Ég er farin í sumarfrí.
Getið skemmt ykkur við þennann á meðan
Bubbles
Ég er farin í sumarfrí.
Getið skemmt ykkur við þennann á meðan
Bubbles
pirr og brunafýla…
Ég fjárfesti mér núna um helgina í ristapokanum frá Myllunni. Ég hélt svo innilega að ristuð samloka með osti og pepperóní væri alveg málið í þynnkunni.
Leiðbeiningarnar segja meðal annars… (ég las þær sko) Samlokan er útbúin með áleggi og sósum eins og hver vill. Auðveldara er að setja samlokuna í pokann með rúnnaða endann fyrst.
-Rúnnaði endi hvað..! Heimilisbrauðið frá Myllunni er nú oftast nær óeðlilega hornrétt..!
Lesist sem ég ætlaði aldrei að koma helvítinu í pokann.
Ristapokinn er síðann settur í brauðristina og samlokan hituð í tvær til þrjár mínútur.
Ég veit ekki hverskonar brauðristir þetta eru í sjónvarpsauglýsingunni. Allaveganna ekki eins og mín. (Samt á ég nú alveg flotta. Krómað glæsitæki frá Philipps sem heitir svo meira að segja Toastissimo..!) Ég ætlaði aldrei að koma kvikindinu ofaní og það var ekki eins og ég hefði verið að hlaða eitthvað inn í grey samlokuna. Tvær ostneiðar og fjögur pepperóní..! Jæja…allaveganna eftir tilraun númer fimm til að kremja hana alminnilega til tek ég það til ráðs að skella bara stóra eldfasta fatinu mínu yfir samlokuna og geng frá á meðan þetta sígur niður í viðráðanlega þykkt.
Júbbb…. hún komst ofaní. Ég ætlaði samt aldrei að ná þessu upp aftur. Fór eitthvað horn á pokanum í eitthvað. Næ svo pokanum upp með smá handlagni og viti menn..!
Ristapokann má nota aftur og aftur eða fyrir 50 heitar samlokur. Ristapokann má jafnvel nota fyrir 100 heitar samlokur ef vel og rétt er farið með pokann en passa þarf að hann t.d. rifni ekki.
Það eru göt á helvítis pokanum eftir hitaelementin.
Samlokan var samt étin.
En hvað gerir maður samt ekki þegar maður er þunnur….
Helvítistryggingaandskotansfélag.
Gott fólk…! Passið ykkur á þessum andskotum.
Ég sumsé hringdi í dag í tryggingarfélagið til að tékka hvort að þau væru ekki búin að fella niður tryggingarnar af bílnum sem tjónaðist um daginn. Af því að þeir eru búnir að kaupa hann.
-Nei… kom svo svarið. Ertu viss spurði hún svo.
–Jáhá… auðvitað er ég viss..! (kommon!)
Svo heyrðist sko í henni kvensu hjá tryggingunum… Umferðarstofa er stundum svo lengi að uppfæra hjá sér Ekjuna sem er svona forrit sem ég sé hver er eigandi og svona að bílum.
–Nújá! Ég veit ekki betur en að við höfum aðgang að því sama. Viltu að ég sendi þér skjámynd? Þar geturðu séð að þið keyptuð bílinn af mér þann 20. maí? (ógeðslega þurr á manninn)
- uuuuu…. ég er búin að fella þetta niður núna.
pirrr….
Regnhlífin virkaði..!
Ef einhver fattar ekki hvað ég á við… sjá færslu fyrir neðan.
Ég sumsé fór í brúðkaup síðustu helgi. Leit ekki vel út með veður… mætir mín ekki á svæðið og hristir regnhlífina, sem keypt var spes fyrir þetta tækifæri, eins og sjaman töframaður og ló and behóld..! það hætti að rigna.
Ég býst auðvitað að nýbökuðu brúðhjónin standi mér í ævarandi þakkarskuld og gott ef ég heimta ekki að frumburðurinn verði skýrður eftir mér.
Auðvitað..!
En já… að sjálfsögðu tókst mér að villast. Einmitt. Dæmigert ha..!
Ég er að spá ef ég fer til sálfræðings og skýri fyrir honum þessa annmarka mína… hvort að ég geti ekki fengið vottorð upp á það að ég megi keyra á móti umferð. Ég sé með frípassa á allar einstefnugötur og að sjálfsögðu megi ég leggja upp á umferðareyjum.
Meina… þetta er jú sannanlega fötlun.!
Bjáninn ég að nýta mér það ekki.
Blessuð…
Ungfrú prófessor skrifar…
Í morgun fannst mér mjög svo sniðugt að þrífa baðinnréttinguna með blautklútunum mínum. Þessum sem ég nota á andlitið sko… ekki blautþurrkunum sem voru bara rétt hjá og eru sérstaklega ætlaðar til þessarra arna. Eftir þrifin arka ég í áttina að ísskápnum til að ná í jógúrt til að taka með í vinnuna.
Þess má geta að ég fór jógúrtlaus í vinnuna, en blautklútarnir mínir eru kaldir og ferskir eftir um það bil tíu klukkustunda veru í ísskápnum. Og já… ég mætti of seint í vinnuna… en innréttingin á baðinu er þó hrein.
Vikan er búin að vera öll á þessum nótum…. alveg ótrúlega viðutan eitthvað.
Ástæðan gæti verið drunkerí sem ég fór á föstudaginn í síðustu viku. Vil samt ekki trúa því að ég sé orðin það gömul að ég sé enn þunn eftir rúma viku. Ó nei!
Aðalfundur staffafélagsins var sumsé haldinn í síðustu viku og var núverandi stjórn kosin aftur. Skil ekkert í þessu… gerðum varla neitt á síðasta ári. En jæja… þangað sækir klárinn þar sem hann er kvaldastur eða eitthvað í þá áttina.
Allavegana ég drakk ótæpilega… hellti niður rauðvíni á drifhvítan dúk og skammaðist mín rosalega. Ég vann þann leiðinlega titil að vera mest vinsæl til að lenda á trúnó með. Kannski þess vegna hin mikla drykkja. úff… heyrði þarna ýmislegt sem ég vildi barasta ekkert hafa heyrt.
Mig rámar líka eitthvað í það að ég hafi verið að rífa kjaft á leiðinni niður í bæ… en ég hef ekki þorað að fara til meðreiðarsveinanna og spyrja hvurn fjandinn ég hafi verið að segja. Kannske tími fyrir það á næsta fyllerí.
Ég er samt að reyna að stramma mig af fyrir laugardaginn og vera húsum hæf því að hún Erla er að fara að gifta sig þá. Þá er nú barasta eins gott og láta ekki eins og einhver prófessor..!
Og þar sem athöfnin fer fram utandyra er ég búin að banna sjálfri mér að hugsa til sólgleraugnanna minna og ég hef ei farið út sokkalaus síðan á þriðjudaginn þannig að hann hangi þurr… samt til að vera alveg örugg, fer ég á morgun og fjárfesti í regnhlíf í stíl við dressið og verð samviskusamlega í lokuðum skóm og í sokkunum.
En ef það rignir á laugardaginn, verður það mér að kenna. Hef þá nefnilega ekki keypt nógu flotta regnhlíf.
ps. óska eftir að helvítis kommentakerfið fari að láta sjá sig…
Knúið af WordPress.com