátri bæði af minni eigin fyndni og fyndni allra yndislegu kúnnana.
Ligg svo í flisskasti þegar ég þarf að kalla á athygli kúnnana í símanun því þeir halda að ég sé símsvarinn.
Og bara þarna get ég komið með lélegasta brandara í heimi sem mér finnst samt alltaf svo fyndinn.
- Líkhús, niðursuðudeild.