Nöldur og ljótar hugsanir..!

29. okt. 2004

damn…! Var búin að skrifa heilan hellings og al…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:34

damn…!

Var búin að skrifa heilan hellings og allt datt út..!

Sögur úr höllinni koma eftir helgi og um nágranna sem sárlega þarf að bæta enskuna sína.

27. okt. 2004

dingalingaling.is Hallarbúar eru orðnir fremur …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:25

dingalingaling.is

Hallarbúar eru orðnir fremur þreyttir á því hvað heimiliskötturinn er duglegur við að færa björg í bú. Aflinn hingað til hefur aðallega verið samansettur af laufblöðum, en þegar ein mús eða svo fór að læðast með sem og fuglar í heilu og hálfu voru hallarbúum ekki farið að litast á blikuna. Svo er grey kisan voða sár þegar afrakstrinum er hent í ruslið… með viðeigandi ojbjakk hljóðum. Þannig að það eina sem hallarbúum datt í hug til að verja músaskratta og fuglspakkið væri að hengja aukabjöllu á köttinn.

Óhljóðin frá bjöllunni er bara einu stigi frá kúabjöllu. Svona eins og þessar svissnesku.

Kötturinn þorði ekki að hreyfa sig á tímabili… var búin að tengja að hreyfing væri samasem hávaði. Svo tók hún sig til og hljóp um allt hús eins og brjálæðingur. Bara til að pirra hallarbúa.

26. okt. 2004

úps.is Í dag tókst mér að eyðileggja klukkutíma…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:05

úps.is

Í dag tókst mér að eyðileggja klukkutíma langa vinnu með einum músarsmelli.

Viðbrögð mín við þessu kom mér á óvart. Það var engin helvíska brúkuð. Ég gargaði ekki neitt. Ég grýtti ekki einu sinni pennanum í næstu manneskju, jú ég verð að viðurkenna að það heyrðist smá svona dæs hljóð. Svo byrjaði ég aftur upp á nýtt.

Hvort haldið þið að sé málið:

1. Ég er orðin svona þroskuð.

2. Ég er orðin svona gömul.

3. Ég er orðin heiladauð.

25. okt. 2004

Óóógeð.is..! Who’s your daddy! Fræg setning. He…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 10:43

Óóógeð.is..!



Who’s your daddy! Fræg setning. Heyrist iðulega í tacký amerískum myndum þar sem sorglegur karlpungur eða risastór svertingi er að flengríða einhverri brjóstastórri ljósku.

Veit líka um einn sem var laminn í klessu af mexíkósku lögreglunni og á meðan görguðu þeir á hann kendes dí pabbí (hljóðfræðiskrift á who’s your daddy á spænsku) Fyndið fyrir okkur hin, kannski ekki eins fyndið fyrir hann… en jæja…

Nágrannarnir mínir eru sóðapakk, þeir eru ekki bara að hjakka í sama hjólfarinu, heldur tók annar þeirra upp á því í nótt að snúa þessarri setningu upp á okkar ástkæra ylhýra í nótt.

Hver er pabbi þinn! glumdi hátt í höllinni í nótt og tilheyrandi skellir, mér til mikillrar ógleði.

Má ég þá frekar biðja um Who’s your daddy. Það er allavega hægt að flissa að því.

22. okt. 2004

Zoo.is Í fréttunum um dagin var voða sæt frétt …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:50

Zoo.is



Í fréttunum um dagin var voða sæt frétt um nashyrningspar sem er innilokað í dýragarði einhverstaðar út í heimi og þau voru að koma með lítinn kjúttaralegann nashyrningsstrák.

Vitið þið bara hvað… ég sárvorkenndi frú nashyrningi því að mér fannst herra nashyrningur var nú ekkert sérstaklega flottur. Ábyggilega týpan sem snýtir sér í ermarnar (ef hann hefði svoleiðis), klórar sér í rasskatinu, skilur eftir skítuga sokka upp á eldhúsborðinu og er almennt mjög ódannaður.

Spáið í því ef maður myndi nú lenda í þessum aðstæðum. Geimverur myndu ræna manni og einhverjum algjörum lúða. Loka mann inn í búri með fyrrnefndum lúða og heimta svo afkvæmi.

*hrollur*

20. okt. 2004

kalt.is Já það er búið að vera skítaveður hérna…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:26

kalt.is

Já það er búið að vera skítaveður hérna á klakanum…

Höllin titraði skuggalega undan veðurofsanum aðfararnótt mánudagsins og þegar mánudagsmorguninn rann upp upp skítkaldur og bálhvass datt mér ekki annað í hug þegar ég kveikti á morgunsjónvarpinu að fréttamaðurinn myndi heilsa grafalvarlegur með þeim orðum að landsmenn væru vinsamlegast beðnir að halda sig inni nema í neyðartilfellum og verið væri að flytja forsetann, ríkistjórnina og önnur fyrirmenni í fokhelt byrgi.

Þá hefði ég getað skriðið aftur upp í rúm og undir heita sæng.

Þetta var svona svipaður fílingur og þegar maður var lítill og vonaðist til að skólanum yrði aflýst vegna veðurs. Það voru bestu frídagarnir.

Djöfull var fúlt að þetta skildi ekki rætast…

En þetta var ekki jafn ógeðslega fúlt og þegar ég var tíu og þessi tilkynning kom í útvarpi allra landsmanna. “Skólahald fellur niður á eftirtöldum stöðum: Bolungarvík, Hnífsdalur, Súðavík, Flateyri, Suðureyri, Þingeyri………”

18. okt. 2004

Þunn.is Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byr…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:44

Þunn.is

Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja… ég þarf að væla yfir svo mörgu. Svona er það þegar maður hefur ekki nennu til að pósta, þá safnast upp skítur í andlega öskubakkanum.

En ég varð alveg hundveik í síðustu viku. Fór til læknis og hann rak mig heim, með hóstasaft sem gjörsamlega lamar á manni hálsinn, ég tók uppáskrifaðann skammt sem eru 25 ml. og varð alveg blindröflandi full, lá í rúminu og allt hringsnerist. Lærði af reynslunni þarna að 5 ml eru alveg feikinóg.

En miðvikudagurinn varð annað og verra mál. Ég man bara ekkert af honum. Ég fékk meira að segja heimsókn og aktaði víst alveg normalt. hmmmm… það dugði ekki einu sinni að skoða sjónvarpsdagskrána og ég þurfti að horfa á endursýningu af ANTM, verst að ER er ekki endursýnt.

Á laugardaginn vorum við með staffadjamm og ég ákvað nú að reyna að drekkja bara vírusskrattanum. Við fórum niður í bæ um kl. 2, þetta veit ég að því að mér var sagt það. Ég veit með hverjum ég fór niður í bæ, af því að það var svo mikið drasl í bílnum og það er bara einn hérna sem á svona skítugt bílkvikindi. Ég veit að ég fór á Gaukinn því að ég sá að ég hafði hringt í Erlu perlu. Ég veit að Vinyl var að spila að því að ég fíla þá. Ég man ekki hvernig né hvenær við fórum af Gauknum, en ég man að við fórum á Bæjarins Bestu. Ég veit það líka af því að ég ældi henni og ætlaði aldrei að fara aftur á Bæjarins Bestu.

Sunnudagsmorgninum eyddi ég vælandi og ælandi í rúminu og ég hélt á tímabili að ég væri að deyja. Ég kúgaðist líka í einhverja þrjá tíma án þess að hafa nokkru til að æla.

Mér var líka illt í bakinu og síðunni… komst að því að hverju þegar ég fékk smá rænu. Hárbursti, hárklemmur og einn brjóstahaldari voru í rúminu.

Flestir mínir vinnufélagar voru nú fremur framlágir í dag sem voru á staffadjamminu.

Ég held að ég ræði alvarlega við þau sem eru með mér í staffastjórn.

Það verður ekki keypt tekíla næst.

07. okt. 2004

Naríur.is hmm….. vaknaði í morgun við agalegt…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:01

Naríur.is

hmm….. vaknaði í morgun við agalegt nærfataleysi, og ekki var ástæðan að allt væri skítugt enda búin að vera dugleg við þvotta. En hún var samt sorgleg hjá mér skúffan í morgun.

Nú er ég með ansi duglegan sokkabúálf sem situr eins og ormur á gulli á einum bleikum sokk með svíni á, einum fjólubláum, öðrum fjólubláum með silfurglimmer þráðum, einum með breska fánanum á og parinu með Mr. Bean. En að kvikindið sé farið að ræna af mér nærbuxunum næ ég bara alls ekki.

06. okt. 2004

geisp.is Það er ekki á hverjum degi sem mínu næ…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:31

geisp.is

Það er ekki á hverjum degi sem mínu næsta nágrenni er breytt í bandarískt slömm, en það gerðist nú á dögunum og hámarkinu náði núna í síðustu nótt. Frekar súrrealískt að horfa á sjúkrabíla merktum 911 út um svefnherbergisgluggan. Búllunni við hliðina á var breytt í tælenskan stað á nó tæm með því að skella einu skilti eða svo upp. Að vísu var það ekki á kristilegum tíma, þess vegna geisp.

Ég sef nú yfirleitt eins og rotuð, en þetta hélt fyrir mér vöku lengi lengi lengi… en það er nú ekki á hverjum degi sem amerísk ræma er tekin upp við húsgaflinn hjá manni.

Endilega kíkjið hvort þið sjáið nef og rauð augu gægjast út um rúllugardínurnar þegar ræman kemur út, þá er það undirrituð.

05. okt. 2004

Drykkjuleikur.is Auglýsi hér með eftir drykkjul…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:29

Drykkjuleikur.is



Auglýsi hér með eftir drykkjuleik.

Ef þið vitið um einhvern snilldarleik endilega segjið frá honum í kommentakerfinu eða meilið honum á mig.

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com