Nöldur og ljótar hugsanir..!

27. apr. 2005

Búið að vera bilað að gera. Blogger hefur alltaf …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:08

Búið að vera bilað að gera.

Blogger hefur alltaf frosið því að síðan er svo lengi uppi, og þetta recovery drasl harna upp virkar ekki shitt…

Sögur af Portúgalsferðinni koma kannski seinna, og sögur af helvítis tíkinni sem ég var/er að leigja af..!

19. apr. 2005

Lissabon á morgun…. … og ég er enn að spá í hv…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:05

Lissabon á morgun….
… og ég er enn að spá í hvaða skó ég eigi að taka með. hmmmm.. Boðar ei gott.

Svo er ég full af einhverju helvítis kvefi. Týpískt alveg sko..! Guði sé lof fyrir parataps og nefsprey.

Það bættist í íbúafjöldann í herragarðinum í gær. Símakallinn fékk sér lítin skvísukettling sem er kelin með eindæmum. Ég varð bara abbó…! Mínar hafa sko ekki látið svona… jú.. reyndar… en bara á tyllidögum, og þá þorir maður ekki að hreyfa sig af ótta við að skemma mómentið.
Eeeen Snælda, (kisan sko) sem vílar ekki fyrir sér að elta rottur uppi og drepa. Rottur já! og snýta sér á hundi nágrannans, gólaði af hræðslu í gær við að sjá kisukrílið og hljóp hið snarasta út. Kom svo löngu seinna heim og át allan kettlingamatinn. Auðvitað.

Sambúðin verður fróðleg hugsa ég.

14. apr. 2005

Það er búið að vera svo mikið að gera og mikið ála…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:15

Það er búið að vera svo mikið að gera og mikið álag í allt of langann tíma.
úff…

Ég var að skoða nýjasta Hagkaupsbæklinginn áðan… ég tók mér pásu frá öllu saman. Horfði á sandkassadótið… Ýmindaði mér að ég sæti í sandkassa með skóflu, fötu og sigti, og væri að moka með skóflunni sandinn á sigtið og svo rann sandurinn oní fötuna.

Svei mér þá… leið bara miklu betur eftir þetta.

13. apr. 2005

Á þessum tíma eftir viku verð ég að tékka inn fara…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:55

Á þessum tíma eftir viku verð ég að tékka inn farangurinn fyrir Lissabon ferðina.

Ég hef svona verið að leita að spenningi en það gengur illa. Fékk ekki einu sinni fiðring þegar ég fékk farseðilinn.

Ég er virkilega að reyna að ná upp einhverjum stemmara… meira að segja búin að stefna öllum á hitting á veitingahúsi á föstudaginn í upphitun og bara vúhú við alla…. en er barasta tjah og nahh inn í mér… Var ekkert smá djollý líka þegar ég var að afhenda farseðlana….
úfff… held ég fari til læknis og fái gleðipillur eða eitthvað hjá honum…

Þetta er ekki normalt..!

11. apr. 2005

Ég fór til tannsa í dag… Og auðvitað nærri dauð …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:48

Ég fór til tannsa í dag…
Og auðvitað nærri dauð af stressi… En jæja… þegar ég kem til baka úr hættuförinni um kl. tvö með nesti og sest við skrifborðið, segir sú sem ég sit á móti… “hva! bara í mat núna” þá gellur í þeirri sem situr fyrir aftan hana, “já hvar varst þú eiginlega? Bara öll úfin og tætt og rjóð í framan… fékkstu þér kannski að hahahahaha í hádeginu.
Nei (með fýlusvip) ég var hjá tannlækni. Og nei. Ég reið ekki tannlækninum!

Jebb… úberörg á tannlæknadegi.

Ég og lilli bró fórum í Kringluna um helgina. Svos…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:56

Ég og lilli bró fórum í Kringluna um helgina.
Svosum ekki í frásögur færandi nema að hann er búin að taka upp á þeim ósið að garga alltaf, spyrna löppunum í og taka svo fyrir augun þegar ég er að leggja.
Ég fékk nóg í gær. Negldi niður á punktinum og rak hann út med det samme.
Lagði bílnum. Rauk svo út og frussaði á hann hvor okkar það væri eiginlega sem hefði flekklausan ökuferil???

Hann sagði ekki mikið eftir það.

08. apr. 2005

Ég er sko ekki eins hugrökk og ég hélt. Kattarkvi…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:47

Ég er sko ekki eins hugrökk og ég hélt.

Kattarkvikindið dró inn fuglskratta í gær…

Það er samt eiginlega skemmtilegra að heyra þetta frá mér sjálfri… þá get ég komið með leikræna takta og sagt frá því þegar helvítis skógarþrösturinn tókst næstum því að fljúga á mig þegar ég var að kanna hvar nákvæmlega hann var undir rúminu.
Get líka meira sýnt svipinn sem fuglinn sendi mér… frekar skelfilegt augnaráðið á kvikindinu.
Þá get ég líka sagt betur frá því þegar ég hljóp gólandi af hræðslu inn i mitt herbergi og lokaði að mér. Hlífi samt viðstöddum við að reyna ná píkuskræknum. Held að ég mynndi ekki ná því einu sinni.
Get lýst því betur og dramatískara þegar ég hringdi í lilla bró í angist minni og hann sagði mér, með tón, að þetta væri bara fugl. BARA..! Ekkert helvítis gagn af honum.!
Komið með betri lýsingar á því hversu mikið fuglskrattin barðist um eftir að ég var búin að koma honum í poka. Og já…. ég gólaði allann tímann. (ekki stolt)
Get betur sagt frá því í hvílíkri andskotans klemmu ég var í … fugl í poka út á palli og ekki sjensinn í helvíti að ég myndi reyna að drepa hann. Þó það hafi hvarflað að mér að ná í kúst og murka úr honum líftóruna… en gat það bara ekki.
Reynt að lýsa svipnum á syni nágrannans þegar hann var búinn að herða sig upp í það að opna pokann til að drepa fuglinn… og enn kostulegri svipur þegar fuglinn hoppaði upp á hausinn á honum skrækjandi og klórandi og flaug svo í burtu. Ég gólaði… auðvitað.

Þarf nokkuð að taka fram að ég reykti tvær í röð eftir þetta allt saman..!

og já… kötturinn er ekki í náðinni.

06. apr. 2005

*TILKYNNING* Smileys í kommentakerfinu virka núna…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:24

*TILKYNNING*

Smileys í kommentakerfinu virka núna.

Víííííí…!

Tók mig bara tvö ár að fatta villuna í kerfinu… en það er önnur saga.

týpískt.is Einhvern tímann í fyrndinni vældi ég y…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:19

týpískt.is

Einhvern tímann í fyrndinni vældi ég yfir því að vinna aldrei í svona sms leikjum.
Jæja ég vann núna… bíómiða. Tvö meira að segja.
Ég er búin að fara á myndina.
Týpískt…

04. apr. 2005

*skítaglott* Það kom hérna ungur maður og spurði …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:26

*skítaglott*

Það kom hérna ungur maður og spurði eftir starfsmannastjóranum…. hann var nú farin heim þessi elska og ég svona líka góð við hann að bjóðast til að taka skilaboð og svona…
Hurru..! minn maður roðnar þetta líka rosalega… og tafsar og leitar í vösunum… og réttir mér lítil kort… spyr hvort ég væri þá ekki til í að dreifa þessu fyrir hann.
Jú jú ekki málið…

Þetta voru boðskort á strippbúllu hér í bæ.

Hverju átti hann eiginlega von á..?
SATAN!
Vík burt úr mínum húsum..!

Hugsaði mér auðvitað glott til glóðarinnar þegar ég sendi út póst um það að hægt væri að nálgast boðsmiða á stað sem byði upp á brjóst… og sjá hver væri nú hugrakkur að sækja þetta til mín.
Mwwuuuaaahahhhahaaa!

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com