Alltaf skal ég vera of fljót á mér. Alltaf.
Var nefnilega að hugsa það í dag að ég hef ekki drepið neitt með bílnum svo ég viti nema eina og eina flugu eða svo, tel nú varla mýið með, bara hreinsun að því. Bíta mig þá ekki á meðan.
Jámm fer að skila inn kagganum og þótti góð að hafa ekki drepið neitt. Hefði nefnilega þótt alveg týpísk ég að keyra á skjaldbökugreyið sem hljóp sér til hita á Skutulsfjarðarbrautinni, var nefnilega á ferðinni á þessum tíma, missti samt alveg af æsilegum eltingarleik pólítísins og hins snara ólöglega flóttamanns.
Brá mér svo í þarnæsta fjörð til að ná í nokkrar plöntur og á heimleiðinni strauja ég svo yfir eitt stykki blika. Eða réttara sagt, hann straujar á mig. Kannski er bara hreinsun að þessu líka, fannst hann agalega stúpíd eitthvað þegar hann flaug í veg fyrir burra.
Ég er sumsé búin að drepa á þjóðvegum landsins tvo minka, nokkrar mýs, svona fimm smáflugla, einu sinni tvo í einu og svo þetta blikakvikindi.
Er ekki hægt að kaupa eitthvað sem kemur í veg fyrir svona, nema kannski flugurnar. Eða…. nei nei… losna við að drepa þær líka.
Það er svo andskoti leiðinlegt að þrífa þetta af!
21. jún. 2007
Splass
08. jún. 2007
Ó neeeeeiiiiiii…..!
Þið hefðuð átt að sjá til mín núna fyrr í kvöld.
Ég var frammi á gangi, sjónvarpið í gangi þegar ég heyri ógurlegt stef.
Já ógurlegt! segi ég og skrifa.
Ég tók undir mig stökk og sprett og hljóp í áttina að sjónvarpsfjarstýringunni, datt næstum því um inniskó af sjálfri mér, (dem, skammast ekki í sjálfri mér) og sveif í sló mó í átt að fjarstýringunni meðan að teve fór á yfirspól þannig að ég myndi nú örugglega sjá mesta horbjóð norðan Alpafjalla og þó víðar væri leitað, en það tókst, þó ekki hefði mátt tæpara standa að skipta um stöð áður en batseljör byrjaði.
Ég veit…. ég er að ýkja, en kommon gott fólk. Ég á bágt.
Herbergið mitt er bleikt.
En að öðru… en jú kemur geðheilsu minni við….. maðurinn sem talar inn á myndbandaauglýsingarnar… er einhver þarna úti sem þekkir þann mann? ef svo er….. viltu vinsamlegast biðja manninn um að hætta að nauðga svona sérhljóðunum. Þetta er ekki töff. Þetta er ekki kúl og svona misþyrming á saklausum sérhljóðum fær mig sko alls ekki til að hlaupa á harðarspretti til að leigja eina mynd í Víííídeeeeoooohöööölliiinniiii Láááááámúúúúúlaaaaaaaaaaaaaaaa (gleymdi ekki -g’inu).
Ég er komin í sumarfrí, engin vekjaraklukka í tvær yndislegar vikur, er samt að spá í því að leyfa henni aðeins að láta í sér heyra fyrstu dagana. Það er svo ljúft að slökkva bara á henni og snúa sér á hina hliðina. Finnst samt ekki að ég sé komin í sumarfrí, allaveganna ekki búin að fara í handahlaup af eintómri gleði, ástæðan er kannski eitt stykki tölvukall sem er búin að vera á leiðinni síðustu eina og hálfa vikuna til að klára eitt mál þannig að sumir hlutir gangi smurðir og fínir er ekki búinn að láta sjá sig þrátt fyrir fögur loforð og tölvukallinn í vinnunni er farinn að forðast mig….. get svo svarið það….. sá í iljarnar á honum þar sem hann skreið framhjá skrifborðinu mínu til að komast inn í fundarherbergið. Ætti að skjóta helvítis manninn, sko hinn, ekki minn, en þá þarf samt að finna nýjan. Dem. Fékk loforð númer 967 um að þetta yrði komið í lag á mánudaginn. Hugsa að það myndi líða yfir mig að einskærri undrun ef það stenst og þá ekki dömulegt svún eins og í teve, heldur svona eins og ljósastaur sem missir allt í einu fæturna.
Góðar stundir.
06. jún. 2007
geisp…..
Sumarfríið mitt er alveg að skella á, bara alveg rétt handan við hornið….
og ó boy ó boy hvað ég þarf á því að halda.
En annars ætti ég nú ekkert að vera að skrifa hér inn. Hef frá engu skemmtilegu að segja. Hef bara nöldur….
Ég er annars flutt á nýjar slóðir, kassar út um allt og nenni ekki neinu eins og segir í laginu, nema ég á ekki afmæli.
Sakna kisa ógurlega en vonandi er það bara tímabundið.
Veit ekki hvort að nýja húsnæðið eigi skilið nafn, veit ekki hvort að það sé út af kattarleysinu eða af því að það er enginn rafmagnstengill inn á baði. Hálf skakkur á mér annars fullkomni kollur að reyna að slétta á mér hárið mínus spegill.
Svo er ég orðin bara verulega þreytt, það þreytt að ég er hætt að sjá spaugilegu hliðina á rassálfunum mínum í vinnunni sem segja akkurru akkuru í sí og æ. Er samt ekki viss hvort að þreytan sé út af of miklu að gera í vinnunni eða það að ég er í bleeeeiiiikuuuu herbergi með disney prinsessum sem horfa á mig úr hverju horni og af öllum veggjum. Bleikt er kúl. Sem naglalakk eða bolur. Ég væri, án alls spaugs, miklu hrifnari af herberginu ef þeir væru svartir veggirnir. Ég komst af því að það er til eitthvað sem heitir of bleikt. Jakk…
Jú jú… ég á góða frétt. Ég seldi þvottavélaræksnið mitt fyrir heilar tíuþúsund krónur til þeirra sem fluttu í kastalann. Tíuþúsundkall er sko slatti fyrir greyið sem rétt svo bleytti þvottinn og ég keypti fyrir sex árum síðan á þrjátíuþúsund kall. Hefði með réttu átt að borga með henni. Get samt ekki sagt að ég sé með samviskubit. Nahauts…!
Lilli bró fjárfesti sér svo í alvuru 7 kílóa græju með íslensku lyklaborði. Hef ekki lent í því áður að þurfa að slást við hann um þvottavélina áður. ![]()
tata