Furðulegt já… það er ekki hægt annað en að hrista hausinn yfir sumu. Það er varla hægt að nöldra yfir svona hlutum. Varð svo ill í morgun að ég fékk næstum því blóðnasir.
En hér kemur þetta.
1. mars síðastliðin urðu fullt af breytingum á tollalögum og tollkódum. Ekki bara að því sem snýr að hinum margumtalaða virðisaukaskatti á matvælum, heldur var þetta miklu meira. t.d. voru undirritaðir þónokkuð margir fríverslunar samningar við hin ýmsustu lönd og má lesa um þetta hér http://tollur.is/displayer.asp?cat_id=2&module_id=220&element_id=3875 og hér http://www.utanrikisraduneyti.is/samningar/friverslunarsamningar/Undir/nr/365 og hef þið hafið enn meiri áhuga á því að hlutirnir sem verið er að flytja inn bera mikinn toll og vörugjöld er hægt að skoða það hér https://vefafgreidsla.tollur.is/tollalina/tav/ .
Fríverslunarsamningur þýðir að t.d.púströr frá Suður – Kóreu sem bar 15% almennan toll ber engann.
En svo fór ég að furða mig á því í morgun af hverju varahlutirnir sem ég var að tolla báru ekki þennan nýja fína núll toll heldur voru enn með 7.5% og 15% tolli, þannig að ég hafði samband við tollinn á fína vefspjallinu hjá þeim og spurði hverju sætti, og jú fékk að vita að tollur frá viðkomandi landi væri núll EF, já þarna kemur þetta blessaða EF, hluturinn kæmi beint frá viðkomandi landi.
Sumsé púströrið frá Suður-Kóreu kostar enn það sama og það gerði fyrir 1.mars þrátt fyrir þennan fríverslunarsamning af því að JÁ! af því að helvítis flugvélin með helvítis púströrið þarf að millilenda í Belgíu!
Ef þið kíkjið á hvaða lönd eru með fríverslunarsamning við Ísland (EFTA) er það sko andskotinn hafi það ekki mörg lönd sem ekki þurfa að millilenda né að stoppa í einhverri höfn áður en það er komið hingað á skerið.
Allir þessir fríverslunarsamningar líta mjög vel út á pappír, en svo þegar til kemur er ekkert að marka þá.
Ætli enginn spái í þessu?
Og svona í lokin. Vissuð þið að loftpúðar bera 15% vörugjöld ofan á allt annað. Loftpúðar hafa pottþétt bjargað einhverjum lífum hér á landi og samt er þetta flokkað sem lúxusvarningur.
Fuss..!