Nöldur og ljótar hugsanir..!

30. nóv. 2005

Hvernig viljið þið að klósettrúllan snúi? Með bla…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:39

Hvernig viljið þið að klósettrúllan snúi?

Með blaðið/lausi endinn upp? eða að lausi endinn sé við vegginn?

Ég get allaveganna ekki lokið mínum málum fyrr en ég er búin að koma klósettrúllunni í rétt horf. Sumsé lausi endinn við vegginn.

Lenti svo í hörkurökræðum í dag í smók þegar ég spurði að þessu í dag. Þá er önnur þarna sem vill hafa lausa endann yfir rúllunni og getur því ekki klárað pappírsvinnuna fyrr en öll áhöld eru á sínum stað. Sumsé við erum að gera hvor aðra brjálaðar.

Spurði svo fleiri að þessu í dag og spruttu upp harðar umræður, það var enginn sem var alveg sama hvernig rúllan er. Það var að vísu ein sem sagði að það væri notendavænna að hafa lausa endann yfir rúllunni en annars voru rökin “af því bara” og “þetta á að vera svona”.

Eeeen svo er klósetrúlluhaldarinn á vitlausum stað hérna í kastalanum en það er efni í aðrar umræður…

29. nóv. 2005

Nóvember að ljúka. Loksins er þessi mánuður að v…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:09

Nóvember að ljúka.

Loksins er þessi mánuður að verða búinn. Ég þoli ekki nóvember, held svei mér þá að ég hafi ofnæmi fyrir þessum mánuði, ég fæ alltaf bólur, nenni ekki framúr á morgnana og því síður í rúmið á kvöldin. Veðrið yfirleitt ömurlegt og skítlegt að fara í svarta myrkri á morgnana í vinnuna og jafn miklu myrkri heim á kvöldin.

En að öðru… ég fór til spákonu í gær, þessar sömu og kom í vinnuna í gær og skildi mig og einn annann eftir með gæsahúð. Ég var mikið að spá hvort að hún tæki heim. Svo þurfti ég að hringja í hana rétt fyrir lokun hjá mér og þá sagði hún áður en ég gat komið út úr mér mínu erindi að hún tæki heim. Fór svo til hennar um kvöldið.
Hún veit svo sannarlega sínu viti þessi kona, það kom ýmislegt fram, allt hlutir sem hún hefði engann veginn getað vitað. Mæli svo sannannlega með henni þessarri.

Fékk svo launahækkun í gær. Þannig að kannski var þessi nóvember ekki svo slæmur eftir allt saman.

28. nóv. 2005

Það kom kona hérna til mín upp í vinnu, stóð bara …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:08

Það kom kona hérna til mín upp í vinnu, stóð bara fyrir framan mig og brosti út að eyrum og bauð góðan daginn og bætti elskan mín við endann.
Ég verð að játa að þegar fólk stendur hérna fyrir framan mig þá verð ég vör um mig, venjulega vegna þess að þá er oftast nær gargað á mig.
En aftur að konunni. Hún spyr hvort að ég eigi kött. Ég svara neitandi en verður strax hugsað til kisunnar minnar sem dó fyrir tveimur árum og einni viku betur. Snælda sem er núna hjá m og p er orðin þeirra núna.
Hún segir við mig enn með brosið að ég eigi að eiga kött, og að það sé meira að segja köttur með mér núna og lýsir Köttdísi í smáatriðum.

Sölumaðurinn sem hún var hjá kemur svo seinna enn með kjálkann niður á hné og segir að hún hafi lýst ættingja hans fyrir honum nákvæmlega.

Ég var allaveganna með gæsahúð og kökk í hálsinum.

21. nóv. 2005

Rockstar INXS Hef aðeins kíkt á þessa þætti og fi…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:22

Rockstar INXS

Hef aðeins kíkt á þessa þætti og finnst þeir æðislegar, en það er eitt sem fer alveg svaðalega í mig.
Það er smettið á Dave Navarro. Hann lítur út eins og gúmmídúkka með þetta andlit, eða úber útúr fótósjoppaður. Vægast sagt hrollvekjandi.

En að öðru.

Fór í barnaafmæli í gær til æskuvinkonu minnar. Ég var eiginlega eins og álfur út á hól í þessum félagsskap. Ég var nefnilega svo greinilega ekki í klíkunni, veit til dæmis ekki muninn á weleda bossakreminu og hinu sem ég lagði ekki á minnið hvað heitir. Eftir að ég var búin að fá í fjórða skiptið baunað á mig hversu hræðilegt það væri eiginlega að ég væri ekki búin að fjölga stofninum í þessu landi fékk ég nóg og sagði að mér fyndist alveg yndislegt að geta sofið út allar helgar eins lengi og ég vildi og ég gæti skroppið á kaffihús eða í bíó þegar mér dytti það í hug. Klykkti síðan út að ég þyrfti barasta ekkert að díla við kúkableyjur né að hafa valkvíða yfir einhverjum bossakremum. Mitt eina áhyggjuefni svona dagsdaglega væru hvaða sokkar stemmdu við dressið þá stundina og hvort að ég ætti að nenna að elda kvöldmat.
En svo til að friða þessar elskur sem urðu soldið móðgaðar í framan sagði ég þeim að ég hefði einu sinni passað einn ársgamlan lasinn og að taka tennur frá fimmtudegi og fram á aðfararnótt mánudags og ég skildi ekkert hvernig þær færu að þessu án þess að eiga valíum dunk í bónusstærð inn í baðskáp.

15. nóv. 2005

Veldu einn fyrir….. Ég þurfti að hringja í hið …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:15

Veldu einn fyrir…..

Ég þurfti að hringja í hið ógurlega fyrirtæki 365-ljósvakamiðla í dag. Ég held að ég muni þetta rétt, en geðheilsu minni var stefnt í voða í dag.

-Góðan dag. Þú ert kominn í samband við þrjúhundruðsextíuogfimm ljósvakamiðla. Veldu einn fyrir smáauglýsingar, tvo fyrir þjónustudeild, þrjá fy…
2
-Þú ert kominn í samband við þjónustudeild þrjúhundruðsextíuogfimm ljósvakamiðla. Ef dévaff hefur ekki borist til þín veldu einn, ef fréttablaðið hefur ekki borist til þín veldu tvo, ef þú vilt fá samband við þjónustuborð veldu þrjá.
3
-Þú ert kominn í samband við þjónustudeild þrjúhundruðsextíuogfimm ljósvakamiðla. Ef dévaff hefur ekki borist til þín veldu einn, ef fréttablaðið hefur ekki borist til þín veldur tvo, ef þú vilt fá samband við þjónustuborð veldu þrjá.
–ó… ýtti ég á vitlausan takka. 3
-Þú ert kominn í samband við þjónustudeild þrjúhundruðsextíuogfimm ljósvakamiðla. Ef dévaff..
333
-Þú ert kominn í samband við þjónustudeild þrjúhundru…
–Djöfull! 33333333333333333333333333333333333
-Þú ert kominn í samband vi…

Þarna lagði ég á… róaði mig aðeins niður, fékk mér kakó og reyndi svo aftur.

-Þú ert kominn í samband við..
3

-Þú ert kominn í samband við..
3

-Þú ert kominn í samband við..
3

-Þú ert kominn í samband við..
3

GARG!

-Þú ert kominn í samband við..
3 3 3 3 3 3 3 3 3

-Þú ert kominn í samband við..
–Andskotinn! 3

-Því miður hefur þú valið rangt. Ekki er hægt að velja aftur. du du du du du du….

En það er allaveganna einn ljós punktur í þessu dæmi. Ég var með símtól í hendinni sem ég gat þrusað niður á sinn stað, að vísu ekki með nógu fullnægjandi hljóði því að það eru ekki bjöllur inn í ip-símum. En miklu miklu betra heldur en að reyna skella á með þvi að ýta á takka. Fast.

14. nóv. 2005

Ég boða koma mína á heimaslóðir þann 22. desember….

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:26

Ég boða koma mína á heimaslóðir þann 22. desember. Lending kl. 10:55
Óska eftir heimkeyrslu af vellinum með stoppi í Gamla Bakaríinu.

09. nóv. 2005

úff… Heimsástandið er farið að fara í taugarnar…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:11

úff…

Heimsástandið er farið að fara í taugarnar á mér.
Af hverju?
Júbb. Verð bara drulluþunglynd að hugsa of mikið um þetta.

Sko…. Óeirðir í París. Hrikalegt ástand sem er farið að dreifa sér meira um Evrópu. Ástandið þætti súrt í bíómynd með Jean Claude Van Damme sem hetju og risanum Dennis Rodman sem skúrki.
Halldór Ásgrímsson er forsætisráðherra yfir landinu. Hlýtur að vera kalt og einmannalegt djobb með aðeins um 8 prósent stuðning á bak við sig. En kannski selsskinnsskápan haldi hlýju á kalli… veit bara ekki.
George Bush er enn yfir sinni hjörð. Hjörð sem heldur að hún sé heimurin. Fer þess vegna í taugarnar á mér. Hjörð sem áttar sig ekki á því að bandaríski draumurinn er dáinn. Hann dó þegar bensínið kostaði meira á líterinn heldur en kók. Skál.
Ég er orðin yfir mig þreytt á umræðum sem tröllríða öllum matartímum og kaffitímum um helvítis fuglaflensuna. Það er komið nóg segi ég!

Greyið herra dauði. Hann sem einu sinni var ógnandi vera í svörtm skósíðum kufli og með ljá sem glampaði á, er búinn að breytast í vesælan skjálfandi kjúkling!
Púta púta púta pút!

07. nóv. 2005

Hellú… Long tæm nó blog. En svona er lífið. Ne…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:25

Hellú…

Long tæm nó blog. En svona er lífið. Nenni ekki neinu þegar það er orðið svona dimmt úti.

En ég sparkaði svo aldeilis í rasskatið á mér á laugardaginn, bíllinn skildi þrifinn og hananú..! Náði sjálfri mér loksins út um kvöldmatarleytið og tók stefnuna á Löður.
Það tókst nú ekki betur en svo að þegar kom að atriði númer tvö harna hjá þeim þá var stærðarinnar gat á helvítis slöngunni þannig að ég enda á tveim sekúndum öll út í sápu. Eftir mikið fát og fum og einn píkuskræk, þá fatta ég hvernig ég geti nokkurn veginn náð að skola tjöruhreinsinn af, held nefnilega að lakkið fari illa ef hann bíður of lengi. Fór svo bara af svæðinu með skottið á milli lappana með bílinn angandi af tjöruhreinsi og allann út í sápu. Fór þaðan á þvottastöðina hjá Esso, kann á hana.
En svo var ég ógeðslega fúl út í sjálfa mig, meina bara glataður aur að hafa farið þarna…. taldi svo í mig kjarki í morgun til að hringja og kvarta. Held að ég sé með kvörtunarfóbíu ofan á allt annað.
En jæja… þeir voru svona líka almennilegir, hringdi og sagði þeim farir mínar ekki sléttar… hefði farið til þeirra á laugardagskvöldið og það hefði ekki endað vel.
Það tísti í þeim … spurðu hvort að þetta hefði verið um áttaleytið.
Fæ frítt að þrífa næst þegar ég kem þarna.

helvítis… þeir hafa ábyggilega kíkt á upptökurnar til að sjá hvort að einhver hafi vísvitandi skemmt slönguna… og skemmt sér þvílíkt yfir mér.

Knúið af WordPress.com