Nöldur og ljótar hugsanir..!

27. júl. 2004

Sumarfrí.is Já ef einhver vissi það ei þá er t…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 01:47

Sumarfrí.is

Já ef einhver vissi það ei þá er tjellingin komin í sumarfrí.

Enda eins gott… var að fara yfirum í vinnunni af allt of miklu að gera.

Gerðist svo fjöldamorðingi á leiðinni vestur… ef einhver er að spá í því af hverju er svona lítið af pöddum á kaflanum rvk-isfj þá er það af því að yours truly var með alla flóruna framan á bílnum. Svo er ekki hægt að segja að rúðuþurrkurnar hafi verið að standa sig í því að skafa pöddudruslurnar af… nei þær meira svona dreifðu þeim um. oj….

Gerðist meira að segja svo fræg að drepa eitt fuglsgrey… held að það hafi verið þröstur. Allavega var dynkurinn svaðalegur og skitan frá greyinu huldi meira en hálfa rúðuna. Helvítis rúðuþurrkur enn og aftur.

En ég er fegin að stelpuskott vinkonu minnar sem fengu að fljóta með var sofandi þarna. Hefði ekki viljað lenda í “fuglahimnaríkis” umræðum …

En ég hafði gaman af stubbu. Í hvert skipti sem hún sá að við ókum yfir brú heyrðist hátt og snjallt í minni. “Hver er að ganga yyyfir brúúúna mííínaaa!” Svo ef mölin skvettist upp í hjólaskálarnar sagði hún að tröllið væri að koma núna  og “taka í rakkattið á okkur”.

Gaman að þessu…

______

En ég var búin að segja að ég ætlaði að drekkja mér í heita pottinum fyrsta daginn og stóð næstum því við það… tveir tímar eru nú sosum alveg nóg.

Var líka ein í pottinum eitt kvöldið og frændi þessa sem ég drap sællar minningar kom og heilsaði upp á mig og settist kannske tíu cm frá mér. Hann var ekkert fúll út í mig… allavega skeit hann ekki í pottinn…

En það er fínt að vera inn í bústað. Ekkert gemsasamband, engin tölva, borðað þegar maður er svangur, farið að sofa þegar maður er þreyttur og vaknað þegar maður vaknar. Ekkert vesen og engin klukka.

______

En ég kíkti á Ísó því að það var orðið lítið  í ísskápnum og svo sprungu dekk bæði hjá mér og ma og pa… þarf að fara með kvikindin í viðgerð á morgun.

Svaðalega verður það samt eitthvað skrítið að fara með svona vesen eitthvert sem maður þekkir ekkert. Er orðin of góðu vön. Semsagt að blaka augnhárunum og segja voða blítt við strákana hvort að þeir vilji nú ekki redda þessu fyrir mig. *blikk* *blikk*

______

En endilega kíkjið við ef þið hafið hug á að kíkja í pottinn með mér… hann er alltaf jafn æðislegur.

14. júl. 2004

úff….. Lendi í keisi aldarinnar áðann… Hel…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:44

úff…..

Lendi í keisi aldarinnar áðann…

Helvítis tölvur! Helvítis andskotans tölvur!!!!

Jæja kom upp tilvik áðann þar sem helvítis drullu tölvukerfið tók mig gjörsamlega þurrt í görnina.

Og töllusveppur lasinn veikur dauður.

Og það þurfti akkúratt að fá þennan bíldjöful í gegn. Það var ekki hægt að taka þennann sem var alveg eins en ekki með svona veseni. Nei það þurfti endilega að vera þetta kvikindi.

Þetta fattaðist kl. 15 og það lokar öllu í þessu þjóðfélagi kl. 16.

Ég varð óhugnalega stressuð. Ríf töllusvepp úr bólinu og heimta úrlausnir. NÚNA!

Hann gat ekkert gert. Hafði ekki einu sinni aðgang til að gera þetta. Fokk & Bölv…

Ég hringi í þjónustuaðilann og í sameiningu reynum við að fiffa þetta í gegnum símann.

Ekki að virka. Það er einn sendur í hvínandi djöfulsins hvelli uppeftir. Hann er kominn eftir fimm. Hann hefur ekki keyrt löglega get ég sagt ykkur.

Kl. 15:53 fattar hann hvernig á að fiffa þetta. Kl. 15:57 er skýrslan send. Kl. 16:00:02 er skýrslan móttekin og hægt að skrá þetta helvítis helvíti.

_______

Ég er búin að bölva svo mikið núna sl. 2 tímanna að ég held að ég þurfi að fara heim og brúka grænsápu og vírbursta.

Schei&#223e… eins gott að ég verð farinn í sumarfrí þegar reikningurinn kemur frá þeim.

13. júl. 2004

3 days to go….!!!!!! Já það eru bara þrír vin…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:57

3 days to go….!!!!!!

Já það eru bara þrír vinnudagar eftir þar til ég fer í sumarfrí.

Þessi mánuður búinn að vera viðbjóður. Viðbjóður segi ég og skrifa..!!!!

Gott ef ég er ekki farin að gnísta tönnum í svefni af helberu stressi.

Eitt að því sem er búið að plaga mig, eru týnd COC vottorð fyrir tvo bíla sem eru komnir til landsins og seldir, en fást ekki afhentir frá innflutningsfyrirtækinu af því að það vantar þessa pappíra. (COC pappírar má segja að séu fæðingarvottorð bíls) Þeir fundust loksins undir tebollanum á skrifborði eins breta slöttólfs sem er líklegast núna með krónískan hiksta vegna ills umtals á eyju langt í norði.

Ég stakk upp á því að ég myndi bara fara og sækja pappírana og hrista slöttólfinn aðeins til. Mér til mikillrar furðu fékk þetta ekki miklar undirtektir hjá yfirkalli… skil bara ekkert í honum… Hann hefði samt verið til, sagði hann að vera fluga á vegg þegar ég mætti á staðinn og træði tebollanum upp í rasskatið á honum.

______

Hei..! Svo var tjellu boðið í afmæli á laugardaginn, sem ég fór í og dró Gósk mína með mér.

Mér tókst það stórafrek að slátra risastórri flösku af rósavíni. 1 1/2 L þakka fyrir pent. Enda var ég asskoti völt á pinnahælunum í röðinni á Hressó. Svo má bara alls ekki mana mig þegar ég er drukkin, því ég veð hiklaust í hlutina. Fer ekkert nánar út í það hér, en mér fannst samt óborganlegt þegar Gósk horfi á mig stóreygð -En Ragnheiður!!! Þú gerir aldrei svona!

usss…. svona fer borgin með mann.

09. júl. 2004

Týpískt.is ..! Ég er búin að vera að leita að g…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:33

Týpískt.is ..!

Ég er búin að vera að leita að gataranum mínum í ábbyggilega þrjá mánuði, ef ekki miklu lengur, Hann er grænn, og er ábyggilega búinn að fylgja mér alla ævi, ef þetta væri bíll væri hann kominn í fornbílaklúbbinn.

En jæja… reglulega tók ég skurk heima og leitaði í öllum skúffum og skápum, líklegum og ólíklegum stöðum og setti lilla bró í þriðju gráðu yfirheyrslu um hvort hann vissi nú ekki hvar gatarinn væri. Það var mismunandi eftir skapi hvort lilli bró var yfirheyrður yfir helvítis gataranum eða gatarinn, þú veist þessi litli græni.

Svo var ég að sendlast í gær í vinnunni og átti leið í Pennann. Notaði tækifærið þar og fjárfesti í gatara. Líka eins gott… “bókhaldið” var farið að flæða um alla eldhússkápa.

Svo þegar ég kem heim í gær, opna dótaríisskúffuna til að skutla nýja gataranum oní.

Hvað er það fyrsta sem ég sé..?

Helvítis græni gatarinn!!!!!

07. júl. 2004

Þessi frétt fangaði athygli mína þar sem ég sat sv…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:28

Þessi frétt fangaði athygli mína þar sem ég sat sveitt yfir tollskýrslum í dag.

Ekki varð ég nú hrifin.

Hversu langt má “stóri bróðir” seilast til að fylgjast með?

Hversu langt er of langt?

Er ætlunin með þessu að lögreglan geti stöðvað ökumenn og athugað hvort sauðirnir hafi nú hegðað sér almennilega. Og sekta þá ökumenn ef “kjaftakellingin” segir ljótt?

Þetta yrðu dágóðar tekjur þá fyrir ríkið… því að flest öll erum við ekki fyrirmyndarökumenn. Og ég efast stórlega að “kjaftakelling” eigi eftir að breyta einhverju þar um.

Gefum okkur að ökumenn séu um 100.000, hver og einn þeirra fær sekt. Sektir eru misháar eftir eðli brots. Ég gef mér að sektin sé 15.000 per kvikindi. Það er ef til dæmis keyrt er á 111-120 þar sem má keyra á 90 km. Svo er veittur afsláttur þannig að sektin sem greidd er 11.500 kr.

Þetta er hvorki meira né minna en 1.150.000.00 kr. Einnmilljarðureitthundraðogfimmtíumilljónir 00/100 ef ég myndi rita þetta í tékkheftið.

Er ekki sýslumannsembættið á Sauðárkróki að verða gjaldþrota?

Þetta ætti nú allavega að hjálpa til….

06. júl. 2004

Ooooohhhhh hvað mig langar í Stöð 2 núna. Það er …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:49

Ooooohhhhh hvað mig langar í Stöð 2 núna.

Það er að fara að byrja í kvöld þáttaröð eftir uppáhaldið mitt Stephen King.

Það er nebbla hægt að bjóða mér upp á ýmislegt í teve ef nafnið hans kemur fyrir.

Í fréttum er þetta helst að nú er hann faðir minn …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:55

Í fréttum er þetta helst að nú er hann faðir minn orðinn stoltur eigandi að lödu samara bíl sem var boðinn upp hérna í vinnunni. Lilli bró fær það hlutverk að keyra gripinn vestur þegar hann fer í sumarfríið sitt.

01. júl. 2004

Drusla.is Það var nú meira helvítis hræið sem é…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:56

Drusla.is

Það var nú meira helvítis hræið sem ég fékk í bæinn í dag. Leit nú þokkalega út að utan… fyrir utan nokkrar skítaklessur… en málið er að það er búið að vera soldið mikið heitt í dag. Og þá notar maður auðvitað miðstöðina óspart… En mér var litið á helvítis hitamælirinn og þar var nálin farin að nálgast ískyggilega mikið rauða strikið og komið yfir 100 °C. Það þarf nú engann eðlisfræðing til að segja mér að það er ekki gott. Þar sem ég bjó af reynslunni síðan á 67 í denn þar sem bílakosturinn var vægast sagt í lásí ástandi vissi ég nú að best væri að setja miðstöðina á fullt… oj hvað mér varð heitt…!

Ef ég væri ekki tepra, hefði ég keyrt um á brjóstahaldaranum..!

Ekki nóg með það… heldur gerði sendillinn frá öðru bílaumboði svo mikið grín af mér..!

Hann varð smá abbó á mánudaginn þegar ég kom niður á bílavöll á bimma… svo kem ég í dag á hræ.is

Ekki nógu gott sko…

Þetta er skrifað af rosalega lufsulegri Ragnheiði sem hugsar bara ljótt til strákanna í notuðu í augnablikinu…

Knúið af WordPress.com