Nöldur og ljótar hugsanir..!

27. feb. 2004

drulluskítur Ég fékk svo mikinn tittlingaskít ú…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:56

drulluskítur

Ég fékk svo mikinn tittlingaskít útborgaðan að ég er farin að leita mér að kvöldvinnu. Eða bara betur borgaðri vinnu.

Þó mér líki mjög vel við vinnuna mína og flestir starfsfélagarnir eru gull af manni, þá er ég farin héðan ef eitthvað betra býðst. Peningalega séð.

Góður mórall hættir að telja þegar launaumslagið er svona líka sorglegt.

Eða ég tel í mig kjark og bið um launahækkun.

26. feb. 2004

Another mind numbing day. Viðbrigðin eftir al…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:17

Another mind numbing day.

Viðbrigðin eftir allann hávaðann og hasarinn í gær er svo mikill að ég hef varla gert handtak í dag.

Skammastín Ragnheiður..!

Æi… ég má annað slagið bora í nefið… Ég reyni ekki einu sinni að sýnast bissí.

Skutlaði minni elskulegri mútter á flugvöllinn í morgun, þannig að morgunfúla fúla var farin út úr húsi um korter yfir átta… þannig að ég var búin með morgunfýluna rétt um hálftíu. Þannig að skv. mjög svo óvísindarlegri könnun endist morgunfýlan í mér í rétt um eina og hálfa klukkustund.

Ég hef svo oft farið í átakið “morgunfýlan burt” að ég er búin að gefast upp. Reyni kannski í þrjá daga að vera über hress en verð í staðinn miklu verri í ca. viku á eftir… best að láta hana bara ganga sinn gang.

gleymdi… Hvað er þetta eiginlega með æsku lan…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:42

gleymdi…

Hvað er þetta eiginlega með æsku landsins?

Ef þau voru undir tólf ára aldri vissu þau ekki hver bleiki pardusinn er..!

Bleik kanína hvað…?!?!!?!?

25. feb. 2004

Bjarnastaðabeljurnar þær baula mikið núna….. …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:12

Bjarnastaðabeljurnar þær baula mikið núna…..

Damn… hvað þetta er orðið súrt lag….

og ég er orðin súr í kjaftinum af öllum karamellunum… sátum á tuttugu kílóum af gotteríi í morgun en mest af því er farið ofan í prinsessur, drauga, bófa, kúreka og óskapnaðinn úr Scream myndunum… hef séð nokkuð marga svoleiðis… og já síamstvíbura, þær voru langflottastar. Gaf þeim mest af nammi.

Svo er ég sjálf búin að vekja mikla lukku í bleika pardus búning sé ég fékk lánaðann frá Hafdísi Ósk. Var líka með bleika kollu á’la Marylin Monroe en sökum mikils hita og svita þá gafst ég upp á henni… Erla Björg sat með hana og var ossa lukkuleg með hana… Svo þegar hún fór tók einn sölumaðurinn hér við sem á ekkert mikið hár… held að hann hafi einnig vakið mikla lukku hjá kúnnanum sem var að ná í bíl til hans.

Svo er mútter í heimsókn… nóg að gera…

24. feb. 2004

Jeeeedúddamía….! Rétt í þessu var ungur maður…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:08

Jeeeedúddamía….!

Rétt í þessu var ungur maður að spyrja mig hvar Kawasaki umboðið var… ekkert mál að finna það fyrir hann, en klæðnaðurinn…!

neon hvítur svona netahlýrabolur og afklipptar gallabuxur svona alveg við rassinn, sást smá í kinnarnar meira að segja. hemm hemm ég gáði þegar hann var að fara út…. og hann var í svona svörtum Scarpa gönguskóm, svona uppháum… eins og löggurnar eru í á veturna. Og engu öðru. Hann bar þetta nú svosum… vöðvastæltur með endemum… tattú og ljósabrúnn…

Gay or whottt…!!!?!?!?!!?!??!

23. feb. 2004

helgarúttektin. Það er ekki hægt að segja að Ma…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:50

helgarúttektin.

Það er ekki hægt að segja að Matti hafi verið vægur við mig. Nei nei nei ….. Farið óguðlega snemma á fætur alla dagana og ekki að ræða það að kúra aðeins lengur.

Laugardagurinn byrjaði kl. hálfsjö. Guði sé lof fyrir morgunsjónvarpið… og takk Stöð 2 fyrir að byrja kl. 8.

Sunnudagurinn var enn verri… kl. 6:15 og mín hafði farið að sofa kl. 2, ég reyndi að biðja mér vægðar en þá fór hann að hamast í slökkvaranum þannig að gólin voru alveg í takt við ljósaganginn… það getur enginn þolað lengi við svoleiðis pyntingar þannig að ég hundskaðist frammúr, með alversta myglukeis lífs míns.

Matti er nú samt algjör sjarmör þannig að ég fyrirgef honum svefnleysið að sjálfsögðu. Og alltaf kemur það manni á óvart hvað þessu kríli eru snögg að gera eitthvað af sér… leit af honum í sekúndubrot og þá var minn maður kominn inn í sturtuklefa og byrjaður að sulla í restunum. vei..! Þannig að við urðum bara að fara í sturtu…

En ég fékk smá pásu samt sem áður og fór á 5stelpur.com með vinnunni.

Stykkið er alveg frábært, fullt af frábærum punktum.

Mér fannst Unnur vera best af þeim… enda var hún að segja fullt af punktum sem ég kannaðist við.

Eins og klósettferðir á djamminu… og enginn snagi… taskan yfir hálsinn eða mar búinn að bíta í haldið með kápuna upp á haus í skíðastellingu yfir setunni því að hún er svo hræðilega viðbjóðsleg þótt að mar sé búin með þrjá Woody’s og fjögur rauðvínsglös. Reyna að halda jafnvægi á háu hælunum á hálu gólfinu… og svo enginn klósettpappír… ég er yfirleitt með snýtuklúta fyrir svona keis, en hún minntist á visa nótur… snilld..! yfirleitt hendi ég þessu rusli… en sá nú ljósið og fann alveg nýja notkun fyrir þessa gulu bleðla. Svo er alltaf klassískt að hrista….

20. feb. 2004

Blessuð sé minning beljunnar og allra hinna krílan…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:47

Blessuð sé minning beljunnar og allra hinna krílanna.

Ekki byrjar það vel ZZzzzZZ Ég er orðin svo van…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 12:58

Ekki byrjar það vel ZZzzzZZ

Ég er orðin svo vanaföst gömul kona að það gekk illa að fara að sofa í gær á nýjum stað. + Mattílíus hrýtur, þannig að ég sofnaði um tvö í nótt. Matthías Sveinn ákvað að hann væri búinn að sofa nóg kl. 5.

Ég reyndi eins og ég gat að halda honum aðeins lengur, en nei… frammúr og það núna. Eftir bleyjuskipti, fataskipti og mjólk í könnu settist ég heiladauð fyrir framan morgunsjónvarpið og hann tók til við að koma kubbunum sínum fyrir á hernaðarlega mikilvægum stöðum.

Eftir kúkableyju dauðans og stríð við útifötin… ég vildi að hann færi í þau, hann vildi það ekki… gat ég komið honum út í bíl og til dagmömmunar.

Kaffikannann er búinn að vera besti vinur minn í dag. Ég held að ég sé búin að geispa framan í alla mögulega og ómögulega í morgun.

Ég held að ég fari að sofa á sama tíma og Matthías í kvöld.

ZZzzzZZZ

19. feb. 2004

Mikið ofboðslega verð ég dugleg næstu helgi É…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 13:43

Mikið ofboðslega verð ég dugleg næstu helgi

Ég verð að passa Mattaling alla helgina. Fer meira að segja til dagmömmunnar á morgun.

Ég held að annað hvort verði þetta dísaster og hann öskri á mig non stop alla helgina eða að hann verði eins og ljós. Enginn millivegur í mínum manni.

Er nú samt hálfpartinn með í maganum út af þessu.

Svo fór ég á minn fyrsta miðilsfund í gær.

Mjög svo fróðlegt. Þar var mér m.a. bent á að keyra hægar. (..!) Fara í nám því ég væri svo drulluskörp og já ein sem fylgist með mér líst par illa á nýju skóna mína, þeir líta víst ekki út fyrir að vera þægilegir, hún skilur ekkert í mér að vera í þessum hörmungum.

hehe

17. feb. 2004

sagan endalausa Ég ætla aldrei að gerast bóndi….

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:41

sagan endalausa

Ég ætla aldrei að gerast bóndi. Búskapurinn er búinn að ganga hræðilega.

Litlu sætu kisulingarnir voru víst allir með gat á þindinni þannig að maginn og það allt þrýstist upp um opið og þrengir að lungunum.

Fór til Dýra á laugardaginn með einn sem ég var svo innilega að vona að væri kvefaður, nei… dauðadómur gefinn út strax… þannig að ég gekk út tómhent og hágrátandi. Beljan er einn eftir og útlitið með hann er ekki glæsilegt.

Þetta er víst mjög algent skv. dýra að kettlingar fæðist vanskapaðir ef læðan hefur verið á pillunni. Er þá allt þar inní, vansköpun á útliti, gallar á líffærum, vatnshöfuð og geðveila, þannig að það er víst meira en að segja það að það komi réttskapaðir kettlingar þessa dagana. Einnig sagði dýri að vansköpun væri orðin miklu algengari núna á gæludýrum heldur en hann sá til fyrir ca. tíu árum síðan og það væri ekki bara getnaðarvarnarpillum að kenna.

Hvað ætli valdi þessu? Mengun?

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com