Þessi vika hefur svo innilega ekki verið að gera sig. Setti mér markmið á sunnudagskvöldið að vaxa á mér labbirnar og plokka á mér augabrýrnar… hvorugt hefur komist í verk… þvílíkt girnó!
Fór í keilu í gær með vinnunni og ég var skammarlega léleg. Kúlan fór miklu oftar í rennuna heldur en á keilurnar og þegar kúlan fór loksins í keilurnar þá náði ég kannski einni niður. Skil ekki hvað það átti að þýða. En skammarverðlaunin voru mín… þessi fína sturtusápa, þannig að þetta var ekki alslæmt.
29. jan. 2004
Þessi vika hefur svo innilega ekki verið að gera s…
28. jan. 2004
dííí hvað ég er búin að vera með bulluna í dag..! …
dííí hvað ég er búin að vera með bulluna í dag..! Held að svefnleysi sé farið að hrjá mig alvarlega… hef farið í rúmið núna undanfarið um tvöleytið og sofnað kannski um þrjú núna sl. tvær vikur, ef þessu heldur áfram fer bullið að breytast í dónaskap…
svo var ég stoppuð af löggimann í gær á Suðurlandsbrautinni þegar ég var á leiðinni heim frá erlu perlu… klukkan var orðin frekar mikið og engin umferð, þannig að ég tók því bara rólega… og já stöðvuð af lögreglunni sem hafði greinilega ekkert betra að gera. Ástæðan. Jú ég ók víst svo rólega, ég rétti kalli ökustírteinið og setti á hann í leiðinni pirringssvipinn sem hefur hingað til eingöngu verið ætlaður lilla bró á sérstökum tyllidögum. Kall rétti mér skírteinið óskoðað og þakkaði pent fyrir sig og bauð góða nótt. Grey lilli bró ef svipurinn hefur svona áhrif á mann vopnaðan kylfu.
Svo tók ég þá ákvörðun í síðustu viku að íbúfen væri óvinurinn en ekki vinur í raun og hjálp í neyð. Svei mér þá… hef verið með höfuverk og læti, ekki lengi gert að verða háður þessu helvíti. Rófubeinið hefur því bara mátt eiga sig þessa dagana, ef því er illt og er að kvarta, þá bara eins og maður segir á góðri íslensku tough shit..!
27. jan. 2004
Ég er búin að fá svooo mikið ógeð á íbúðinni minni…
Ég er búin að fá svooo mikið ógeð á íbúðinni minni. Þannig að ef þið lesendur góðir vitið um eitthvað á skikkanlegum prís látið mig vita.
Svo gerði ég þessi rosa reyfarakaup í dag. Fékk rosalega flott ítölsk leðurstígvél á fimmkall… vinkona einnar sem er að vinna með mér kom með haug með sér að utan.
Held samt ég sé komin á byrjunarstig með alvarlegt skófetish. Meina ég á tvenn stígvél fyrir. Samt ekki eins flott og þessi… og á þessu verði… gat ekki látið þau fara frá mér, held líka þegar ég verð komin í stærri íbúð þá mun ég ekki eiga eins mikið af skóm… forstofan er minna en frímerki og skórnir flæða þarna út um allt. Ekki lekkert.
23. jan. 2004
Mikil bloggleti hefur hrjáð mig núna upp á síðkast…
Mikil bloggleti hefur hrjáð mig núna upp á síðkastið…. en oh well….
Helst er í fréttum að kisan er ólétt.
Hún fór einu sinni út, einu sinni! og hefur ekki þorað út síðan. damn ég er ekki alveg sátt við stöðu mála. Hef ekki pláss fyrir heila fjölskyldu í augnablikinu.
13. jan. 2004
Ég á ammæli í dag, ég á ammæli í dag, ég á ammæli …
Ég á ammæli í dag, ég á ammæli í dag, ég á ammæli ég sjálf..! ég á ammæli í dag!
Veeeeeeeeiiiiiiiiii…..
En ég þarf svo sum ekkert að skrifa þetta. Hef heyrt afmælissönginn margoft í dag. Alltaf jafn fallega, enda er ég líka bara að vinna með fallegu fólki.
Svo keypti ég afmælisgjöf fyrir sjálfa mig. Þessa fínu hvítu úlpu. Hún er að vísu ekki mjög praktísk þar sem það er strax kominn mjög dökkur skítablettur í hana. Úr uppruna fæst ei skorið, því miður.
Það er nú samt pínu öfugsnúið að vera komin á bíl og kaupa sér svo úlpu. Ég komst kannske ekki svo léttilega í sollis leiðangur bíllaus… já… það gæti verið skýringin.
Ég var með þetta rosa matarboð á sunnudaginn fyrir erlunar og fylgihlut. Fyllt hvítlaukslæri á franska vísu með ofnbökuðum rósmarín kartöflum og sósu úr soðinu og í eftirrétt var heimabökuð pekanbaka með þeyttum rjóma. Einnig var grænmetissréttur í boði fyrir grænmetisætuna.
Ég var gjörsamlega búin á því eftir þetta. Ég á bara þrjá potta og ofninn er ekki sá skemmtilegasti. En þetta hafðist. Og var svona líka ljúffengt.
Það er samt miklu einfaldara að hringja bara í Dominos frænda og láta hann elda fyrir sig.
09. jan. 2004
vííííí…! komin með burrus.. Alger pæjubíll… …
vííííí…!
komin með burrus..
Alger pæjubíll… strákarnir troðuðu held ég öllum aukahlutum á hann… stoppaði þá samt af með spoilerkitt og drasl.
Nú er spurning hvort að standsetningin hafi gert einhvern grikk… kemst að því á eftir.
Fór svo með erlu perlu á In the Cut í gær… hún er ömurleg. Ég hef aldrei áður á ævi minni sofnað fyrr en í bíó fyrr en í gær.
Svo þegar við ætluðum að haska okkur þegar kreditlistinn kom þá stóð ekki nokkur kjaftur á fætur..! damn… þannig að mar sat út allann helvítis listann.
En það er ljós í myrkrinu… fórum á Café Pucchini eftir á og þeir bjóða upp á besta kaffi sem ég hef fengið.
05. jan. 2004
damn..! VillagePhotos klikkuðu… Veit einhver h…
damn..!
VillagePhotos klikkuðu…
Veit einhver hvar er hægt að geyma myndina sem Á að vera efst ókeypis?
Rosalega er nú erfitt að komast aftur í sama fílin…
Rosalega er nú erfitt að komast aftur í sama fílinginn og fyrir frí..!
Ég var gjörsamlega búin að snúa við sólarhringinum og ekki var Harry Potter til að hjálpa þegar ég kom suður aftur.
Þegar svona er komið dugar ekkert annað til heldur en grimmd..!
Svaf bara í þrjá tíma á aðfararnótt sunnudags… eða réttara sagt á sunnudagsmorgninum og harbannaði sjálfri mér svo að fá mér lúr… þó mig dauðlangaði þá hélt ég þetta út og fór að lúlla kl. eitt um nóttina og vaknaði svona líka helvíti fín í morgun.
Bíllleysið er komið á svo mikið pirringsstig að burruss verður pantaður bara núna á eftir..!