skoh..!
Hafið þið einhvern tímann fengið borgað fyrir að ljúga?
Það hef ég.
Skoh…. Þetta gerðist fyrir rúmum tveimur árum, ég sit inn í fundarherbergi að farast úr stressi og þamba kaffi eins og ég eigi lífið að leysa og er að telja í mig kjark í það að hringja í keppinautana úr gsm síma sölustjórans sem ég var nýbúin að stilla á leyninúmer…. en áður en ég vissi af var ég búin að búa til karakter sem hét Sigrún Eva og hann pabbi minn, hann átti skoh útgerð!
Málið var að fá upplýsingar sem eru ekki beint inn á heimasíðunum.
En allaveganna þá tuggði ég voða mikið tyggjó, sagði “skoh” og “skillurru” í öðru hverju orði og ef mér þótti eitthvað áhugavert eða æðislegt kom eitt “geeeveikt” á háa c’inu skoh, ef ég skildi ekki eitthvað þá kom “eh?”
Ég tók svona c.a. eitt símtal á dag… og þetta er það sem ég gat náð úr kollinum á mér og hinn mundi eftir, en ég er samt viss um að ég sé að blanda öllu saman, en whaddever skoh…
-hæ ég heiti Sigrún Eva…. áttu nokkuð svona stóran jeppa?
-ka kostar? … nei áttu ekki einhvern dýrari? Pabbi minn er nebblilega ógisslega ríkur útgerðarmaður skoh!
-ka kostar sonna bíll í einkaleigu…. aha… ó… en ef pabbi myndi setja bílinn á útgerðina?
-ha! þjónustuskoðun? eh?
- dekk…. sko….. fylgja þau með… nú nú… bara fyrir mig geeeveikkkt!
-en hérna… hvað ef pabbi myndi keyra meira heldur en er í samningnum.. honum finnst svo gaman að keyra… ó!! kannski bara ekki neitt! ó en þú ógisslega dúlló!
-haaaaa! vil ég koma á deit???? (þarna meig sá sem ég er að vinna með næstum því á sig af hlátri)
-neeeee…. ég er sko á föstu… búin að vera í alveg þrjá mánuði! Má ég kannski fá númerið þitt… hringi kannski í þig í næstu viku.
Svona litið til baka er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert í vinnunni, en pínu erfitt samt að hafa tvo út í horni emjandi, þeir höfðu sig þó út ef þeir gátu ekki hamið sig. Ótrúlegt samt alveg hreint hvað það er hægt að spila með fólk. Spurði þá hvort að þeir hefði gert eins í sömu aðstæðum og auðvitað harðneituðu þeir…. já já….
En svo er spurningin?
Hver kjaftaði í Skjá Einn um þetta og hvar eru höfundarlaunin mín. Silvía Nótt minn rass! Sigrún Eva Útgerðarmannsdóttir er miklu meira kúl!