Nöldur og ljótar hugsanir..!

23. feb. 2005

Help, I need somebody, Help, not just anybody, H…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:21

Help, I need somebody,
Help, not just anybody,
Help, you know I need someone, help.

Það rignir inn núna á hotmailið mitt fyrirspurnurm frá hinum og þessum að skrá sig í sms.ac og þá geti ég haft samband við allann heiminn frítt.
já já ég er búin að skrá mig…
já já ég klikka á linkinn sem beðið er um…
eeeen það gerist ekki shit!

22. feb. 2005

fliss… Ég er að vinna með svo miklum gullmolum …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:21

fliss…

Ég er að vinna með svo miklum gullmolum hérna…
Verð að deila með ykkur smá samtali sem ég átti við einn hérna í dag.

Ég sumsé fór á betliskóna til að fá stórann burruss lánaðann í næstu viku fyrir flutningana… þótti það nú lítið mál. Fékk hamingjuóskir með það að vera laus við höllina…
-En hvernig er það eiginlega Ragnheiður… ætlarðu ekki að kaupa þér bara?
–Nibb…. ekki fyrr en ég er komin með kall.
-(útumnefiðfnæs)þú verður að passa þig á þessum helvítis kallpungum Ragnheiður mín.
Reynsluaka þá í minnsta kosti ár áður en þú ferð að búa með þeim. Við getum nebbla verið svo andskoti lúmskir haaa… haldið okkur bara alveg eins og englum í fleiri fleiri mánuði. (kaffisopaslurp) og tjaa… það þýðir ekkert að tala við mömmur okkar… þær þekkja okkur samt best…. jááá (áinnsoginu) við erum bara einhverjir gullrassar og þið greyin eru bara einhverjar peningagrafarahórur tilbúnar að stela stráknum þeirra frá þeim.
–[hmmm... þetta er orðið soldið súrt]uhu..
-jáhá Ragnheiður mín… mundu þetta þegar þú nærð þér í kall. Já og sýndu mér hann bara og ég skal segja þér hvernig hann er. Tek hann bara út.
– jebb ég skal gera það.

Úff.. mér er nú sama, svo fremi sem hann reynsluaki honum ekki

17. feb. 2005

Má til að kvarta aðeins. Hvað er að svona símasöl…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 10:44

Má til að kvarta aðeins.

Hvað er að svona símasölufólki sem hringir í fyrirtæki og biður um heimilisfang..!!!
Kommon..! og líka um póstnúmer! ARGH!
Þetta lið er með tölvur fyrir framan sig. Með símanúmerið líka. Það var að hringja.
Hefur þetta pakk aldrei heyrt um símaskrá.is????

fnæs.

16. feb. 2005

ví..! Fengum í gær leiguíbúð í Grafarvoginum. Ekk…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:34

ví..!

Fengum í gær leiguíbúð í Grafarvoginum. Ekki búið að vera skemmtilegt að leita núna undanfarið… hef fengið þau svör að við séum of ung og vilji ekkert vesen og partýstand. Hefði átt að bjóða þeim nágrannana mína, sem líta út fyrir að vera fertugir og það er eilífðarpartýstand á þeim.

Helstu details eru:
Huge stofa
Pallur
Þvottahús
Rosa skápapláss
Sérinngangur
og síðast en ekki síst. Baðkar.

Gallarnir eru að íbúðin fer á sölu í sumar þannig að við verðum að fara í nóvember.
Kostirnir eru að komast úr dópistabæli í 101 Skítavík.

ps. pant fá baðkúlur í innflutningsgjöf

14. feb. 2005

svart kaffi Já… síðasta helgi var rosaleg svona…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:59

svart kaffi

Já… síðasta helgi var rosaleg svona eftir á… sérstaklega þegar litið er til þess að oftast nær hangi ég yfir teve.

Ég lét mig hafa það í fyrsta skipti á laugardaginn að drekka svart kaffi. Held að það hafi samt fylgt stemmingunni. Fór til Þorlákshafnar með dekk og Anna systir var inn í hesthúsi. Bleksvart kaffi, frost og hross passa einhvern veginn saman eins og flís við rass.

Fór í þrítugsafmæli á laugardaginn, drakk aðeins of mikið. Aðeins.
Fór út að reykja með einum. Hann talaði bara um hvað hann væri ógeðslegur, hvað hann væri búinn að sofa hjá rosalega mörgum konum. Konuna sína sem var hrein mey þegar þau kvæntust. Hvað hann væri ógeðslegur. Gamlar frægðarsögur. Djöfull var ég snögg að reykja..!
En ég held að ég hafi verið heppnari en aðrar sem fóru með honum út að reykja. Hann talaði víst bara um typpið á sér. En jæja… angi af sama meiðinu.
Rúlluðum svo niður í bæ…
Þar kallaði einn á mig…
-Blessuð!
— ég eikkva… Hæhhh… ertu Fhlahteyringurh?!
-Ummm nei. Ég er að vinna með þér Ragnheiður.
Ég fór og fékk mér vatnsglas. Tvö.

Inn á skemmtistaðnum, sem var troðin og dansað ansi þétt við lögin sem voru í uppáhalds þegar ég var þrettán til fimmtán, sá ég einn sendil sem kemur hérna svona c.a. þrisvar í viku í mjög svo erótískum dansi við annann karlmann. Hann kom svo og heilsaði upp á mig, var með kæk sá ég… hann glamraði giftingahringnum við glasið.
úfff… fékk mér drykk.

Kom heim um sex með frosið nef, frosin eyru og frosin læri… þiðnaði einhvern tímann upp úr átta. Eyddi svo sunnudeginum í þynnku, dást að nýju fjólubláu!!! skónum mínum sem ég keypti þann dag á útsölu og bölva Skjá1 fyrir að bjóða upp á fótbolta þegar ég væri þunn.

10. feb. 2005

Crazy in the brainhouse! Nöttkeisið sem byrjaði…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:45

Crazy in the brainhouse!

Nöttkeisið sem byrjaði að hringja hérna inn rétt um fimm er alveg búin að bjarga fyrir mér deginum..!

Frúin sú getur ekki lokað hurðinni á kagganum sínum og heldur í alvurunni að samstarfsmenn mínir svari símanum á 0,2 sekúndu, hringir svo alltaf aftur í mig. Konulufsan. Já hún heldur virkilega að þar sem hún borgi ógurlegar upphæðir í kaskó eigi hún rétt á þjónustu strax..!

Ég er nú eiginlega bara alveg sammála henni. Mér finnst að tryggingarfélagið mitt eigi að sjá um bílinn minn. Þrífa hann, sjá um þjónustuskoðanir og rúðuþurrkur og ekki síst að gefa honum að borða, ég meina… eru ekki olíufélögin og tryggingarfélögin öll í samkrulli..!???

Já… og fyrst að tryggingarfélagið getur séð svona vel um bílinn minn þá finnst mér bara sanngjarnt að það þrífi húsið mitt!

09. feb. 2005

Nammið búið. já.. er búin að segja þetta í ófá …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:47

Nammið búið.

já.. er búin að segja þetta í ófá skipti núna eftir kl. hálf fimm.

Hvorki meira né minna en 16 kíló af karamellum fór ofan í krakkana sem komu hérna í dag. Samt var ég með yfirkaramelluskammtara hjá mér.

Ég hefði ekki lifað af daginn ef ég hefði ekki fengið karamelluskammtarann minn. Sú var aldeilis hörð á því að enginn fékk fleiri en fjórar. Ég er aðeins gjafmildari þannig að það var bara gott.

Held samt að rúmt hálft kíló hafi farið í einn sölumanninn hérna. Hann potaði líka bara í matinn í hádeginu og svei mér þá ef hann er ekki orðinn grænn í framan. Fer honum ekki vel, verður að segjast.

Lag dagsins í dag var ekki Bjarnastaðabeljurnar. Heldur íslensk útgáfa af Adams family þemalaginu. Man ekki textann rétt, en hann er um apa sem vill ekki borða grautinn sinn, vill frekar fá banana.

bananana, bananana na na na….

En það kom einn lítill kútur með sjóræningjahatt, rétt náði upp fyrir borðið og bað um að segja brandara í staðinn fyrir að syngja.

Þeir voru eitthvað á þessa leið.

*Hvað kallarðu typpið á þroskaheftum manni?

-Kjánaprik.

*Hver er munurinn á asískri konu og pizzu?

-Það er hægt að týna sveppina af pizzunni.

Alveg eftir mínum húmor og strákarnir hérna eru sollis búnir að liggja emjandi yfir þessu…. en kommonn… hver kennir sex ára strákpjakk svona húmor.

Má ég þá frekar biðja um tómatabrandara.

Bleika hárkollan vakti lukku, þó sum börn spyrðu eftir bleika pardusinum.

Sé til hvað ég geri á næsta ári ef ég verð hér enn.

Einn hérna spurði hvort að ég væri að leiku Jennu Jameson með þetta bleika hár. Úff… kommon enn og aftur … hvað er að liðinu … hefur það aldrei heyrt um Latabæ og Sollu Stirðu..?

Ég sagði nú nei… reyndar ekki. Hefði þó brjóstin í það… eða hvað héldi hann… hehe… hann varð eins og tómatur í framan.

Jæja ég er búin að leggja kollunni og laga hárið sem var auðvitað skelfilega flatt eftir daginn.

Minnkaði líka aðeins meiköppið.

Ætla fá mér rauðvín og sushi….

banananana bananana bananana na na na

08. feb. 2005

Allt að ske… Komin með nýja burrussinn. Fór …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:47

Allt að ske…

Komin með nýja burrussinn.

Fór á Sálarball á laugardaginn með Góskinni (mitt fyrsta, örugglega ekki það síðasta)

Lenti upp á kant við einn yfirmann hérna.

Fór að grenja. (Mest fúl yfir því)

Fór til yfirmannsins míns og klagaði (stolt af því bara)

Keypti mér tvær íþróttapeysur, ein er hvít (auðvitað)

Það er bleik!!! hárkolla á skrifborðinu mínu sem brúkast á morgun ásamt mínu mest áberandi málningardóti á morgun. Fróðlegt að sjá … rosa móttaka með ráðherrum og svona seinnipartinn.

æi… skítt með það.

Langar í valíum fyrir morgundaginn.

Bjarnastaðabeljurnar þær baula mikið núna

Þær eru að verða vitlausar

Það vantar eina kúna

en það gerir ekkert til, það gerir ekkert til

hún skrapp bara aðeins á klósettið!

03. feb. 2005

Dísess…! Ég og minn stóri kjaftur. Ég er e…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:41

Dísess…!

Ég og minn stóri kjaftur.

Ég er eikkva pirr núna… það er búið að vera svo brjálað álag hérna upp í vinnu, mannekla, liðið á námskeiðum eða heima í flensu…

Varahlutaverslunin er búin að vera sérstaklega erfið í dag með símann og svo hringir hérna einn og biður um varahluti og ég eikkva… þeir eru allir í símanum, viltu hinkra eða á ég að biðja þá um að hafa samband, en ég veit ekki hversu lengi þú þarft að bíða, það er svo erfitt að ná inn núna. Þetta er orðið verra heldur en hjá Ingvari Helgasyni, get svo svarið það (þetta síðasta á innsoginu á mér. Alveg til marks um hvað mér er niðri fyrir. Þoli ekki kvensur sem tala á innsoginu)

Svo heyri ég bara fliss í kúnnanum… svo hlátur, skellihlátur. Kíki á númerabirtirinn og kannast heldur betur vel við númerið… Jæja hann nær andanum og stynur úr sér að það þýði lítið að láta hringja í sig. Hann sé nebbla í varahlutaverslun Ingvars Helgasonar.

..!

01. feb. 2005

piffff…. Ég horfði á Lenó í gær á Skjá 1 þar …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:25

piffff….

Ég horfði á Lenó í gær á Skjá 1 þar sem ég vissi að hann Kífer næstum því vinur minn var hjá honum. Kífer alltaf flottur… en ég varð barasta sármóðguð fyrir okkar hönd þegar ekkert há dú jú læk æsland spurning kom frá Lenó.

Hvað á þetta þýða spyr ég bara? Kífer var jú hér yfir áramót. Auðvitað á maðurinn ekki að tala um annað næstu sex mánuði eða svo.

Hvað með það þó að hann sé að verða afi..? Það er ekki neitt miðað við Æsland..!

Hvað á það líka að þýða hjá manninum að verða afi..! Ég meina… ég hefði getað farið út í mínum flottasta brjóstabol og með bleikasta glossið mitt og hitt Kífer og já… en ég meina… ég deita ekki menn sem eru orðnir afar…

Það er sko alveg off..!

Knúið af WordPress.com