Nöldur og ljótar hugsanir..!

29. des. 2006

Gleðilega rest gott fólk..!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 00:45

Gleðilega rest gott fólk..!

Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist þegar ég ýti á “publis post” hvort að það sé eitthvað þægara hér í foreldrahúsum heldur en í Kastalanum heima.

Á þessum árstíma fylgir auðvitað að segja frá gjöfunum sem maður fékk…
æi… nenni ekki. En ég fékk alveg fullt af æðislegum hlutum… en kannski það sem vakti mesta lukku þessi jólin var svona neon bleikur stressbolti, úr svona slepjugúmmíi sem hægt er að teygja og toga á alla kanta. Boltanum er búið að misþyrma svo agalega undanfarna daga að andlitið er farið af og það er komið gat á hann. Gatið leiddi svo annað enn miklu miklu miklu skemmtilegra í ljós… sko þegar kvikindið er kreist… byrjar að sjást í smá hvítt sem stækkar svo í risabólu sem lætur svo undan (fæ bara unaðshroll við tilhugsunina. Ég hélt alltaf að ég hefði erft bólufetishið frá henni móður minni, en þegar ég var að leika mér að gatinu í annað sinnið, stynur upp úr föður mínum í andakt sem sat við hlið mér…
-noh! þetta var bara eins og fílapensill!

Já það er ósköp lítið sem þarf til að gleðja mitt hjarta!

18. des. 2006

Hó! hó! hó!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:33

Hó! hó! hó!

Nei nei… jólaskapið er ekkert komið enn, eins og vanalega. Er samt búin að kaupa allar gjafir og meira að segja pakka inn öllu sem á að komast til skila hérna á höfuðborgarsvæðinu. Lærði það af harðri reynslu að vera ekkert að pakka niður gjöfum sem þarf svo að velkjast í ferðatösku í mislangan tíma.

En ég er nú svosum búin að stússast hellings í kringum jólin. Meira að segja eitt stykki jólaball… með tilheyrandi jólasveinum… má til með að segja frá einu…
Þegar ballið var búið, lumma ég mér fram hjá frænku minni til að gera upp við jólasveinana. Þeir þurfa víst að kaupa sitt í Bónus núna, alveg eins og við öll hin.
Ég banka á hurðina og spyr – Strákar! Eruð þið dísent? Já já er svarað þannig að ég fer inn. Situr þá ekki einn jólinn á brókinni, klappar á lærið á sér og strýkur yfir skeggið… koddu hérna gæskan… Bad Santa hér!
Þetta bjargaði alveg fyrir mér desember get ég sagt ykkur… ég hló svo mikið að það lá við að ég hefði sjálf þurft að skipta um brók..!

06. des. 2006

Lúði lúði lúði Ég hef oft og mörgum sinnum fussað…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:03

Lúði lúði lúði

Ég hef oft og mörgum sinnum fussað með sjálfri mér yfir lúðum sem ég sé oft t.d. í röð í Bónus eða á næstu bensínstöð með id kortið af vinnustaðnum hangandi framan á sér eða út á hlið.
Já ég hef fussað yfir svona liði… meina… lúðinn að taka þetta ekki af sér þegar vinnan er búin. Alltaf gaman að Jón Jónsson er að vinna hjá Jóni Jónssyni við að passa Gunnu Jónsdóttur.

Nú er búið að merkja alla í bak og fyrir á mínum vinnustað. Ég veðjaði við sjálfa mig að ég myndi týna þessu svona c.a. sextíu sinnum áður en nýtt ár liti dagsins ljós.
Kortið hefur ekki enn týnst…. en já og svo .. sko…
Ég þurfti að fara í búð um daginn… eftir vinnu… hallaði mér aðeins yfir afgreiðsluborðið og heyri þá eitthvað skrítið glamur… var ekki alveg að tengja fyrr en ég lít niður.
Helvítis id-kortið danglaði sumsé framan á mér og skall í borðið.

Ég er lúði.

01. des. 2006

Nú sit ég á gamla staðnum mínum… með headsett á …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:09

Nú sit ég á gamla staðnum mínum… með headsett á kollinum.
Ég var svo innilega búin að gleyma hvað það er mikið stuð hér.

Má til með að deila með ykkur gullkornum dagsins.

Það svaraði ekki hjá einum í dag og kúnninn skildi ekki neitt í þessu.
Hann náði sko í manninn í gær!

Það hringdi ein inn mjög svo óhress. Bíllinn sem hún keypti í sumar er orðinn rúðupisslaus! Ég benti henni á næstu bensínstöð með þetta. Hún varð enn verri því að bíllinn hennar er jú í kaskó!

Mikið svaðalega fannst mér þetta samt krúttulegt.
Hringdi ein og spurði hvort að það væri ekki til spes rúðusköfur fyrir ógeðslega dýra og fína bílinn hjá kærastanum. jú jú… það eru seldar rúðusköfur hér… en þær eru bara þessar venjulegu sem fást á öllum bensínstöðvum.
Henni fannst það voða lummó og lét mig sko heyra það!

Og svo auðvitað uppáhaldið mitt.
-Fá samband við varahlutaverkstæði
– já hvort er það, varahlutir eða verkstæði?
-já

Knúið af WordPress.com