Glöggt er gests augað.
Ísafjörður! Bezt í heimi!
Jebb… hef alltaf sagt þetta við alla sem hafa spurt mig um hvernig sé nú að búa fyrir vestan. Og mun að sjálfsögðu halda því áfram um ókomna tíð.
En það verður að játast að rósrauði bjarminn dofnaði aðeins yfir þessa viku sem ég var fyrir vestan.
Vegagerðin þarna fyrir vestan eru nú meiri helvítis liðleskjurnar. Ég efast stórlega um að það yrði liðið ef t.d. færðin á milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar væri jafn hrikaleg eins og hún var á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Það er eins og þessir kónar hafi aldrei heyrt minnst á salt og hvað þá á sand! Eitt kvöldið þegar ég skrapp til Góskarinnar minnar hélt ég í alvurunni að þetta yrði hreinlega mitt síðasta, hálkan var það rosaleg. Keyrði allann tímann með hendurnar á tíu mínútur í tvö á stýrinu, þorði ekki einu sinni að skipta um gír, svo varð það agalegt þegar mig byrjaði að klæja geðveikislega í hnakkanum og ég þorði ekki að sleppa stýrinu í þær fáeinu sekúndur sem hefði tekið mig að laga ástandið.
Búðareigendur þarna fyrir vestan vita líka lítið hvað salt er. Ég sá eina frú sem var næstum því búin að drepa sig á marmaratröppunum hjá Símabúðinni, og það má líka minnast á að þetta er líka inngangur í Íslandsbanka.
Ísafjörður er loksins búinn að fá kaffihús. Loksins! En það þyrfti aðeins að taka sig á hvað varðar kaffið. Þegar ég fæ mér Kaffi Latté vil ég fá KAFFI, ekki bara mjólkurfroðu, samt þori ég aldrei að kvarta.
Á Ísafirði er, því er nú andskotans verr og miður, einn maður með allt skemmtanalífið á sínum snærum. Þegar ég kom á Ísafjörð leit Pizza 67 virkilega illa út. Matarslettur út um allt og svei mér þá ef það var ekki bara uppþornuð æla og skemmtilegheit í einum glugganum við bekkina. Ég hafði enga löngum til að kíkja þarna inn núna. Staðurinn minnti mig all ískyggilega á rónastað sem er rétt hjá mér. En svei mér þá, held að það sé hreinna þar.
Enn af þessum blessaða pizzastað, ég og Anna systir pöntuðum okkur pizzu eins og vaninn er hjá okkur á Þorláksmessu. Stór pizza með tveimur áleggjum kostaði okkur 2300 kr. 2300 kr.!!! Bara að gamni mínu hringdi ég í Pizza 67 í Tryggvagötu og þá kostar þar stór pizza með tveimur áleggjum 1290 kr.
Það er líklegast svona dýrt að flytja hveiti vestur, talandi ekki um pepperoni, já og laukur vex líka ekki bara út í glugga.
En ætli þetta sé ekki frekar bara samkeppnin, eða eins og þarna alls enginn samkeppni.
Við ætlum að kaupa okkur á Thai Koon næst. Við vorum bara aular að gera það ekki þá, maturinn er líka frábær og kostar alls ekki mikið. Minna en í borginni ef eitthvað er.
Og hvað er málið með Sælurnar sem voru alltaf svo góðar í Krílinu. Fékk mér svoleiðis í sumar og hefði getað grenjað af vonbrigðum, efast um að þetta sé bara eitthvað nostalgíukast í mér.
Jæja, nóg komið af tuði.