Var ég búin að segja frá því að ég er með fóbíu gagnvart blöðrum..!
Algjöra..! ég er að meina þetta… mér finnst blöðrur álíka hræðilegar og þegar ég sé lítil börn japla á blautum ullarvettlingum… jömmííí….
En málið er að það verður hátíð fyrir starfsmenn um helgina og það var búið að redda shitlóds af blöðrum frá einum bankanum. Og ég var sett í blöðrumálin af því að ég var til í að klára þetta eftir vinnu.
Mér fannst ég persónulega vera mjög svo hugrökk… ég hefði ekkið beðið hvern sem er um að moka út kóngulóm eða eikkva.
En svo fór ég núna inn á verkstæði rétt um fimm með blöðrupokann þannig að ég gæti fengið stút í loftdæluna áður en allir færu. Mér var kennt á dæmið og nokkrar blöðrur blásnar og auðvitað sprungu tvær framan í mig….
En svo þóttist ég þurfa svo agalega að fara aftur á símann… þráðlausi ekki að virka og bladeblí bla…
ætlaði bara að klára dæmið í friði þegar allir væru farnir og eiga ekki á hættu að einhver færi að hlæja þegar píkuskrækirnir slyppu … ekki ef, þegar…
Svo voru þeir að hringja í mig þessar elskur á verkstæðinu… þá voru þeir bara búnir að þessu fyrir mig..!
Og ég þarf ekki að hafa martraðir næstu vikuna yfir blöðru dauðans sem er á leiðinni til að bíta mig í rassinn.
Ef ég væri húsleg þá myndi ég baka köku fyrir þá..!