Nöldur og ljótar hugsanir..!

30. jún. 2004

Það er eiginlega of mikið að gera þessa vikuna. …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:32

Það er eiginlega of mikið að gera þessa vikuna.

Bara kvart sko…!

Dagurinn í gær var svaðalegur…

Veikindi og frí þannig að ég var allt í einu í þeirri stöðu að þurfa að vera á þremur stöðum í einu.

Tollurinn, síminn og fara í bæinn með pappíra.

Tollurinn var að mestu gerður á símanum. Vonandi verða engar villur *krossa putta* *krossa putta*

Svo fór ég í bæinn með 32 bílaleigubíla sem eru bara pain in þe bött sko. En gaman samt að því að fylgja þeim úr hlaði frá a til ö.

Enn ég var gjörsamlega að kafna úr stressi í gær og sömuleiðis sá sem er yfir á standsetningunni.

Við ætluðum bæði að fá okkur bjór í gærkvöldi en samkvæmt samræðum í dag sofnuðum við bæði í sófanum, nenntum einfaldlega ekki að opna ísskápshurðina, ljótt það….

Dagurinn í dag var bara svona melló…. en þarf samt enn að klóna mig… staflarnir hækka og hækka og hækka á helvítis skrifborðinu. Ætla upp og massa þá á eftir!

En ég lenti í einum geðveikum í dag… það er einhver búð eða eitthvað við hliðina á Bíll.is upp á Höfða. Þurfti að fá eina undirskrift þar… en það voru enginn stæði laus nema þau sem voru merkt Hagi ehf. Þannig að ég lagði bara þar… stökk inn í tvær mínútur og fékk mínar undirskrift og hljóp aftur út.

Þar við bílinn stóð spikfeitt karlkvikindi sem öskraði á mig.

-Ég ætla bara að láta þig vita að þetta er merkt stæði og ég vil aldrei sjá þig aftur í því vinan.

Og svo dúndraði hann hnefanum í húddið. !!!!

Ég átti bara ekki orð… sagði ekki neitt… opnaði bílinn, teygði mig í símann og fór í það að grandskoða húddið. Og fituhlunkurinn enn yfir mér titrandi af reiði.

Ég tjáði honum pollróleg að ef ég hefði séð eina smá rispu á húddinum hefði ég kallað á lögregluna og gjörsamlega negldi hann með illa augnaráðinu. Þessu sem er mjög sjaldan notað.

Settist inn í bíl og tók mér góðann tíma í því að koma skjölunum fyrir.

Ég byrjaði svo að titra eins og andskotinn þegar ég var komin út af stæðinu.

Ég veit ekki hvað ég hefði samt gert ef hann hefði dældað bílinn… hvað þá ef þetta hefði verið burrussinn minn..!

29. jún. 2004

úfff….. þetta var nú meiri dagurinn…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:18

úfff…..

þetta var nú meiri dagurinn…

28. jún. 2004

Átti alveg brilliant helgi. Á laugardeginum kau…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:51

Átti alveg brilliant helgi.

Á laugardeginum kaus ég í fyrsta skipti sem Reykjavíkurbúi. Verslaði aðeins með bróður mínum og fór í innflutningspartíið hjá Erlu perlu. Þar var þessi fína bolla á boðstólum og damn! hvað ávextirnir eru hættulegir..! Sunnudagurinn var frekar þunnur… en við elduðum þennan líka fína mat. Hefðum eiginlega átt að bjóða einhverjum í mat, bara til að sína snilli okkar í eldhúsinu.

Svo hafði ég það gott í sófanum hennar Erlu og pússaði á mér neglurnar í ábyggilega tvo tíma.

Ég er eiginlega orðinn soldið sick með þessar neglur mínar. Hugsa frekar um naglalakkið heldur en að fara í hreina sokka…. :/

En auðvitað af því að ég gerði þær svo fínar í gær þurfti ég að asnast til að brjóta eina í dag. Fór svona af henni eitt hornið… voða fínt brot sko..! beint og svona og hékk áfram á naglalakkinu.

Og þar sem ég er sannur vestfirðingur þá kann maður að bjarga sér..!

Hljóp inn í búð og gargaði yfir strákana hvort að þeir ættu tonnatak. Það hefur ábyggilega heldur betur verið einhver örvænting í rómnum því að nokkrir þeirra hentu frá sér því sem þeir voru að gera og leituðu í öllum skúffum og einn fór meira að segja á fjóra fætur að leita. Ég endaði niður í verkstæði þar sem fundin var fyrir mig tonnatakstúpa. Þeim leist svo alls ekki á mig strákarnir í verkstæðinu þar sem ég mundaði túpuna yfir puttanum. Þetta er víst miklu sterkara stöff heldur en fæst fyrir pöpulinn út í búð…

Ég ætti kannski að íhuga það að setja bara núna strax á allar hinar… bara svona til að fyrirbyggja.





Together, together, that’s how it must be

To live without you

Would only be heartbreak for me



I say a little prayer for you.



23. jún. 2004

Nóg að gera sko..! Það er nú bara annað hvort í…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:30

Nóg að gera sko..!

Það er nú bara annað hvort í ökkla eða eyra!

Hefði nú helst þurft að klóna mig í dag. Brjálað að gera í vinnunni og sem betur fer er Erla Björg mesta dúlla í heimi og hún reddaði mér algjörlega.

Svo er Fame í kvöld kl. 19:30 og haldiði að tjellingin hafi ekki unnið bíómiða á myndina Chronicles of Riddick sem mig langar svaðalega að sjá kl. 22:15

ussss… þetta massast!

22. jún. 2004

Good Day Sunshine Æðislega veður..! Good day…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:35

Good Day Sunshine

Æðislega veður..!

Good day sunshine, good day sunshine, good day sunshine

Ég gerði soldið í gær sem barasta hefur ekki gerst í háa herrans tíð..!

Ég var farin heim kl. 17:15.

Heim og ekki heim samt… fór til Erlu Bjargar og lá í garðinum hennar og fékk þar fullt af lit…! já sko mig… lit sko… ekki bara freknur..!

Need to laugh and when the sun is out,

I’ve got someting I can laugh about.

I feel good in a special way,

I’m in love, and it’s a sunny day.

Ég held líka að það sé kominn tími á að ég kaupi mér eitthvað sumarlegt til að vera í.

Held það barasta já..!

En samt ekki… alltaf ef ég hef fjárfest í t.d. sólgleraugum hefur rignt í þrjár vikur samfleytt.

hmmm…

Good day sunshine, good day sunshine, good day sunshine.

En núna er ekki staður né stund til að hugsa um rigningu.

We take a walk, the sun is shining down,

burns my feet as they touch the ground.

Svo er annað í fregnum að við vinkonurnar ætlum á Fame annað kvöld.

Held samt að það sé of seint að reyna að sjá myndina… veit nebbla ekkert hvað maður er að fara út í.

Good day sunshine, good day sunshine, good day sunshine.

En þá er bara að fara með opnum huga. Ef þetta verður eitthvað slæmt, má alltaf vonast til að Jónsi fari úr að ofan.

And then we lie beneath a shady tree,

I love her and she’s loving me.

She feels good, she knows she’s looking fine.

I’m so proud to know that she’s mine.

Svona að lokum…

þá eru 24 dagar þar til ég fer í sumarfrí og til að gleðja mig enn meira þá eru bara 15 virkir dagar.

víví…!

Good day sunshine, good day sunshine, good day sunshine.

Good day sunshine, good day sunshine.

21. jún. 2004

brúnka.is Ég átti alveg dýrlegan tíma hjá Majus…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:20

brúnka.is

Ég átti alveg dýrlegan tíma hjá Majus og hennar mútter… þau eru með heitapott sem ég lá í í samfleytt þrjá tíma í glampandi sól. Fékk meira að segja rauðann nebba..! ;)

En svo þegar ég kem í vinnuna í morgun heyrist í einni… hva! þú hefur bara ekkert verið í sólinni um helgina!

Málið er að ljósabrúnkan skolaðist í burtu í heita pottinum og hún er líklegast svamlandi einhvers staðar úti fyrir Garðskagavita…

Ég var ekki hress… það er hörkuvinna að ná smá brúnku sko..!

____

Úr höllinni er það að frétta að ég fékk nóg af tiltekt og lét lilla bró gera það til tilbreytingar.

Nú er tekinn skrímer á mann ef það sést til brausneiðar sem er ekki á disk og mér er harðbannað að pissa út fyrir.

Ég ætti nú alveg að geta staðið við það.

18. jún. 2004

Djöfull…! Hártoganir og læti bara í minni…!…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:47

Djöfull…!

Hártoganir og læti bara í minni…!

Ég man ekki hvað helvítis djöfulsins dans og söngvamyndin með logsuðukellunni á daginn og dansarinn á nóttunni.

Feiti fóstbróðirinn tók þetta sérdeilis glæsilega í Myndbönd mánaðarins auglýsingunni.

Ég er búin að hanga á IMDB í ábyggilega hálftíma að leita að kvikindinu.

Sölumannadruslurnar vita heldur ekkert heldur ekkert í sinn haus.

pirrr….

Talandi um hártoganir… fann gráa hár númer 7.

16. jún. 2004

Schei&#223e Kagginn var sko vægast sagt glæsile…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:35

Schei&#223e

Kagginn var sko vægast sagt glæsilegur þegar við komum í bæinn. Drullugur upp fyrir haus og felgurnar fullar af skít þannig að hann titraði og skalf. Komumst að því að titringurinn hætti við vægast sagt ólöglega tölu.

Svo komum við það seint í bæinn að ég nennti engann veginn að þrífa bílinn.

Fór í það í gær. Þannig að burrusslingur var skítugur á stæðinu í gær. Fékk líka nokkrar skítaglósur og svei mér þá ef helvítis markaðstappinn hafi ekki tekið mynd af kvikindinu sem mun birtast í næsta starfsmannafréttablaði.

En skíturinn fékk að finna fyrir því í gær í Löðri í Kópavogi. Og buxurnar mínar og sömuleiðis skórnir…

Ég hélt að ég væri nú aldeilis búin að þrífa kaggann… en nei… helgidagablettirnir öskruðu á mig þegar ég kom heim. Bara jól og páskar..!

En meira af skít.

Ég er ein að þeim sem á erfitt með skýrslugerðir á ferðalögum… eða að taka til í skottinu eins og vinkona mín orðar það svo sniðuglega. Þess vegna get ég til dæmis bara pissað á almenningssalernum…

Á leiðinni vestur var ungfrú þvagblaðra farin að kvarta í göngunum þannig að þegar við komun í Hyrnuna í Borgarnesi þá var tekinn spretturinn á klósettið og aaahhhhh…

Í miðjum klíðum heyri ég hurðinni hrundið upp frekar kröftuglega og einhverjar ræskingar… karlmannlegar mjög.

Ég fer að efast um verurétt minn á dollunni við þessi óhljóð, en var samt frekar viss um að ég væri á kvennaklósettinu. En svo fór ég að efast meira…

því að nú tók við svaðaleg pissuhljóð… svona stórt hljóð… og í kjölfarið fylgdi prump og skvettuhljóð og enn meiri ræskingar.

Nú var ég bara 50% viss um að ég væri á kvennaklósettinu. Jæja… hysja upp um mig og klára handþvottinn í snarhasti… vildi ekki láta nappa mig á karlaklósettinu ef staðan væri þannig…

Svo var þessi fína mynd af kvenmanni í pilsi á hurðinni.

Ég sé eftir því núna að hafa ekki hinkrað í smástund til að sjá hvað kom út..!

15. jún. 2004

Ó mig aumann…! Ég gleymdi símakrúttinu mínu h…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:15

Ó mig aumann…!

Ég gleymdi símakrúttinu mínu heima… eða ég vona það allavega.

Rosalega er ég berrössuð eitthvað… *sniff*

Jæja… Komin aftur suður í sollinn og ómenning…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:46

Jæja…

Komin aftur suður í sollinn og ómenninguna…

skelþunn alveg eins og ég var búin að lofa.

Reunionið var bara hið fínasta og þær sem sáu um framkvæmdina eiga mikið hrós skilið… (veit hvað það er óþakklátt starf oft að sjá um svona)

Voða gaman að sjá gamla liðið aftur og svo voru sýndar mispínlegar myndir… við erum öll orðin mikið sætari og fatasmekkurinn og fatatískan er tja… miklu flottari núna… rakað undir og hólkvíðar smekkbuxur eru kannski ekki alveg að gera sig… en Nevica úlpurnar standa enn fyrir sínu.

Ég vona samt að á næsta reunioni komi þeir sem maður hefur enga hugmynd um núna.

Það er eftir tvö ár… úff… þá verð ég orðin gömul…

Eitt að lokum í þessum pistli… fann gráa hár númer 6!

Er að reyna að blekkja mig á því að þetta sé alltaf sama hárið :/

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com