6 dagar….
Já það eru sex dagar í öskudag.
Ég er því miður farin að kvíða fyrir þessum degi. Það er spurning hvort að ég geti farið á læknavaktina og heimtað róandi fyrir þennan dag. Efast samt stórlega að einhver læknir láti mig hafa eina “dísu” bara af því að ég þoli ekki Bjarnastaðabeljurnar.
Svo er spurning hvort að ég fari að spá í einhverju dressi.
Gamli dimmission búningurinn minn er týndur og tröllum gefin. Hann hefði líka ekki verið praktískur hérna út af örmunum á skrifborðstólnum. Var nefnilega strumpur og rassinn á búningnum var HUGE! Hann verður lengi í minnum hafður nýstúdentinn sem var afvelta út á túni og gat ekki komið sér á fætur út af búningnum.
En mín spá er sú að á öskudaginn eigi ég eftir að hitta milljón og tíu smápíkur í Silvíu Nóttar gervi. Ég er voða hrædd um að þegar dressið er komið á fari mannasiðir áðurnefndra smápíkna út í veður og vind.