Hellú öll…
Ég get ekki bloggaði heima hjá mér… þess vegna er kannski svona tregt hérna hjá mér. Ekki er það leti… nei nei nei nei.
Er farin að hlakka til páskana og samveru með familíunni. Skellur allt á í næstu viku
Ég er svo farin að gera allt aðra hluti upp í vinnu. Er þannig séð eiginlega hætt á símanum, er bara að leysa af núna.
Ég er sumsé komin í tollskýrslugerð fyrir verslunina og er staðsett hálfan daginn upp í hæðstu hæðum hjá köllunum þar. Þessar elskur snúast svo eins og skopparakringlur í kringum mig, en ég held að það breytist þegar nýjabrumið er farið af.
En það hlýtur samt að vera pínu erfitt að láta einhvern af hinu kyninu “ráðast” svona inn á sitt svæði…. ég segi þetta af því að einn þeirra rak svo hrikalega við að það hrikti í húskofanum. Þegar ég svo lít yfir öxlina á kauða verður minn svona líka dökkfjólublár í framan.
Ég vona bara að hann hafi ekki haldið að ég hafi verið að flissa að honum í framhaldinu.
Svo af því að ég er auðvitað frekja mikil þá fóru fyrstu dagarnir í það hjá mér að láta þessar elskur taka til hjá sér. Held að þeir hafi hent hálfu tonni af pappír þegar upp var staðið. Það fannst meira að segja dagatal þarna frá því að ég var á bílprófsaldrinum. Þess má geta að húsnæðið var í byggingu á þeim tíma.
Ég sé svo til hvort að það verði ekki kominn upp kaffikrókur þarna í haust, og vatnsvél með sódavatns fídusi.
Au revoir..!