hellú…
Ég skil ekki hvað gengur að tölvunni hjá lilla bró en það gengur alls ekki upp að pósta neinu þar. Fæ alltaf einhverjar villumeldingar og pace can not be found kjaftæði.
Þar sem ég er búin að blogga svo lítið fáið þið bara skammt í smáfréttastíl.
-Loftkastali sem ég var búin að byggja hrundi svo agalega að mér er enn illt í botninum.
-Við systkinin þurfum að flytja bráðlega. Leigumarkaðurinn er alltaf sami skíturinn og það eru allir að segja mér að bíða í ár með að kaupa. Þannig að ef þið vitið um holu í ár, látið mig vita.
-Ég er búin að skrá mig í einn kúrs í háskólanum.
-Ég skilaði mínum elskulega fransmanni núna í síðustu viku og sit uppi með helvítis asíubúa í eitt ár. ÉG ER Í FÝLU!
-Það er komið sumar og það þýðir að mér er hent í djúpu laugina hérna upp í vinnu. En það er svosum í lagi… meðan það er bara vatn í lauginni.