Ég þurfti að fara í eina af nokkrum verslunum sem selja tuskur hér á höfuborgarsvæðinu til að kaupa regnslár. Ég nennti ekki að eyða einhverjum tíma þarna inni því að ég var nýbúin í vinnunni, svöng, pirruð og þurfti rosalega að pissa þannig að í fyrsta skipti á ævinni ákvað ég að tala við starfsmann, eða réttara sagt starfsmenn í mínu tilfelli. Greip þarna tvær rétt eftir að ég kem inn…. senan er einhvern vegin svona.
Aðalleikarar: Ragnheiður, þreytt og pirruð, stúlka í allt of þröngri blárri peysu, ljóshærð stúlka í blárri peysu.
Ragnheiður: hæhæ… góða kvöldið! Getið þið sagt mér hvar regnslárnar eru?
Ljóska: Já þær eru í húsgagnadeildinni.
R: ha! í húsgagnadeildinni!
Stúlka: neeeei… er það ekki eikkva sem mar fer í.
L: Ég ersko alveg pottþétt á því að þetta er í húsgagnadeildinni.
S: Æi, þúst sem mar er í á versló.
L: Verzló??? en ertu ekki í MK. Hvenær byrjaðir þú eiginlega í Verzló???? *hneyksl*
S: Ég er ekkert í Verzló. Ég er í MK.
L: Bíddu… .af hverju varstu þá eiginlega að segja það.
R: eeheeemmm… regnslár eru eitthvað sem maður klæðist…. svona eins og ponsjó.
L: sko…. þetta er í húsgagnadeildinni!
R: Sko… ég ætla að fara í þetta… ekki klæða stól!
Stúlka: öööö viltu bara ekki spyrja þær á þjónustuborðinu.
Svo héldu þær áfram að rífast….
Ég gat ekki annað en emjað af hlátri loksins þegar ég komst út með regnslárnar… og var nett sama þótt að einhver sæi mig og að ég væri alveg að míga á mig..!