Nöldur og ljótar hugsanir..!

31. mar. 2005

Hafið þið séð Spaceballs the Movie? Allavega… é…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:43

Hafið þið séð Spaceballs the Movie?

Allavega… ég er búin að vera með þessa senu á heilanum í meira en viku.

Lone Star: Checking in??
Barf: Ifff hofff oyaww hiffeefff mmaa uggagge.
Lone Star: Whaa…!
Barf: (spits out) It’s her royal higness’s match luggage!

Í tilefni þess að einn ferðafélaginn var enn og aftur með meiri farangur heldur en hinir þrír til samans.

Páskarnir jeddúddamía hvað það var yndislegt að k…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:07

Páskarnir

jeddúddamía hvað það var yndislegt að komast vestur í smá tíma.

Helstu afrek helgarinnar voru:

  • Söng í Singstar (er falskari en andskotinn) og tókst bara vel.. en það gæti verið að heil rauðvínsflaska spili þar eitthvað hlutverk.
  • Bauð í mat á fimmtudaginn og eldaði þessa líka svaðalegu súpu. Sumir fóru emjandi frá matarborðinu.
  • Fór á tjútt á Írafár. (dansaði allann tímann)
  • Aldrei fór ég suður tónleikarnir.
  • Fór á leiksýningu. Gísla Saga Súrssonar, einleikur með Elvari Loga Hannessyni. Sérdeilis flott.
  • Pictionary. Allt að koma hjá undirritaðri þrátt fyrir takmarkaða teiknihæfileika undirritaðrar. Fékk líka hrós fyrir að vera hætt mínu söngli á meðan leik stendur.
  • Eldaði páskamatinn.
  • Þreif burruss (afrek. Alveg satt..!)

En ég verð að játa að ég var búin að steingleyma hversu yndislega snyrtilegur og hreinn Sjallinn væri. Og hvað starfsólkið þar er rosalega glatt, kurteis og elskar mikið að vera í vinnunni sinni. Held að ég hafi bara aldrei lent í jafn brosmildu liði og þar. Og ekki má gleyma hversu allt er ossalega ódýrt hjá þeim. já já…

ps. NOT!

30. mar. 2005

Note to self: Ekki fara drukkin í tölvuna. Færsl…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 09:30

Note to self:

Ekki fara drukkin í tölvuna.

Færslan hér að neðan fær að standa. Bara svona til að minna mig á að áfengi og blogger fer ekki saman.

26. mar. 2005

víííiiiiií! ég féro í Singstar og söng. mörum sinn…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 04:38

víííiiiiií! ég féro í Singstar og söng. mörum sinnum meirað að segja.
Ferlega típsí núna… er að afarra að lúlla.

Það á að banna ehvlítis pinnahææla einso go onnur viopn,.
Érað drepastí ristinnni. hlevíitsi kunta á djföfusuins pinnahæl.

úff.f.. hvað ér ég eiginlega að geraí tölvunni.

Gó nó.

22. mar. 2005

Hvar í helvítinu er kommentakerfið mitt..????!!!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 19:29

Hvar í helvítinu er kommentakerfið mitt..????!!!

Well hellú..! Long tæme nó blogg. Var þetta fína …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:49

Well hellú..!
Long tæme nó blogg.

Var þetta fína innflutningspartý í herragarðinum á laugardeginum. Bjó til c.a. 200 jello-shots sem runnu ljúflega niður þegar á leið. Man nú ekki hver í andskotanum það var sem sagði mér að nota bara vodka. Bara vodka..! Mér leist nú ekki alveg á það og blandaði 50/50 vodka og vatn. Samt var þetta drullusterkt. Og síðast en ekki síst. Þynnkuvaldandi… ó boj ó boj.

Svo var þetta bara eins og jólin hjá mér. Gestirnir mínir voru mjög svo yndislegir. Fékk blóm, rauðvínsglös, karöflu og síðast en ekki síst baðdóterí.
Hugmynd að gera þetta bara sem oftast. Sendi þá bara ljósrit af völdum síðum úr Ikea bæklingum um hvað mig langar í … Geri það er mig langar ekkert lengur til að eiga þessa vini mína.

Glansinn af nýju íbúðinni er farinn. Það er búið að setja kvikindið á sölu þannig að núna er endalaus straumur af einhverju pakki að koma að skoða. Dvölin þar styttist líka í annann endann. Förum út 1. sept. En samt er ég voða ánægð að vera komin af Hverfisgötunni. Verður að játast. Keyrði þar fram hjá í síðustu viku. Ótrúlegt hvað það er fljótt að koma svona tómur svipur á hús.

En annars þá eru páskarnir framundan og fer ég keyrandi vestur á morgun. Minn elskulegi burruss er núna inn á verkstæði, það var komið einhver kvörtunartónn í hann. Þori barasta ekki að taka einhvern sjens með hann. Þó að það sé bifvélavirki með í för. Held að hann geti ekki gert við hann með háhæluðu skónum mínum. Þó þeir myndu duga sem ágætis hamar..!

Jæja… leiter.
Þarf víst að gera eitthvað. Kúnnarnir kalla alveg jafn mikið á athygli þó ég nenni þeim ekki og langi mest bara að hanga í tölvunni.

16. mar. 2005

Framtíðarsýnin.is Fyrst sæki ég um að komast að í…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:30

Framtíðarsýnin.is

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg.
Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum. Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega.
Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island…. en þar endar það með að við hættum saman, því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..
Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.
Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða öllu.
Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til…. vá hvað það verður allt fínt hjá okkur!
Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri. Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt.. þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

14. mar. 2005

Deilir… Ég er orðin svo upptekin af því að dánl…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:57

Deilir…

Ég er orðin svo upptekin af því að dánlóda því sem mér langar í að ég nenni varla að blogga lengur… tja… ekki eins og ég hafi gert það heima hjá mér undanfarið… en varð að koma með einhverja afsökun….

Fórum tjellingarnar í vinnunni á fjórhjól og svo út að borða á föstudaginn. Fjórhjólaferðin var svívirðilega skemmtileg..! langar aftur þarna og þá um sumar þegar allt er í blóma… og kannski minni hætta á hori lengst út á kinn. ;)
Og verð ég að minnast á það að ég var ekkert þunn daginn eftir. Ekki neitt! Stór og mikil framför það…! sei sei já já.

Svo er ætlunin að halda smá partý á laugardaginn og sýna herragarðinn.
Hitti áðann nágrannann og sagði honum að við myndum bjóða liði hingað heim á laugardaginn næsta…. (bara til að vera kurteis) Heyrist þá ekki bara hjúkkett í kalli. – ég hélt að þið væruð eitthvað skrítin!- sagði hann. Heyrist ekkert í ykkur…

Jæja Sorvævor er að fara að byrja.
leiter…

10. mar. 2005

Baugar.is Mér sýnist á öllu að meira en viku svef…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:34

Baugar.is

Mér sýnist á öllu að meira en viku svefnleysi sé farið að taka sinn toll og svei mér þá ef mitt rétta andlit er ekki farið að sýna sig.

Ekki er það fagurt.

Mér er orðið svo skítsama einhvern vegin og ef mér finnst eitthvað, vellur það út. Sían frá því sem ég hugsa og því sem ég segi er horfin. Held að hún hafi gefist upp á of litlum svefn og sé farin í verkfall.

Bomba nr. 1 í dag

Fyrsti kúnninn sem hringdi inn í dag kl. 9:00:38 bað um söludeild. Þegar ég sagði honum að þeir opnuðu kl. 10 fékk ég hinn margtuggna djók

-Hvaaaa voðalega fá þeir að sofa lengi út þessir strákar! og eitthvað lásí fliss á eftir.

Mér var ekki hlátur í hug og sagði því ekki neitt. Þegar þögnin er orðin þrúgandi eftir hláturrokuna í kúnnanum spyr hann eitthvað á þessa leið

- Hvaa finnst þér þetta ekki fyndið.

–Veistu nei. Ég er búin að heyra þennann sama brandara þrisvar á dag síðastliðið eina og hálfa árið. Hann var ekki einu sinni fyndinn í fyrsta skiptið.

Tók skilaboð.

Bomba nr. 2 í dag.

Það er búið að vera fjandanum verra að ná inn í eina deild núna undanfarið.

Hringir einn alveg snar. Með kjaft að hann væri búin að reyna alla vikuna að ná inn í þessa deild. Ég reyni hvað ég get. Segi honum öll bein númer og býðst til að taka skilaboð. Hann heldur áfram að hrauna yfir mig og klykkir út með

- Hvað er þetta eiginlega! Er enginn að vinna í þessu skítafyrirtæki?

Þarna missti ég mig…

– Bíddu. af hverju í djöflinum ertu að andskotans í mér? Ég er búin að reyna hvað ég get og þú svoleiðis drullar yfir mig..!

Arg!

Bomba nr. 3 í dag.

Hringdi í lækninn sem ég fór til í síðustu viku, af því að ég er ekkert að lagast. Hann ákvað að setja mig á sterapúst. Kostar bara fimmþúsund krónur sagði hann. Bara.
Yfirmaðurinn minn kom stuttu síðar til að hleypa mér í mat. Tók kast á hana greyið og gargaði hvað mér finndist helvíti blóðugt að vera eyða stórfé í einhvern helvítis lækniskostnað af því að það var verið að lakka helvítis húsið.
Hún ætlar að endurgreiða mér.
Fínt.

Bomba nr. 4 í dag.

Einn af sölustjórunum sem er í því að selja dýru og fínu bílana kom alveg helvíti fúll af því að ég hafði sett vitlaust símanúmer á skilaboð til hans. Tók bara kast á móti og hvæsti á milli tannanna að fyrst að þetta lið væri svona snobbað og vitlaust að hringja alltaf hreint úr prívat number, þá ætti það að minnsta kosti að vera nógu gáfað til að gefa upp rétt númer.

ps.
Maður prumpar fúlt að því að borða of mikið að rauðum xylitol Ópal.

09. mar. 2005

Ja hérna hér. Ég er alveg viss um að ég hefði ge…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:49

Ja hérna hér.

Ég er alveg viss um að ég hefði getað höndlað þetta betur… en jæja…

Það kom hérna viðskiptavinur, kona… ekkert mikið eldri en ég.
Hún spurði hvar verslunin væri og ég sagði að hún væri á annarri hæð. Bara að fara upp stigann og hún sæi um leið hvar hún væri.
Hún hverfur sjónum… kemur svo aftur og spyr hvort að hún megi ekki nota lyftuna. Jú jú alveg sjálfsagt. Kemur svo aftur og spyr á hvaða takka hún eigi að ýta. Ég brosi og segi fyrir aðra hæð. Hún hverfur… kemur svo aftur með svip og spyr hvort að ég sé alveg viss… sami svipur og litla frænka mín setur upp þegar henni finnst bræður hennar vera að bulla.. og helst prumpa í leiðinni. Efri vörin svona brett upp til annarrar hliðar.
Jæja ég gat ekki orða bundist… andlitið datt af mér… svo gat ég hóstað upp úr mér að það væru bara tvær hæðir í húsinu. Það væru ekki margir möguleikar í þessarri blessaðri lyftu.

ps. hún var ekki ljóshærð.

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com