Nöldur og ljótar hugsanir..!

27. maí. 2005

Helvítis kommentakerfi… Skil ekki í þessu vesen…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:01

Helvítis kommentakerfi…

Skil ekki í þessu veseni… hverfur bara og ekkert í template’inu sem skýrir þetta. Kerfin fín allstaðar annars staðar.

Þetta er sumsé test til að sjá hvort að það drullist inn þegar ég er búin að bölva því.

20. maí. 2005

Af hverju er svona skrambi gaman að sprengja svona…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:37

Af hverju er svona skrambi gaman að sprengja svona kúluplast..?

Ég sat ábyggilega í tvær mínútur í dag og skemmti mér við þetta með þetta rosalega sólheimaglott.
Ég held að ég sé að fara yfir um af stressi yfir of miklu að gera.
Heimta feitt fyllerí af fyrirtækinu þegar þessi törn er búin. Eða vist á heilsuhæli. Þar sem ljóshært vöðvatröll hefur þann eina starfa að nudda á mér tærnar.
Ein hérna sagði að hún væri með brilliant viðskiptahugmynd. Hún ætlar sumsé að kaupa Klepp og selja inn á hann eftir alla þessa peningageðveikisþenslu sem er í gangi þessa mánuðina.

Heyrði meira að segja á skotspónum að þeir á Hrauninu væru að drukkna í of mikið að gera. Bara yfirvinna í gangi sko… og væri bara spurning um að kalla inn einhverja af skilorði.
En þetta er nú bara kjaftasaga.
Sel þetta ekki dýrara en ég stal því..!
__________

Skítt að Selma komst ekki áfram í Eurovision í gær. Mér fannst hún persónulega miklu meira kúl heldur en þessir tveir á gítar með væl. Spurning hvort að Jónsi hefði meikað þetta í ár.
Fyrirhugað partý hefur þó ekki verið blásið af. Það verður sumsé drukkið þegar einhver er með ljótt hairdoo, sítt að aftan, með glimmer í brjóstaskorunni eða tekur þjóðdansastæl á þetta. Líka þegar Gísli kemur með skítleg komment um þjóð sem sigraði í undankeppninni.
Held að ég komi við í apóteki og kaupi treo.

Bara svo að það komi fram þá mun ég halda með Norðmönnum..!

19. maí. 2005

Dramadrottningin skrifar. Sko…. Fórum vestur s…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:18

Dramadrottningin skrifar.

Sko….

Fórum vestur systkinin og kisan á fimmtudeginum í síðustu viku. Keyrðum útaf rétt við Arnarneshamarinn og burri var ekki fallegur. En við á lífi og enginn meiddur og það er það sem skiptir máli. Jú… greys kisa fékk náttla vægt taugaáfall.
Mér mislíkaði einnig herfilega við tryggingarfélagið sem ég er hjá. Þeir komu ekki almennilega fram við mig helvítin af þeim fyrr en einn vinnufélaginn minn tók í þá. Verið ljúfir sem lömb síðan. Bíllinn var svo dæmdur ónýtur í dag, fæ nýjan eftir viku. Ekki samt eins flottan á litinn. En maður getur víst ekki fengið allt sem maður vill.

Fluttum svo út í gær í kastalann. Svaf þar í nótt og grjótsofnaði út frá gardínuhugsunum.
Er búin að fá veðbjeð á kössum og dagblöðum.
En það þarf alltaf að vera eitthvað drama í gangi… einhver hefur hent öllum matnum óvart, eftir að hafa leitað allstaðar tvisvar í gær nennti ég þessu ekki lengur og ákvað að hugsa um gardínur í staðin. Svo í morgun sé ég að það er enginn sturtuhaus í sturtunni… þannig að ég er með táfýlu dauðans núna. Allt hitt er í orden… bara ekki fara úr skónum sko…
Svo fann ég ekki bíllkvikindið í þessu völundarhúsi harna í kjallaranum.
Lúxus maður..! Þarf aldrei að moka snjó af burrus og ef ég er heppin, aldrei að skafa.

Að lokum vil ég segja að svona slys eins og þetta í síðustu viku breytir aðeins sýn manns á lífið.
Ég er hætt að djöflast í einhverjum smáatriðum, en spurning um hvað það endist lengi.

12. maí. 2005

Kræst..! helvítis..! aldrei hef ég lent í því að …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:53

Kræst..!

helvítis..! aldrei hef ég lent í því að blóta mínu eigin nafni.

Ég er farin að reyta hár mitt af pirringi af því að reyna að útskýra fyrir helvítis skíta útlendingum djöfulsins e-mail addressuna mína.

Sparka í einhvern á eftir..!

Iss… ég vissi að það væri ekki hægt að vera hep…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:51

Iss…

ég vissi að það væri ekki hægt að vera heppin lengi.

Vann ekki í víkingalottóinu sko

09. maí. 2005

vúhú..! Það er bara allt að ske sko..! Veit bara …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:51

vúhú..!

Það er bara allt að ske sko..!
Veit bara varla hvar ég á að byrja..!
Eins og kannski dyggir lesendur mínir hafa lesið hér, tók ég dramakast um daginn af því að mér fannst ég barasta vera á götunni. En það er allt komið í góðan farveg. Kem seinna að því.

Fór á miðvikudaginn á tjútt hjá einu fjármögnunarfyrirtækjunum… veita alveg helvíti vel. Góð þynnka daginn eftir…. okkur var svo boðið á Nasa til að halda áfram að tjútta. Þar var ég króuð af að tveimur köllum með bílasölu hér í bæ. Þeir buðu mér vinnu… hló bara… veit að þetta eru krimmar…. en gott fyrir egóið.

Egóið var samt ekki upp á sitt feitasta á föstudaginn… þá hringir í mig kallinn sem ég leigði höllina af, ég hafði nebblega hringt í hann vikunni áður til að fá meðmæli ef á þyrfti að halda, og spyr hvernig gengi hjá okkur að leita að íbúð. “Skítt” sagði ég. Þá sagði hann eitthvað á þá leið að þá myndi hann bara kaupa íbúð fyrir okkur og leiga okkur svo… ég hélt að hann væri að djóka.
En nei… svo hringir hann í dag og býður okkur að koma og skoða íbúð með sér… hann ætlar nefnilega ekki að kaupa nema okkur lítist vel á hana.
Íbúðin er barasta rosalega fín. Öll nýuppgerð og með útsýni yfir sjóinn. Já og hann bauð mér vinnu hjá sér ef ég vildi koma í ríkisstofnunina sem hann er forstjóri hjá.
Ríkisstofnanir borga ekki vel.

Í dag fleygði svo yfirmannsfíflið í mig listaverkabókum sem hann var búin að merkja við myndir sem hann ætlar að láta mála fyrir sig. Ég þorði að spyrja hvað svona kostaði… því að það er ein mynd þarna sem mig langar rosalega mikið í. Hann frussar á móti að vera ekki með neina vitleysu. Hann lætur bara mála þessa mynd fyrir mig!

Þannig á innan við viku er ég búin að fá tvenn atvinnutilboð, málverk og það er búið að kaupa íbúð undir rassgatið á mér.
Geri aðrir betur.

Svei mér þá… ef þetta er ekki tíminn til að kaupa víkingalottó. Þá veit ég ekki hvað..!

08. maí. 2005

hmmmm….

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:46

03. maí. 2005

Mig langar á eftirlaun núna..! En ég hugga mig vi…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:59

Mig langar á eftirlaun núna..!

En ég hugga mig við það að það eru tveir aukafrídagar í mánuðinum.

En greys Frakkarnir. Búnir að missa einn frídag. Alger hneysa finnst mér.

En talandi um frídaga. Það var heilmikil umræða um daginn um hvort að það ætti ekki að færa 1. maí yfir á fyrsta mánudag í maí.
Nei segi ég!
Og hvað yrði þá næst? Jóladagur næstsíðasti föstudagurinn í desember.

02. maí. 2005

Pirr.is Blessuð..! ungfrú pirruð og fúl hérna meg…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:51

Pirr.is

Blessuð..! ungfrú pirruð og fúl hérna megin.

Kellingin sem leigir okkur, hér eftir kölluð *ritskoðað* eða *ritskoðað* þar til mér rennur reiðin, sem verður líklegast aldrei, hringdi í síðustu viku og tjáði mér að það væri búið að selja. Og við út 1. júní. Mér líður eins og við séum á götunni. Drasl.
Erum samt búin að vera úberdugleg að leita. En úrvalið er kannske ekki til að hrópa húrra yfir. Skoðuðum t.d. eina í Vesturbænum. Teppi síðan 1970 og eitthvað? svona brún með brúnu blómamynstri. Ef blómamynstrið hefði ekki verið hefði ég haldið að það væri svona skítugt, og það var gegnsósa af kattahlandi síðustu þrjátíu ára. Og kattasandur út um allann stiga eftir síðasta leigjanda. Oj nei takk.
Kellinginn kom svo í gær til að tala við mig… samræðurnar voru eitthvað á þessa leið.
Kelling: Þú mátt ekki vera fúl eða reið út í mig.
Ég: Nú… en tja… þú ert búin að kenna mér mjög mikilvæga lexíu.
Kelling. Nú hva?
Ég: Að treysta ekki neinum nema mínum allra nánustu.
Ýktari flóttaviðbrögð hef ég sjaldan eða aldrei séð, hún snerist í hálfhring áður en hún áttaði sig.
Svo hélt hún eitthvað áfram að væla… svo lítilvægt að ég hafði ekki fyrir því að leggja gráu sellurnar mínar undir þetta. Ágætis texti eftir Britney Spears er meira aðkallandi. Á nú ekki endalaust pláss sko…
Kelling: ég er líka búin að vera að hringja og hringja og hringja að leita að íbúð fyrir ykkur.
(athugið að hún talar oftast nær á innsoginu þessi ágæta frú. Prufið að segja “hringja” á innsoginu ;) )
Ég: ég er nú ábyggilega með um hundrað manns í þessu að hjálpa okkur.
Kelling: hva! Hundrað manns? Hvernig má það vera?
Ég: tja… vinnustaðurinn minn, vinnustaður hjá bróður mínun og vinnustaðurinn hjá símakallinum. Það er fyrir utan fjölskylduna.
Kelling: (stóreyg) Og vita bara allir af þessu?
Ég: Nú auðvitað er ég búin að segja frá þessu og rekja okkar samskipti.
Kellingin fór núna aftur í hálfhring og tvö skref þess auki.

Hvað heldur hún eiginlega að ég sé..???
Einhver helvítis mús sem hefur yndi af því að taka sig í þurrt *ritskoðað*!

________

Annars er ég bara í því að líta á björtu hliðarnar.
Mig vantar t.d. ekki útlim. Það má alltaf þakka fyrir það.
Strípurnar eru sérdeilis glæsilegar.
Ég á þrjár nýjar peysur, buxur, úr og úberflotta bleika tösku.
Ég hef úr að spila níu nýjum sokkapörum, og enginn af þeim er eins.
Ég á fullt af hár- og andlitsmöskum, brúka þá í baðinu og les Cosmo í leiðinni.
Ég á alveg úberfrábæra foreldra.
Það eru allar neglur heilar og gjordjoss.

Knúið af WordPress.com