Nöldur og ljótar hugsanir..!

30. nóv. 2004

bull.is iss… jæja… ég fór með vinnunni á jó…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:46

bull.is

iss… jæja… ég fór með vinnunni á jólahlaðborð á laugardaginn. Byrjuðum hérna upp í vinnu á fordrykk, þar sem sumir fengu sér aðeins of mikið… en ég passaði mig…

Hlaðborðið var bara fínt en ég og hin sem erum saman í staffastjórninni vorum orðnar pínu stressaðar þar sem mikið veikindi hrjáðu maka þeirra sem komu. Það endaði með því að kokkurinn sagði okkur að taka því rólega og gaf okkur eftir verðið til þeirra sem mættu ekki.

Laddi var með “sjów” og er óhætt að segja að kallinn hafi farið á kostum…! :)

En þar sem hljómsveitin sem var þarna var … frómt frá sagt ömurleg, fórum við flest öll á Gaukinn.

Einhvern veginn byrjaði kvöldið ekki vel þar. Ég var klipin í rassinn á fyrstu tíu mínútunum. Andskotinn. Fór svo seinna á barinn og þar var einn sem ætlaði að vera svo góður að strjúka á mér hárið. Og helvítið festi puttana á sér í kollinum á mér. Djöfull..! Dúið farið til andskotans. Fór á dansgólfið til vinnufélaganna þar sem einn greip í trefilinn sem ég var með um hálsinn og togaði..! Hann var svo fullur að hann fattaði ekkert að hnúturinn var þannig að þegar togað var í hann þá hertist að hálsinum á mér. Á endanum voru tveir að reyna að losa hann af mér. Og tröðkuðu auðvitað alveg herfilega á tánum á mér. Ég rauk á barinn og fjárfesti mér í einum Breeser, sem að sjálfsögðu bætti ekkert skapið, þegar þarna var komið var kvöldið ónýtt, mér var orðið illt í maganum og skapið ekki upp á sitt besta. Þannig að ég spæsti á mig leigara og hundskaðist heim um tvöleytið.

Ótrúlegt en satt, þá var ég ekkert þunn á sunnudaginn. Það eina sem hrjáði mig var marin stóra tá og feitt rautt kyrkingarfar á hálsinum á mér. Pirr…

26. nóv. 2004

Arrgh!!!!! Ég er búin að eyða rúmum fjórum tímu…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:40

Arrgh!!!!!



Ég er búin að eyða rúmum fjórum tímum af lífi mínu… Fjórum tímum sem ég hefði getað notað til að vera samviskusöm í vinnunni, eða til að bora í nefið, en í staðinn flæktist ég inn á JPV.is og fór þar í gátuleik sem er þar. Hann er úr bók sem heitir Belladonna skjalið og á að vera jafn flott og Da Vinci lykillinn.

Jæja… þetta byrjaði ekkert sérstaklega vel… ég vissi að ég vissi svarið en ég fékk samt ekki að komast áfram… pirr… prufaði svo að beygja orðið og þá tókst það… helvíti pirrandi!

Svo taka við fimm gátur og spurningar… ég var farin að gnísta tönnum þarna í lokin! Ég skipti óvart út einum samhljóða fyrir annann og fannst samt að ég hefði rétt fyrir mér… fann svo út úr villunni og þegar kom “Þú leystir þrautina” orgaði ég af hamingju og barði í borðið, það fast að hlutir hrukku til! Svo ýtti ég á “halda áfram” takkann og bjóst við einhverju verulega flottu.

Þar stóð: Til hamingju með að hafa leyst þrautina og bla bla, endilega lestu bókina og bla bla…

Arg..! Eftir alla þessa pínu fékk ég bara “til hamingju” hnuss….

Það lá við að ég hefði orgað aftur, af einskærum vonbrigðum.

Mér finnst að ég hefði að minnsta kosti átt að fá bókina..!

ps. ef ykkur vantar svörin, á er ég með þau öll í kollinum… helvítis netið datt alltaf út þannig að lokum mundi ég þau.

24. nóv. 2004

blond.is Það kom einn af verkstæðinu áðann og s…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:55

blond.is

Það kom einn af verkstæðinu áðann og spurði hvort að ég þyrfti ekki að nota tippex þegar ég þyrfti að stroka út í tölvunni. Auðvitað!!! hváði ég við og spurði hann hvort að það væri hægt að gera það einhvern veginn öðruvísi..!

En svo þegar ég hugsa út í þetta… pínu erfitt, ég er bara með eina heilasellu, þá…

-langar mig t.d. aldrei í cherioos, mér finnst það eins og kleinuhringjafræ og það einfaldlega hræðir mig.

- ég hata stefnuljósið á bílnum mínum því að þegar ég set það í gang virkar það ekki alveg fullkomlega, meira svona… virkar – virkar ekki – virkar – virkar ekki – virkar – virkar ekki – virkar – virkar ekki hmmm…..

- eitt óþolandi við stefnuljós, að reka sig í þau, ég keyri alltaf útaf.

-það er búið að henda í mig orðabók. Þrisvar!

-ég er voða vegin að hafa ekki þurft að hringja í neyðarlínuna. Ég finn ekki 12 á símanum mínum.

23. nóv. 2004

Oj..! Ég taldi loksins í mig kjark í það að fá …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:38

Oj..!

Ég taldi loksins í mig kjark í það að fá mér fisk í hádeginu í mötuneytinu upp í vinnu. Þar sem ég var að vinna í frystihúsi mestan part af unglingsárunum treysti ég sjaldan eða aldrei fisk úr búð, hvað þá svona fabrikkuframleiddu eins og boðið er upp á í mötuneytinu.

Fyrsti bitinn var nú ekkert svo agalegur, fann samt alveg að þetta var ekki spriklandi nýtt. Annar bitinn var smá fiskur plús stór biti kartafla. Þokkalegt svosum. Þriðji bitinn var með beini í! Oj… þá er því bara lokið fyrir mig…

Svona fór um sjóferð þá og ég ætla ekki að leggja í það aftur að fá mér fisk þarna.

Hér eftir er það bara sem er vottað af henni elskulegri móður minni sem blívur..!

Annars er það að frétta að brokerinn hringdi aftur. Hann skellti á mig eftir að ég sagði -oh, it’s you again. Djöfull… hefði alveg þegið smá meira.

Svo vildi ég óska þess að ég gæti lagst í hýði svona rétt á meðan það er sem dimmast. Mér finnst ömurlegt að fara t.d. í vinnuna í myrkri… og keyra heim aftur í myrkri. Verð nú hreinlega að játa að ég hlýt að vera með snert af skammdegisþunglyndi.

Langar líka voða oft til að sofa lengur og hugsa oft til þess að hringja mig hreinlega inn veika í vinnuna. En ég hef nú ekki samvisku í það… þá reyni ég líka að hugsa til helvítis beyglunnar sem var að leysa hérna af í sumar og var alltaf “veik”. Píkunni tókst næstum því að rústa fyrir mér alveg ágætis sumri, gera mig geðveika úr stressi og svei mér þá að mynda byrjun á magasári.

Nei… frekar hendi ég sjálfri mér fram úr… þó ég verði að játa að það er stundum öfugu megin.

22. nóv. 2004

Sokkar.is Það ríkir sokkakrísa í lífi mínu. Ég …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 09:42

Sokkar.is



Það ríkir sokkakrísa í lífi mínu. Ég henti þremur pörum núna um helgina og einu í morgun. Það er allt í gúddí með þá þegar ég fer í þá, en svona eftir tíu mínútur fer önnur táin að gægjast út. Eða jafnvel alfarin komin út. Þetta er ef ég er heppin. Venjulega gerist þetta þegar ég er á meðal fólks. Andskoti pínlegt að vera í heimsókn og hællinn er úti eða stóra táin vill líka vera memm.

Sokkakrísan er líka enn alvarlegri núna, því að helvítis sokkaálfurinn situr enn á nokkrum stökum. Ástandið er svo alvarlegt að ég er í hvítum sportsokkum..! Það hefur ekki gerst síðan ég fór í skólaleikfimi á síðustu öld. Þ.e. hvítir sokkar sko…

Því fara sokkar efst á jólagjafalistann minn.

ps. enga sportsokka takk.

18. nóv. 2004

jæja… fékk smá útrás fyrir pirringinn. allave…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:39

jæja… fékk smá útrás fyrir pirringinn.

allavega, ég er farin að spotta bandaríska verðbréfasala í gegnum símann á fyrsta sérhljóða.

Alveg sérdeilis leiðinlegur amerískur hreimur með yfirlæti vafið um allt saman.

Símtal nr. 1

-Yes (pirr,helvítisbrokerfjandi) hello, is mister blablason available.

–No he’s on holiday. (bara þegar ég tala við þessa kalla, næ ég að tala ensku með posh breskum hreim…)

-When will he be back?

– I haven’t got the faintest idea. (liar liar, pants on fire!)

–Are you broker or do you work in that field.

-Well yes I do! (úff, aðeins of mikið stolt í gangi)

–Don’t call again. (ég skellti á)

Símtal nr. 2 (korteri síðar)

-Yes (haa..! aftur) is mister blablason available.

–No he’s not. I told you that earlier.

-Well yes ok.

– Did’n I also tell you to never call again?

- umm… no…

–Well now I am, don’t call again (ég skellti á)

Símtal nr. 3

-Yes (hvað er málið..!) hello, is Miles there.

–no (æi hvað þetta er fínt… hef ekkert að gera)

-Are you sure.

– Well yes! I am absolutely sure.

-How can you say that? (fífl! flettu upp í orðabók það búa 300 þús. hræður hér)

–Well because Miles is an english name, everyone here is called Þormóður, or Sigurður and if you are lucky it is Jón or Helgi.

-oh

–Goodbye now. (ég skellti á)

Símtal nr. 4

-Yes (nú er þetta hætt að vera fyndið) hello, is mister blablason available.

–No.

-Can you take a message to him?

–No.

-(mjög svo bandarískar ræskingar)

–Sod off. (ég skellti á)

Ég bíð spennt eftir næstu hringingu..! :)

jakk.is Hann byrjaði ekki fallega hjá mér dagur…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:04

jakk.is

Hann byrjaði ekki fallega hjá mér dagurinn.

Pétur Blöndal var á skjánum í morgunsjónvarpinu… jakk… ég þoli manninn ekki. Hann er veruleikafirrtur bjáni. Hárin á hnakkanum á mér byrja að rísa þegar mannfjandinn opnar á sér kjaftinn.

Hver kýs svona fífl?

16. nóv. 2004

arg.is Djöfull er það nú fúlt og skítt þegar sp…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:17

arg.is

Djöfull er það nú fúlt og skítt þegar spöngin í uppáhaldsbrjóstahaldaranum manns brotnar.

Svo þoli ég ekki þegar ég fæ þau svör að það eigi bara að taka þær úr… brjóstahaldarinn er aldrei samur. Hann verður bara ljótur og brjóstin tjah…

Ég vildi óska þess að Victoria’s Secret væri með verslun hérna á Íslandi.

15. nóv. 2004

Kaþþt punktuþþ iþþ Eins og öll fjölskyldan, vin…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:35

Kaþþt punktuþþ iþþ

Eins og öll fjölskyldan, vinir, kunningjar, vinnufélagar og gott ef ekki nágrannar vita, þá tók ég kast á föstudaginn.

Ég er búin að reikna að ég hef líklegast talað streit í 6 klukkutíma eða svo og hleypti ekki mörgum að.

En já… hvað um það… hef leyfi stundum til að láta svona…

en svo sofnaði ég í smástund. Smástund… eitt auglýsingahlé eða svo á Skjá 1. Það vildi ekki betur til en svo að þegar ég vaknaði aftur var tungan á mér þreföld. Hún flæddi bókstaflega yfir allt þarna upp í mér. Lilla bró til mikillrar gleði var ég ekki manneskja til mikillrar umræðu eftir þetta. Þannig að ég fór fljótlega að sofa. Líka orðin hundleið á sjálfri mér.

Fjandinn samt.

Hef nú heyrt arfaslappa brandara um kellingar sem togna í tungunni við of mikið slúður.

En kommon..!

12. nóv. 2004

Óliðlegheit og skítapakk.is Lilli bró hringdi í…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:43

Óliðlegheit og skítapakk.is



Lilli bró hringdi í morgun með þær fregnir að hann fengi ekki frí eftir hádegi á Þorláksmessu eins og búið var að lofa honum. Flugfarið farið til andskotans.

Búið að biðja um frí hjá drusluyfirmönnunum fyrir næstum því mánuði síðan. Flug bókað fyrir tveimur vikum síðan. Ef hann færi, mætti hann taka pokann sinn og fara.

Já ókei bless…

Djöfull sauð á mér. Ég hringi svo í greys lilla bró og tja… went tótallý eipshjitt. Ég stóð á garginu og það flugu orð eins og taka, þurrt, rassgat og görn minnir mig ásamt nokkrum venjulegum blótsyrðum.

Ég var að vísu í sölusalnum þegar á þessu stóð. Fólk var farið að horfa á mig. Frekar pínlegt.

Reyni næst að taka kast inn á skrifstofunni minni.

Hann hringir svo seinna og segir að kannski sé hægt að redda þessu með því að hann vinni þetta af sér. Hann keyri svo vestur. Já fínt, flott, gott að heyra.

Bíllinn er ekki á nagladekkjum.

Tók svo annað kast upp á skrifstofu. Það kinkuðu allir kolli.

Þeir eru nú meiru helvítis ribbaldarnir sem stjórna þessu skítafjandansfyrirtæki.

Skítapakk, skítaprik, ómenni, fífl og djöfulsins druslur.

Borga ekki skatt fyrr en á þá er gengið, taka samt af launum.

Borga ekki lífeyrissjóð, taka samt af launum

Sama saga með viðbótarlífeyrissparnað.

Það þarf að hamra á þeim með allar svona greiðslur og grenja svo eins og svín út af því.

Starfsfólk þarf hreinlega að æla á skóna á yfirmönnum ef það er veikt og þarf að fara heim.

Að taka sumarfrí er bara mesta hneysa.

Það var farið í leikhús um daginn og miðinn var dreginn af laununum. Heilar 2500 kr. en málið er að miðinn kostar aðeins 2200 kr.

Efast um að trúnaðarmaðurinn þarna sé að gera eitthvað af viti. Ef það er einhver. En ef það er trúnaðarmaður þarna, þá er annað hvort búið að hlekkja manninn og setja á hann múl eða hann er með tunguna fasta upp í óæðri endanum á einhverjum yfirmanninum þarna.

Vinnumarkaðurinn er samt ekki það frábær núna að það sé hægt að fara bara og finna sér eitthvað annað, því er nú verr og andskotans miður.

Ég er enn ill.

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com