Ikea.is
Ikea er uppáhaldsbúðin mín. Ég get eytt mörgum stundum þarna inni og ég tel það helgispjöll að nota styttri leiðarnar. Ikea bæklingurinn er mín uppáhalds lesning, ég hef eytt ófáum tímunum í það að spá og spökulera upp í sófa.
En af hverju er ég að deila því með ykkur að ég er Ikeafrík?
Jú það er nefnilega það að ég keypti mér náttborð í gær, mjög svo sætt, hvítt með skúffu efst og skáp niðri. Kemur í mjög svo handhægum flottum pakka þannig að lítið fór fyrir því í flutningnum.
Ég eyddi einum og hálfum fokkings klukkutíma í það að setja saman helvítis náttborðið. Einn og hálfur tími!!!!!
En þar sem það er guðlast að segja ljótt um Ikea þá ætla ég að skamma aðeins skólakerfið.
Megintilgangur skólakerfisins myndi ég segja er að koma ungum og óhörðnuðum einstaklingum út í lífið þokkalega sjálfbærum.
Í einhverjum af smíða áföngunum sem ég var látin taka var mér kennt á rennibekk. Aldrei hef ég nýtt mér þessa kunnáttu og hafði líka svosum takmarkaðann áhuga á því… hefði nú ekki verið nær að kenna manni að lesa út úr leiðbeiningum frá Ikea og fleiri aðila sem eru á þessum markaði.
Jú ég held það bara..! Snilldarhugmynd..!
Skyldufag í tíunda bekk á haustönn: hvernig á að setja saman ósamsett húsgögn.
Valfag í tíunda bekk á vorönn: Hvernig nota skal helstu verkfæri.
Fyrst að ég er nú byrjuð að ræða um þetta. Af hverju er ekki líka kennt hvernig eigi að redda svona helstu hlutum, eins og til dæmis: hvernig á að losa um stíflu í vaski, hvernig eigi að liðka til stífan krana á ofni, hvernig munda skal borvél og fleira og fleira…
Og ekkert kjaftæði að fá bara einhvern kall til að bjarga sér….
jú og þó… gæti brotið nögl sko….