Nöldur og ljótar hugsanir..!

25. ágú. 2004

grenj Ég gleymdi gemsaskrattanum mínum heima……

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:26

grenj

Ég gleymdi gemsaskrattanum mínum heima… mér líður eins og ég hafi misst útlim eða auga.

Þið getið rétt ýmindað ykkur hvað ég er búin að missa af mörgum símtölum.

-FM hefur ábyggilega hringt til að bjóða mér til útlanda. 18 ára píka með aflitað hár og pinna í naflanum fékk utanlandsferðina og gistingu á 5 stjörnu hóteli.

-Draumaprinsinn hringdi… eins og hann hafði mikið fyrir því að finna númerið mitt. Mun aldrei heyra frá honum framar.

- Íslensk Getspá tók upp á símahappdrætti og ég var að missa af 100 milljónum. Alveg satt.

-Kötturinn minn er fundinn… og hann er hjá öðrum draumaprinsi. Hann er búinn að henda kettinum út.

______

Annars er það að frétta að ég er hornös mikil núna, hnerra rosalega og merkilegt nokk… það heyrist hærra í hnerranum enn venjulega. Hélt að það væri líffræðilega ómögulegt.

Atsjú og skál fyrir því.

24. ágú. 2004

ómægod… er með kreddara í höndunum með vip he…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:59

ómægod…

er með kreddara í höndunum með vip heimild…

Ætli ég geti keypt hús á netinu… og ætli eigandinn taki nokkuð eftir því…

Letingi smetingi… Játa það alveg að hafa ekki…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:30

Letingi smetingi…

Játa það alveg að hafa ekki verið í stuði fyrir blogger… hann er líka búin að skemmileggja lúkkið á síðunni minni… :(

en aníhú…

Fór til Tótulíus á laugardaginn þar sem hellt var vel í sig í góðum félagsskap áður en skundað var í bæinn í strætó. Þar horfðum við á flugeldasýninguna og dönsuðum svo af okkur rassgatið á Kjallaranum þar sem Skímó spilaði.

iiii hvað þeir eru orðnir gamlir eikkva og krumpaðir… fara að ná Stónes svona fljótlega.

Sunnudagurinn fór svo í almennt volæði þar sem klósettskálin var minn besti vinur fram eftir degi.

Enda þegar ég fór að taka saman magnið þá var mín búin með kippu fyrir strætó. Hænuhausinn ég sko….

17. ágú. 2004

*roðn*.is Stundum…. þá á ég eiginlega ekki he…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:30

*roðn*.is



Stundum…. þá á ég eiginlega ekki heima meðal fólks.

Lenti í því pínlegasta það sem af er árinu.

Ég var sumsé að deyja úr leiðindum og hataði vinnuna mína svona um hálf sex á föstudaginn. Var rétt nýbúin að lenda í leiðinlegasta kúnna í heimi sem tók sig til og hakkaði mig í sig af því að verkstæðið var búið að loka og hann á leiðinni í útilegu með fjölskylduna og bíllinn bilaður…

Af einhverjum ástæðum… ég hélt að þetta myndi laga allt…

laga ég aðeins til á skrifborðinu, bjó sumsé til pláss… lít í kringum mig og sé ekki sálu…

gríp í hárið á mér með báðum höndum, halla mér fram og byrja að lemja hausnum í skrifborðið…

þump, þump, þump, þump, þump, Öhhhh afsakaðu! þump. (SHIT!!!)

ég lít upp, slétti úr hárinu og reyni að hegða mér eins og ég hafi ekki rétt í þessu verið að lemja hausnum á mér við skrifborðið.

-Já get ég aðstoðað? (Golgate bros dauðans)

– uuu… mér var sagt að tala við þig út af hópatilboðum í leikhús.

- Já einmitt. (Enn með brosið fast á mér)

Ég ákvað að vera ekkert að segja honum að ég væri ekki eitthvað klikk, væri ekki á lyfjum og ef ég væri á þeim, hefði ég ekki gleymt þeim. Reyndi eins og ég gat að halda í smá sjálfsvirðingu. (Yeah right, með rauðan blett á enninu)

Hann var voða næs… minntist ekki einu orði á þetta… kom með voða fínann díl á sýninguna og svo drulluðum við aðeins í sameiningu yfir Fame…

En ég veit nú ekki… held að ég fari nú ekki á Hárið ef það verður farið. Myndi skammast mín of mikið.

13. ágú. 2004

Ég vakti alveg stormandi lukku hjá einum kúnna áða…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:48

Ég vakti alveg stormandi lukku hjá einum kúnna áðan… eða ekki.

Hann kom til mín ekki hress með kaffimál og titraði af koffínskorti og tilkynnti mér að druslan sem er kaffivélin hérna væri biluð.

Ég átti sumsé að redda þessu. Ég kann ekkert á hana. Takkar og sollis eru bara not my thing.

Hringdi nokkur símtöl en allir sem kunna á kvikindið eru farnir út í góða veðrið.

Þegar hann kom í þriðja skiptið til að kvarta, þá fékk ég nóg. Líka af því að hann vildi ekki fá alvuru kaffi sem er hérna á bak við sölumennina.

Prentaði út miða sem á stóð “Því miður er kaffivélin biluð” og gekk ákveðin á svip til kaffivélarinnar og límdi á helvítið. En í miðjum klíðum sé ég í speglinum grey kúnnann… Ég náði akkúrrat að sjá svipinn á greyinu breytast úr vongóðum, yfir í sár vonbrigði.

En ég vorkenndi honum barasta ekki neitt… skil ekki fólk sem fúlsar við alvöru kaffi og vill heldur fá sullið/hlandið sem svona takkavélar framleiða.

Touristspotting.com Ég og erlurnar höfum þann s…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:37

Touristspotting.com

Ég og erlurnar höfum þann sið að oftast þegar tekinn er einn Laugarvegur eða svo, þá förum við í leikinn Spot the Tourist. Höfum við mikið gaman af þessu og oft eru útskýringarnar á því af hverju þessi eða hinn sé túristi æði skrautlegar.

En svo fór ég og Gósk mín í Bláa Lónið um daginn. Ossa fínt. En það stoppar mig einn kani þar sem ég er á leiðinni í að sækja meiri leir og spyr mig hvort að ég sé skandínavísk. Já svaraði ég og bætti við að ég væri íslensk. Hann hoppaði af kæti og kallar í vin sinn að hann skuldi sér bjór. Hann vissi nefnilega að ég væri íslensk.

Isss…. mér finnst að Spot the Local sé bannað.

11. ágú. 2004

hot hot hot….. Jebb… ég er að bráðna. Ég e…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:24

hot hot hot…..

Jebb… ég er að bráðna.

Ég er í efnisminnsta toppnum mínum sem er voðalega fallega bleikur , opinn í bakið og axlirnar eru berar… ég reyni eins og ég get þó að leyna svitablettunum undir höndunum. Þetta er alveg ný reynsla fyrir mér… þar sem að ég svitna nánast aldrei. Aldrei! Meira að segja ekki í ljósum.

Fjárfesti mér í viftum í gær… fleirtala sko.

Það hefur ekki verið líft í höllinni síðustu tvo daga og til marks um það hafa kettirnir mínir sofið á gólfinu. Útflattir eins og rolluskrokkar. Uppáhaldsstaðir okkar systkinanna hafa verið inn á baði þar sem þar er nokkuð svalt þar, og fyrir framan ísskápinn… ekki út af hinu “geypilega” úrvali sem er þar. En það eru tímamörk á því hvað lengi má standa þar. Þegar það er farið að leka niður rakinn af salsa sósunni þá skal loka og bíða í smá.

Ég er alvarlega að spá í það að gefa skít í AB- mjólk og annann óþarfa eins og ost og egg inn í ísskápnum, taka hillurnar úr og setjast þar að þar til að ástandið er orðið eðlilegt.

En sumir eru skrítnir. Afleysingatappinn í notuðu er í alvörunni í lopapeysu.

09. ágú. 2004

Back to business. Sælan er búin… ég er komin …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:32

Back to business.



Sælan er búin… ég er komin aftur úr sumarfríi og það hefði alveg mátt vera mun lengra.

Vantaði svona eina viku í viðbót. Það hefði verið fínt.

Ég er svo auðvitað búin að snúa sólarhringnum gjörsamlega við… þannig að ég tók upp á því að strauja í gær… svo að ég myndi kannski sofna af einskærum leiðindum í gærkveldi… það tókst ekki en það var svo miklu betra að bylta sér í nýstraujuðum rúmfötum.

Þetta er einnig búinn að vera mjög svo próduktif dagur í dag… vinnulega séð.

Pósturinn var geðveikislegur sem beið hérna. Þannig að í rúman hálftíma var ég á delete takkanum. Eyddi þar út 200 og eitthvað kvikindum.

Svo horfi ég á staflana hérna… pota í einn, byrja á öðrum, hætti við hann… hann er leiðinlegur… hmm… ætli þetta sé eitthvað skemmtilegra…. þannig að ég sneri mér aftur að póstinum mínum… og ég er núna búin að létta allverulega á því… bara 2249 kvikindi… það heyrist líka ábyggilega hnnngggg…. ahhhh þegar þetta fer út…

Svo er bara að takast aftur á við hversdaginn.

Knúið af WordPress.com