Nöldur og ljótar hugsanir..!

29. nóv. 2006

Ég er svo mikilll sökker… Ég er svo ógurlega mi…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:25

Ég er svo mikilll sökker…
Ég er svo ógurlega mikill sökker fyrir auglýsingum.
Ég er búin að slefa mikið yfir L’Oreal meikauglýsingunni sem gengur núna… Milla með alveg fullkomna húð eftir sextán tíma á tjúttinu og meira að segja skellir sér í drifhvíta rúllukragapeysu án þess að blikka.
Ég átti einu sinni hvíta rúllukragapeysu. Mikið svakalega vandaði ég mig mikið við að komast í hana.
En já… að sökkernum.
Ég er sumsé búin að bíða alveg óóógurlega lengi eftir því að meikið mitt fari að klárast. Hef sko ekki verið neitt sparsöm með það. Tvær gusur auka á dag er fínt sko… mig langaði nefnilega svo svaðalega mikið í nýja meikið frá L’Oreal.
Ég keypti mér Cosmo síðustu helgi… og það var prufa af hinu ó svo frábæra meiki með blaðinu. Það tísti í mér af æsingi að prufa.
Já það tísti.
Þetta var sko sami liturinn og hún Milla vinkona mín er með… sem ég hélt að væri sko aldeilis fínt. Kannski of ljós, er ekki alveg svona ljós eins og hún.
Nei nei..!
Ég var eins og fífl í framan með grímu.
Issss… hugsaði ég bara með mér. Þarf bara að kaupa ljósara meik.
Lilli bró rak hausinn inn í stofu og hrökklaðist út og spurði hvað í djöflinum ég væri að gera. Lilli bró… jú knóv… ég gæti verið með spöng í hárinu með hreindýrahornum og hann myndi ekki taka eftir því.
Jæja… hvað með það þótt að hann hafi eitthvað verið að tjá sig… hann veit ekki hvað er flott í þessum málum.
Ég var með meik á höndunum þannig að ég fór í það að skola það af.
Þetta var ekki skolað af get ég sagt ykkur. Heldur skrúbbað af með naglaburstanum.
Ég skutlaði líka einni seríu út í glugga þann dag.
Er enn að melta hvernig ég eigi að ná meikblettunum úr gluggatjöldunum án þess að taka allt klappið niður og henda í vélina. Nenni ekki að strauja fleiri fleiri fermetra. Gerði það í sumar.
Hann var heldur ekki lítill þvotturinn sem fór fram seinna um kvöldið. Sápa, hreinsikrem og andlitstoner í fleiri fleiri skipti þar til að þvottapokinn hætti að vera brúnn.

Hí á Millu sko…. sé fyrir mig að það hafi þurft að smúla hana með brunaslöngu eftir auglýsinguna fyrst að ég þurfti að fara í stórtækar aðgerðir eftir eina saklausa prufu.

23. nóv. 2006

Ef lífið væri bíómynd… Rændi þessu af Hafdísi….

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:12

Ef lífið væri bíómynd…

Rændi þessu af Hafdísi. :)
Held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég geri eitthvað svona. Helvíti sneddí. Þið túlkið svo niðurstöðurnar alveg eins og þið viljið.

En þetta virkar svona.

Ef lífið væri bíómynd – hvernig yrði lagalistinn þinn?

Svona virkar þetta:
1. Opnaðu lagasafnið þitt (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, o.s.frv.)

2. Ýttu á uppstokkun (shuffle)

3. Ýttu á spila

4. Skrifðu nafnið á laginu og listamanninn hjá hverri spurningu

5. Þegar þú færð nýja spurningu ýttu þá á næsta lag

6. Ekki svindla og þykjast vera töff?

Opnunaratriði
: Travis-the Cage
Þegar þú vaknar: Jagúar – Dr Rhythm
Fyrsti skóladagurinn: U2 – One
Að verða ástfanginn: The Beatles ? A Hard Days Night
Slagsmálalag: The Prodigy – Voodoo People (Pendulum Remix)
Að hætta saman: Gnarls Barkley – Transformer
Árshátíð: Frankie Goes To Hollywood – Relax
Lífið: Boston – Peace Of Mind
Andlegt áfall: Damien Rice – The Blowers Daughter
Að keyra: Suede ? Beatiful Ones
Afturhvarf (Flashback): Youssou N’Dour (feat. Neheh Cherry) – 7 Seconds
Að taka aftur saman: Queen – The Loser In The End
Brúðkaup: Sálin Hans Jóns Míns – Uppí skýjunum
Fæðing barns: Placebo – Teenage Angst
Lokabarátta: Billy Idol – Cradle Of Love
Dauðaatriðið: Rob Zombie – More Human Than Human (White Zombie)
Jarðarfararlag: Evanescence – Haunted
Lokalag (þakkarlisti): Nick Cave – Into my arms

20. nóv. 2006

Stundum ætti ég nú bara að kunna að halda kjafti. …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:07

Stundum ætti ég nú bara að kunna að halda kjafti.

Kallarnir í vinnunni ætluðu að skutla nagladekkjunum undir bílinn minn í dag. En það var mikið að gera og ég gleymdist. En eftirfarandi samtal átti sér stað í dag rétt um sexleytið.
-Skrattinn hafi það Ragnheiður! Ég gleymdi þér (Ýmindið ykkur svo kall hoppandi um á öðrum fæti að reyna að koma sér úr vinnugallanum án þess að fara úr skónum)
–Já ekkert mál.
-Í alvörunni. Á ég ekki að reyna að fá einhvern annann í þetta (Svolítið höktandi því að það er erfitt að vera stressaður og reyna að koma sér úr vinnugalla yfir stóra skó)
–Í alvuru… ekki málið.
-Já sko en…
–SKO! ég er að VESTAN og ætti að kunna að díla við smá hálku.

Það þurfti að hjálpa þessari að vestan út úr stæðinu í kvöld.

19. nóv. 2006

Mér er spurn… Hvað í fjandanum á þessi skítakul…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 01:13

Mér er spurn…

Hvað í fjandanum á þessi skítakuldi hérna að þýða?
Músahjartað í mér fékk smá herping núna í vikunni. Þurfti að fara í bankann á fimmtudaginn og fór í Fjarðarkaup. Það er nú ekki langt þangað… en ég gat ekki einu sinni klárað blótsyrðin á ástkæra og “yl”hýra því að það var svo helv. ansk. djö. mikill skítakuldi úti. Þegar ég stekk út úr burrus heyri ég tónlist (gól) og finnst ég allt í einu vera út í Búdapest. Fyrir utan situr betlari og hún er fjólublá í framan af kulda og framleiðir hljóð á skrítið hljóðfæri.
Er þetta löglegt?
Má betla hérna?
Er þörf fyrir því að fólk sé að betla hérna?
Ég á ekki orð!
En þar sem ég var ótrúlegt en satt með meira í vasanum heldur en ló þá lét ég hana hafa það sem ég var með á mér. Ég er auðvitað búin að heyra að maður eigi ekki að gefa betlurum pening. En það er erlendis. Ekki á þröskuldinum hjá mér.

Það er annað sem er að hrjá mig núna.
Vinur minn hann Dr. Phil sem var alltaf með mér á morgnana meðan ég píndi ofan í mig morgunmatin og gerði mig sæta er farinn. Hættur og illa farinn.
Dr. Phil sem var aldrei með læti og bara voða rólegur og ljúfur. Akkúrat það sem ungfrú morgungeðprúð þurfti á að halda á morgnana.
Núna er komin snargeðveik bredda sem talar hátt og hratt, fleygir hlutum og er greinilega ekki búin að fara í greiningu. Sálartetrið mitt þolir bara ekki svona mikil læti á morgnana.
Ég skil bara ekkert í mér að viðurkenna þetta… en ég sakna Dr. Phil óendanlega mikið. Breddan með ofvirknina er ábyggilega fín seinnipartinn.

Jú..!
Það er líka eitt í viðbót. Ég veit bara ekki hvernig ég á að tækla þetta mál, en skítastuðullinn hjá mér er búinn að lækka allsvaðalega.
Dæmi: Ég sé að það er þessi fína smurolíurák í buxnaskálminni. Buxunum sem ég var í daginn áður og í staðin fyrir að roðna og blána og biðja alla vætti um að enginn hefði séð þetta, þá spáði ég bara ekki í þessu meir. Vanalega hefði ég nú skotist heim í matartímanum og skipt.
En kannski var ég líka bara svona skynsöm… hefði hvort eð er farið eftir hádegi á staðinn þar sem svona skeður.

10. nóv. 2006

vitiðihvað!vitiðihvað!vitiðihvað!vitiðihvað! Ég e…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:28

vitiðihvað!vitiðihvað!vitiðihvað!vitiðihvað!

Ég er á hreinum bíl..!

Og af hverju er það svona óskaplega merkilegt? Jú..! af því að ég þurfti ekki að þrífa hann sjálf. Einn kallinn í hinni vinnunni kvartaði undan verkefnaleysi og ég sagði í djóki að hann gæti skolað af bílnum mínum ef honum liði eitthvað illa.
Heyrðu! hann heimtaði af mér lykilinn meðan ég reyndi eins og ég gat (nú er ég að ljúga) að draga í land með þetta… og þeir ekki bara skoluðu af honum, heldur bónuðu hann og rygsuguðu!
Svei mér þá… held að ég athugi hvort að vinkona mín hún Betty Crocker verði samvinnuþýð við mig á næstunni. Þeir verskulda sko köku!

Í vikunni var ég svo á kvöldin á námskeiði, í tjónamatskerfi sem tryggingarfélögin nota.
jæja…. ég var stundum allsvaðalega efins um hvaða tilgang vera mín ætti þarna. Því stundum var ég ekki að skilja shit.
Þurfti stundum að hafa mig alla við að fara ekki að telja götin í loftinu… En þegar kom að þessu verklega þá gat ég sko alveg spjarað mig með ágætum… bara nokkrar spurningar… “strákar! hvað heitir þetta?” Get sko þetta eins og hvað annað.
Veit samt ekki hvað kennararnir hafa haldið þegar það mætir bara ein á pinnahælum innanum hina í stáltáarskóm. Ákvað svo að ég skildi bara spyrja seinna út í þessi erfiðu orð en ekki vera að trufla allt saman með því að spyrja til dæmis hvað er að réttarmæla þar sem að allir hinir vita alveg hvað það er, alveg eins og ég veit hvað sléttujárn er eða baðdúlla.
En jú…. þegar það var verið að tala um sjálfberandi yfirbyggingu, setti ég í brýrnar og fletti fram og til baka… kom annar kennarinn… kreisti á mér öxlina, bosti og sagði -bara alveg eins og bíllinn þinn.
Sem betur fer bætti hann ekki við gæskan eða vinan. Annars hefði ég orðið fúl en ekki fegin.

04. nóv. 2006

pínlegt.is Laugardag einn í síðasta mánuði fór ég…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:00

pínlegt.is

Laugardag einn í síðasta mánuði fór ég í óvissuferð með vinnunni.
M.a. fórum við í Adrenalín garðinn á Nesjavöllum. Þar er maður látinn troða sér í ansi öflugt sigbelti með böndum yfir axlirnar, og það er líka ansi breiðara líka harna í klofinu heldur en þessi venjulegu.
Það sem við vorum látin gera þarna var að klífa ansi ljótan og helvíti háan rafmagnsstaur og klífa svona líka andskoti háan vegg. Þriðja dæmið er kallað rólan. Maður er sumsé hífður upp í skýin og svo á maður að tosa í spotta sem lætur mann gossa. Ég var svo hrædd fyrstu gusuna að ég gat ekki einu sinni öskrað! gat svo gargað hinar þrjátíu og eitthvað alveg eins og mig lysti.
Talandi um garg. Það var nú bara ein sem sem öskraði svo mikið að hún fór úr kjálkalið. Nú er ég ekki að ýkja.

En af hverju var ég að lýsa hversu breitt beltið væri í klofinu… jú það er ástæða fyrir því. Ég marðist soldið hressilega mjööög svo ofarlega innan læris.
Miðvikdaginn eftir þá þarf ég að mæta til kvensa.
Ég ligg sumsé á bekknum hjá honum, þið skiljið, með kollin á honum þið vitið hvar…. svo spyr hann
-Ertu sexjúalt aktíf?
–Nei. Heyrist ámátlega í mér.
-Nú nú… (með tón)
–Ég var í Adrenalíngarðinum á laugardaginn. Gat ég mjálmað upp úr mér.
-Jahá

Knúið af WordPress.com