Nöldur og ljótar hugsanir..!

31. ágú. 2005

Hrollur hrollur hrollur..! Haldiði að eitthvað ka…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:27

Hrollur hrollur hrollur..!

Haldiði að eitthvað karlkvikindi sé ekki með lagið úr sturtuatriðinu úr myndinni Psyco eftir hann Alfred Hitchcock sem hringingu í símanum sínum.

Var hann snöggur að svara?

Ónei..! hann leyfði okkur öllum að dást að þessarri súperp hringingu heil heil heillengi.

Ég held að það hafi allir skilning á því ef það verður skítafýla af liðinu hérna upp í vinnu á morgun. Það þorði einfaldlega enginn að fara í sturtu..!

25. ágú. 2005

Skítaskítaskítahelvítisdagur. Úff…. þeir gerast…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:56

Skítaskítaskítahelvítisdagur.

Úff…. þeir gerast varla verri heldur en þessi í dag. Það var bara skotið að mér úr öllum áttum í dag og það var eins og himinn og jörð myndi farast ef þessu eða hinu yrði ekki sinnt á nóinu sko… og svo þegar ég svaraði einum kúnnanum með “nó shit” þá ákvað ég að það væri komin tími á tæm át og sígó. Þegar ég loksins gat drullast heim fékk ég annað skítastress því að ég mundi ekki fyrir mitt litla líf hvenær bensínljósið datt á og ég gat með engum mun sannfært sjálfan mig að það væri nú bara alls ekki fyrir hundrað kílómetrum síðan eins og hann á að komast á. Svo þegar bíllinn byrjaði að hiksta þegar ég var að bakka honum út þá fannst mér það vera út af því að hann væri bensínlaus en ekki bara stressið í mér þar sem ég hafði dælt of miklu bensíni inn á hann og stress vegna þess að ég hélt innilega að ég myndi bakka á bílinn fyrir aftan mig og strjúka alminnilega utan í þá sem var lagt við hliðina á mér.
Ekki batnaði það þegar ég fékk lögguna í rasskatið á mér um leið og ég kom á Vesturlandsveginn. hataðahataðahataðahataða.
Dagurinn var svo fullkomnaður þegar ég kom heim og það var ekkert til í ísskápnum.

Það kæmi mér svo svosum ekkert á óvart að þegar ég fer að sofa að þá hrynji rúmið, það flæðir upp úr salerninu og ég fái eina stóra og djúsí bólu á nefbroddinn.

Held ég fái mér einn öl áður en ég fer að sofa.

Góða nótt.

23. ágú. 2005

isb.is Mér finnst að þessir háu herrar hjá Ísland…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:14

isb.is

Mér finnst að þessir háu herrar hjá Íslandsbanka ættu nú að taka sig til og skjóta markaðsdeildina hjá sér á færi. Nýju auglýsingarnar frá þeim fyrir námsvildina eru frómt frá sagt ömurlegar.
Vilja þeir hjá Íslandsbanka virkilega auglýsa sig þannig að það séu bara frekjuhundar/tíkur viðskiptavinir hjá þeim. Góð ímynd það … ha…!

Ég hugsa að ég gæti bara í fúlustu alvuru kokkað upp við eldhúsborðið mitt flottari markaðsherferð fyrir þá heldur en þetta helvíti.

Bið svo ekki mikið í laun. Bara svo sem eins og eitt prómill af nettó hagnaði síðasta árs eða svo.

En ef skáldagyðjan hittir ekki í mark þá mega þeir alveg láta mig hafa þetta eina prómill.
Ég myndi líka sætta mig við að auglýsingunum yrði sturtað ofan í salernið. En ekki segja þeim það fyrr en ég er búinn að fá aurana. ;)

22. ágú. 2005

Blátt.is Ég keypti mér þessar líka rosalegu fínu …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:21

Blátt.is

Ég keypti mér þessar líka rosalegu fínu gallabuxur um daginn. Dökkbláar og mjög svo smart.
Gleði mín og spenna yfir nýju buxunum var svo mikil að ég dreif mig í þær án þess að skutla þeim í vélina… ó mæ ó mæ..! big mistake..!

Það var sumsé hellirigning úti á buxnavígsludagin og pæju pumaskórnir mínir eru ekki lengur fallega rauðir. Það er búið að bætast við blátt sums staðar. Gæti grenjað af gremju.
Ekki tók betra við… fór á salernið ooooog… setan varð blá.
Það er mjög svo lekkert að vera með bláan botn..!

Annars er það í fréttum að ég bý í Ópavogi núna.
Veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessum málum.

16. ágú. 2005

Einhvern tímann fyrir alls ekki svo löngu síðan va…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:17

Einhvern tímann fyrir alls ekki svo löngu síðan var ég eitthvað að dæsa yfir því að allar snyrtivörurnar mínar hefðu sagt bless á sama tíma.
Þá dæsti önnur og sagði -bíddu eftir að heimilistækin þín fara að láta svona-

Það er komið skrítið hljóð í þvottavélina mína.

Eigið þið valíum ?

13. ágú. 2005

Sýning upp í vinnu í dag og ég stóð mína venjulegu…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:57

Sýning upp í vinnu í dag og ég stóð mína venjulegu vakt.
Var samt ekki með mitt vanalega útlit því að ég fékk andslitsmálun hjá trúboðunum sem mála börnin og búa til blöðrudýr. Var mega pæja með blá lítil blóm og tilheyrandi sem byrjuðu fyrir ofan augabrúnina og lá svo niður á miðja kinn.
Allavegana… þetta vakti mikla lukku hjá hinu kyninu til að kommenta á. Má til að segja ykkur sögu af einum. Hann kemur að barnum og byrjar
-Hey! Eritta tattú
– Nei, þetta er nú bara málað á mig. Viltu bara ekki fá þér svona líka og bendi á staðinn þar sem málarnir eru.
-Nei ég er sko með alvuru. Viltu sjá?
Rífur minn ekki niður bolinn og skyrtunna þannig að á fölri innfallinni bringunni með fáeinum stráum á blasti við elligrænt kínverskt tákn á stærð við lófann á mér ..!
– öööö ahhhh… hey… eeehh… kúl (næ ég að kreista út úr mér) Sný mér við til að ná í gos. Sný mér við og þá er hann eitthvað að hamast við fingurna á sér undir barborðinu og nb. það er úr gleri. Svo skellur það á mér að hann er að taka af sér giftingarhringinn! Og það er voða vesen hjá honum að troða honum í buxnavasann. ha ha ha þvílíkur grínisti.
Hann hallar sér svo fram á borðið, setur upp töffarasvipinn og setur annað augað í pung, eða það sýndist mér á bak þið skítugu gleraugun sem hann er með.
-Hva segirru sæta! Hva á a’gera í kvöld?
Ég glotti bara einu skítaglotti, skellti í góm og sagði að ég hefði séð þetta og benti á vinstri hendina á honum, hélt að maðurinn væri að reyna vera fyndinn. En NEI. Minn varð bara fúll og strunsaði í burt.

Þú harna eiginkona nankinstískuslyssins!!! Veist ÞÚ hvar eiginmaður þinn er?

05. ágú. 2005

Þú þarna á gráu hondunni sem varst að fara Hellish…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 12:55

Þú þarna á gráu hondunni sem varst að fara Hellisheiðina í gær eftir klukkan eitt um nóttina. Hvað ert þú eiginlega að gera á bíl? Ertu búinn að gleyma öllu sem þér var kennt í ökunáminu helvítið þitt?!! Maður lækkar háu ljósin þegar maður lendir yfir aftan einhvern!!! Heldurðu að ég hafi verið eitthvað að djóka þegar ég setti þokuljósið á og byrjaði að blikka þig með bremsunum?!?!?!? En hvað með þegar ég setti stefnuljósið á og fór út í kant. Gjörsamlega blind þó ég væri búin að henda öllum speglum tvist og bast..! Þegar bíllinn fyrir framan þig er á tuttugu og með stefnuljósið til hægri þá er það góð ástæða til að taka framúr. Dóni! Af hverju gastu ekki drullast fram ú þannig að ég gæti látið þig finna aðeins fyrir háu ljósunum..!

Ég var svo hrædd á tímabili að mér varð óglatt. Og áður en ég vissi af var ég farin að tauta # fokk fokk fokk ég verð númer fimmtán fokk fokk fokk?

En ég er greinilega á lífi og varð ekki dauðsfall í umferðinni númer fimmtán.

Það á að skjóta svona lið á færi…!

02. ágú. 2005

Versló.is Góskin gerðist stórtæk og leigði bústað…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:52

Versló.is

Góskin gerðist stórtæk og leigði bústað undir okkur skvísurnar um helgina… enda á þessi elska ammæli í dag og er búin að plana þetta í heil fjögur ár. Hún er búin að vera mjög ströng með það að ólétta og barn á brjósti sé bannað á þessum tímapunkti. Svei mér þá… ef hægt hefði verið… þá hefði hún séð sjálf um getnaðarvarnirnar hjá okkur síðustu tvö árin eða svo..!

Nei nei barasta djókur..!

Helgin var allavegana rosalega flott.
-Útreiðartúr, því eins og Góskin sagði, þá voru typpi bönnuð, en ekki ríðingar.
- Keypti mér bleikar gúmmítúttur. Með blómamynstri… geeeeeððssssveiiiikar!
-Heitur pottur
- Bubbly (freyðivín
-Singstar (og míns fékk barasta yfir áttaþúsund stigin) Þessi sem átti að halda kjafti í skólakórnum og hreyfa varirnar…. vhúúúúhúúúú
-Heitur pottur
-Roosalegur matur
-hmmm…. var ég búin að segja heitur pottur?

Kannski að ég segi aðeins betur frá útreiðartúrnum…
Góskin sumsé pantaði undir okkur allar hesta frá Eldhestum. Eeen hestar sama sem kúkur og vond lykt, þess vegna bleiku gúmmítútturnar. Eeen svo brúkuðust þær bara inn í hesthús.
Þar smelltum við okkur í skærappelsínugula stakka og buxur og stígvél. Rosa sexxý..!
Svo voru valdir klárar undir okkur. Ég fékk rauðhærða hávasna letibykkju með ekkert þefskyn. og já… hann var sísvangur. Góskin fékk stæðilegan fola sem heitir Tyson. tjaahhh…. ég hefði ekki lagt í Tyson sko…. Gnesan fékk nú bara þrusuhest og Eyrún þessi elska fékk Gamla Blesa.
Bensíngjöfin á Gamla Blesa fannst ekki…. sama hversu mikið var reynt.
Minn hestur var svo sannkallaður rassamaður…. barasta með nasirnar í taglinu á hrossinu fyrir framan. Ég reyndi nú eitthvað að ræða við hann um að þetta gæti nú varla verið kursteis hegðun að vera svona með nefið bókstaflega upp í gumpinum á þeim næsta fyrir framan. Hann var nú bara samt ekkert á því að taka þetta til greina. Einnig verð ég að stinga því að að hesturinn sem var mestan part fyrir framan mig var með prumpuveikina.
En það voru ekki bara við vinkonurnar í útreiðartúrnum. Það voru þarna líka einn helgarpabbi með stelpurnar sínar og gimp frá Þýskalandi.
Þýska gimpið var nú baaara aðalspaug ferðarinnar. Greyið, hann heldur ábyggilega að hann sé hipp og kúl þegar hann ýtir sér uuuup og niður uuuuup og niður á baki. Alveg sérdeilis ýktar hreyfingar hjá manninum. Þegar ég rak augun í þetta fyrst, hélt ég að mér hefði bara missýnst, þannig að ég gáði aftur.. og varð bara orðlaus…. eða nei…. gat plokkað “kræst” út úr kollinum á mér. Á nú venjulega flottari lýsingarorð heldur en það. Svo þegar reiðin var búin og við komin af baki spyr einhver af okkur þýska gimpið hvort að hann sé vanur hestamaður. Þýska gimpið stækkaði um heila töttögöogfemm sentimetra… reigði sig allur og tilkynnti með stolti að hann færi á hestbak einu sinni á ári. Ég er að vona að hann hafi tekið hláturgeiflurnar frá mér og búkhljóð sem vott um algera aðdáun..!

Knúið af WordPress.com