Þynnka.is
Já ég er enn þunn…. kannski ekki skrítið miðað við aldur og fyrri störf og hafa vakið í meira en sólarhring.
Lilli bró vaknaði korter í sex á laugardagsmorgninum…. pínu stressaður því að hann var að fara í meiraprófið og taka verklegt í vörubílnum. Þegar hann varð var við að systa hafði vaknað við fyrirganginn var ég náttla sett í smá yfirlestur áður en hann fór af stað.
Eftir það varð ekki aftur snúið…. var vöknuð og ekki séns að reyna að ná smá kríu í viðbót. Reyndi þó.
Fann brjóstahaldara í uppáhalds nærfatabúðinni minni sem heitir HB -búðin og er í Hafnarfirði… klikkar aldrei.
Fór svo í neglur til Elsu sem reyndi hvað hún gat að róa mig niður því ég ákvað að fara í eitthvert helvítis stresskast þarna þegar hún var ekki einu sinni hálfnuð. Flaug um hug mér að hætta við, en það hefði verið frekar stupid að mæta bara með eina hálfkara gervinögl á lilla putta… leið betur þegar hún setti öskubakka fyrir framan mig. Og já gleymdi næstum… hún límdi semelíustein á vinstri augntönninna…. rosa flott.
Brunaði af stað til Selfoss rétt fyrir kl. 17 og var komin þangað rúmlega hálftíma síðar (uss… ekki segja löggimann) en getzinn stóð fyrir sínu.
Árshátíðin gekk stórkostlega vel.
Maturinn var frábær, hótelið var fínt, Örn Árna fór á kostum sem veislustjóri, en best voru samt heimatilbúnu skemmtiatriðin.
Tjellingarnar á skrifstofunni voru með ógeðslega fyndið myndband, þeir sem voru nýjir þurftu að koma upp á svið og syngja aðeins okkur hinum til mikillar kátínu.
Dagatölin sem við vorum sveittar að gera voru afhent, köllunum samt ekki til mikillar ánægju því ekki vorum við berar eins og búast mætti við heldur var þetta meira í svona arabískum stíl.
Hér má sjá ungfrú BMW X 5 aka moi.
Tjellingarnar voru teknar fyrir af nokkrum yfirmönnum og þar kom við sögu útilegupumpur, einnota latexhanskar og smokkar með súkkulaðibragði. Þetta var svona had tú bí ðer móment.
já og strákarnir á verkstæðinu tóku lagið og var Símon að öðrum ólöstuðum flottastur sem hljómsveitarstjóri.
Svo tók við tjútt og herbergisflakk og miiikil drykkja. Og já… hljómsveitin hafði skánað mikið mikið mikið síðan síðast.
Fórum að sofa um kl. 7
En snilld kvöldsins átti hann Loftur risakrútt.
“There is not much puperty here in Iceland”
Loftur lentu sumsé á T við kærastann hennar Erlu Bjargar sem er frá Kanada.