Hér kemur bara væl, tuð og nöldur. Ef þið nennið ekki að lesa þetta þá vinsamlegast nagið þröskuldinn.
Það er hætt að framleiða pilluna mína. Já pilluna MÍNA. Sem er búin að vera mín stoð og stytta í mörg ár og veita mér betra líf. Jú ég er á einhverju helvíti núna sem á að vera eins, en miðað við ástandið líkamlega og andlega er það bara eitthvað í nösunum á einhverjum nýútskrifuðum lyfjafræðingi. Glætan sko.
Svo fer allt í pirrunar á mér og aðstæður bjóða sko upp á það.
T.d. veðrið. ok. ég veit… ég bý á Íslandi, en kommon!
Helvítis umferðin er að gera mig geheheheðveika.
Það er búið loka útvarpstöðinni minni og það er bara ekkert fyrir mig að hlusta á þegar ég sit föstu í helvítis umferðinni.
Já og af hverju er aldrei neitt í sjónvarpinu á þriðjudögum?!?
Því er nú helvítis verr og miður að þegar ég er svona í skapinu að ég læt allt flakka á lilla bró. Sem betur fer er hann að vinna vaktavinnu þannig að hann verður lítið var við þetta. En þar sem uppsöfnuð gremja safnast fyrir eins og aska í öskubakka þá getur þetta orðið frekar nastý, já og það þarf stundum að losa úr honum. Þá er það sem hendi er næst sem fá að finna fyrir því, nefnilega vinnufélagarnir. Ég er samt eiginlega búin að steinhalda kjafti núna þessa vikuna og er bara tvisvar búin að urra á einhvern. Mér fannst samt að þeir ættu það alveg skilið.
Snapp nr. 1
Mánudagsmorguninn var undirlagður tuði og meira tuði í einum sem þoldi ekki að maður sem er ríkari heldur en allir í fyrirtækinu tíu sinnum og ættingjar þeirra til samans á mikinn pening og tuðaði mikið yfir afmælisveislunni hjá manninum. Einnig fór mikill tími og orka í það að nöldra yfir jakkafataklæddum mönnum á tónleikum erlendis, flottræfilsháttur þetta.. gætu sko verið í gallabuxum eins og við hin.
Svona til að setja þessa afmælisveislu í samhengi, þá er það bara eins og ég hefði pantað pizzu á afmælisdaginn minn.
Já og þessi maður verslar ekki í Bónus. Hann heldur nefnilega með Davíð vini sínum og verslar ekki hjá svona óþjóðalýð.
-kræst sko! öllu er hægt að nöldra yfir!
Pólítískt viðrini.
Snapp nr. 2
Það var einn sem kvartaði alveg ógurlega yfir því að ljósritunarvélin væri bara ónýtt skran og ég ætti að fara ekki seinna en strax að kaupa nýja. Snillingurinn setti samanheftuð blöð í matarann.
Þegar hann stoppaði ekki eftir að ég var búin að redda málunum, gargaði ég á hann
-Kræst! Þú hegðar þér eins og versta kelling! (þarna sá ég minn mann reka upp stór augu og neðri vörin tók smá titring)ég reyndi svosem að bjarga mér fyrir horn með því að segja að ég væri eina kellingin þarna og því með einkarétt á tuði. Held að þessi bjóði ekki góðan daginn næstu mánuði.
En eins og mér sé ekki nákvæmlega slétt sama núna.
Og hvað er málið með þennan ótalandi í sjónvarpsmarkaðinum á Skjá 1 eða vörutorginu eða hvað sem þetta heitir. Hver í helvítinu Talar. Svona. Punktur. Á. Eftir. Nánast. Hverju. Einasta. Orði.
Já og þegar maður tekur að sér svona vinnu þá á maður nú að vita hvað maður er að selja. Hvað er til dæmis serlólít? Það er í auglýsingunni fyrir tækið sem á að hrista spikið af heimsku fólki sem heldur að þannig virki.
Já og segið mér… hvernig í helvítinu stendur á þvi að fyrirtæki hér í bæ sem er með alveg yndislega gjaldkera og yndislega þjónustufulltrúa skuli vera með starfsfólk með hland í hausnum í fyrirtækjaþjónustunni.