Nöldur og ljótar hugsanir..!

30. sep. 2003

Ég komst lífs af frá skrímslunum mínum..! En ég v…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:10

Ég komst lífs af frá skrímslunum mínum..!

En ég verð að játa að ég var orðin frekar þreytt á -Skeina mér! upphrópunum frá þessarri stuttu, held að hún hafi vitað að ég sé ekkert sérstaklega hrifin af þessu fyrirbæri, þannig að þakið rifnaði reglulega af fyrir þrjá dropa og oftar en ekki einhverjum draugaskít.

Piss og kúkur er bara ekki fyrir mig.

En að öðru….

Það fór ein hérna í vinnunni til grasalæknis um daginn og henni var sagt að til að vita hvað hún mætti borða og hvað ekki, ætti hún að halda matnum í höndunum, þrýsta svo að líkamanum undir barminn og loka augunum. Ef hún hallaðist áfram þá væri þetta eitthvað sem líkaminn væri hliðhollur, ef hún hallaðist aftur á móti afturábak væri líkaminn ekki sáttur við vöruna.

Þannig að það var bókstaflega allt matarkyns prófað í hádeginu á dag..!

Ef einhver hefði nú séð til okkar hefði viðkomandi líklegast haldið að nú værum við sko endanlega orðnar klikk..!

Það sem kom út úr þessu hjá mér er að brauð er í lagi, ostur, brokkólí, en bjór, gos er ekki í lagi og epli (sem ég þoli ekki) fara sérstaklega illa í mig. Prufaði líka skyr og þá hreyfðist ég ekki neitt. Hmmm…. ætli það þýði að ég megi borða það ef mér þykir það gott?

Hún er sérstaklega hötuð sem hallaðist áfram með hendurnar fullar af fríhafnarnammi!

Ætli við förum ekki allar svo í gegnum ísskápinn og eldhússkápana.

Hef allavega eitthvað að gera hjá mér næstu dagana.

Matti patti er svo eins árs í dag og Majus hringdi áðan til að bjóða mér í pönnsur, (ef ég steikti þær fyrir hana!)

26. sep. 2003

Ég elska nýju klippinguna mína. Ég get snooze’að e…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:10

Ég elska nýju klippinguna mína. Ég get snooze’að einu sinni oftar en vanalega af því að þetta er svo ferlega low maintenance… bara klístur á lófana, skella í og þá er ég reddí..!

Er að fara austur á eftir til að passa skrímslin hennar systu. Held að ég sé bara allt of góð að láta mig hafa það. Lilli bró er að fara vestur þannig að ég hefði haft íbúðina út af fyrir mig og svo er jeppaferð á morgun á vegum vinnunnar þannig að ég er að tapa fullt fullt af penge.

En svo er annað á móti… er búin að fá nóg af íbúðinni minni og líka nóg af vinnunni… tvær helgar í röð tileinkaðar henni er alveg nóg.

Hér er svolítið til umhugsunar … Þetta er ek…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:14

Hér er svolítið til umhugsunar …

Þetta er ekta sálfræði próf sem byrjar svona:

Það var einu sinni kona sem var í jarðaför móður sinnar. Í jarðaförinni hitti hún mann sem hún hafði ekki séð áður. Þessi maður var svo fallegur að konan hafði aldrei séð annað eins. Hún hélt ekki vatni yfir þessum draumaprins og varð ástfangin upp fyrir haus. Hún komst þó aldrei til þess að fá hjá honum símanúmerið vegna anna í jarðaförinni. Nokkrum dögum seinna drap konan systur sína.

Spurningin er: Hvers vegna drap hún systur sína? Spáðu í þetta áður en þú skrollar niður. Til að þetta próf virki, þá er nauðsynlegt að gera það rétt!

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Svar:

Hún vonaðist til þess að maðurinn kæmi í jarðaför systur sinnar. Ef þú gast rétt þá hugsarðu eins og geðsjúklingur. Þetta próf var gert af bandarískum sálfræðing til að athuga hvort fólk hugsi eins og morðingi. Margir fjöldamorðingjar hafa verið látnir taka þetta próf og svöruðu þeir allir rétt. Ef þú hins vegar svaraðir ekki rétt, gott hjá þér og gleður mig að vera vinur þinn! Ef vinir þínir fá bingó við þessarri spurningu, þá mæli ég með því að þú skiptir um vinahóp og haldir ákveðnri fjarlægð frá þeim. Endilega láttu mig vita ef þú svaraðir rétt svo ég geti tekið þig af e-mail listanum mínum (svo lengi sem þú verður ekki reiður). Ef það pirrar þig eitthvað þá lofa ég því að vera extra góður við þig frá og með núna..!

25. sep. 2003

Í morgun á leiðinni í vinnunna heyrði ég the Balla…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:28

Í morgun á leiðinni í vinnunna heyrði ég the Ballad of Chasey Lane með Bloodhound Gang í útvarpinu.

Ég verð að játa að mér hitnar alltaf aðeins í kinnum og tómatasyndromið fer á stutt flug.

Ekki af því að textinn eða eikkva er dónó. Heldur af því að ég fattaði aldrei textann.

Hélt í fúlustu alvuru að það væri verið að syngja um Dick Tracy..!

Það er nebbla ekki svo langt síðan ég fattaði að það væri verið að syngja um klámmyndastjörnu. Og hvað gerir fíflið ég..?

Fíflið ég hélt þessu ekki fyrir sjálfan sig… nei… heldur þurfti fíflið ég að deila þessu með vini mínum sem er því miður söngvari í hljómsveit sem spilar alltaf þetta lag þegar þeir spila. Ég hélt hann myndi kafna úr helvítis flissi… ég hélt ég myndi drepa hann þegar hann tileinkaði þetta lag til mín og sagði heilu balli af hverju…

Já já góðar minningar..!

Dear Chasey Lain

I wrote to explain

I’m your biggest fan

I just wanted to ask

Could I eat your ass?

Write back as soon as you can

You’ve had a lotta dick

Had a lotta dick

I’ve had a lotta time

Had a lotta time

You’ve had a lotta dick Chasey

But you ain’t had mine

Dear Chasey Lain

I wrote to complain

Ya never wrote me back

How could I ever eat

Your ass when ya treat

Your biggest fan like that?

You’ve had a lotta dick

Had a lotta dick

I’ve had a lotta time

Had a lotta time

You’ve had a lotta dick Chasey

But you ain’t had mine

Dear Chasey Lain

I wrote to constrain

This letter is my last

As your biggest fan

I must demand

You let me eat your ass

You’ve had a lotta dick

Had a lotta dick

I’ve had a lotta time

Had a lotta time

You’ve had a lotta dick Chasey

But you ain’t had mine

P.S.

Mom and Dad this is Chasey

Chasey this is my Mom and Dad

Now show ‘em them titties

Now show ‘em them titties

P.S.

Mom and Dad this is Chasey

Chasey this is my Mom and Dad

Now show ‘em them titties

Now show ‘em them titties

Would ya fuck me for blow?

24. sep. 2003

Ég fór í klippingu í gær og er bara ógisslega sátt…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:19

Ég fór í klippingu í gær og er bara ógisslega sátt við allt saman..!

En svo er annað sem er ekki jafn gleðilegt. Það er í rörunum að selja íbúðina sem ég hef leigt núna í tvö og hálft ár. En ég hef sex mánaða frest til að finna eitthvað annað. Held samt að ég lendi í vandræðum með kallinn sem er hugsanlega að fara að kaupa, því þegar hann kom til að skoða spurði hann mig þrisvar sinnum hvort ég hefði löglegan leigusamning og hver uppsagnarfresturinn væri. Og hann var þarna kannski í fimm mínútur… þannig að hann hlýtur að vera að spá í einhverjum andskotanum..!

En íbúðin mín er ekki beint beisin þótt hún sé rosalega krúttaraleg. Er nebbla hætt Pollyönnuleiknum aðeins of snemma..!

Núna finnst mér meira en ömurlegt að þurfa að fara út og niður í þvottahús til að fara í sturtu… þetta var bara frekar pirrandi áður.

Núna finnst mér hræðilegt hvað blæs mikið inn um gluggana hjá mér, áður þá bara dró ég fyrir og hækkaði í ofnunum.

Núna er alveg skelfilegt að þegar það hvessir þá blæs vindurinn hressilega í gegnum innstungurnar hjá mér. Ég setti bara sem flest rafmagnstæki í samband til að minnka þetta aðeins.

Og ýmislegt fleira sem er að fara með mig núna, eins og það að ég veit hvort að nágrannarnir eru að vaska upp glös eða hnífapör, hvort það er gert stórt eða lítið á klóstinu og hver fékk að ríða um helgina.

hmm… miðað við þennann pirring verður fróðlegt að sjá hvað ég muni þá sætta mig við.

22. sep. 2003

Djöfull er markaðsdeildarilmvatnstybbann ekki í ná…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:33

Djöfull er markaðsdeildarilmvatnstybbann ekki í náðinni núna.

Andskotinn..!

Ferðin á laugardaginn var helber snilld. Veðrið…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:18

Ferðin á laugardaginn var helber snilld.

Veðrið var að vísu algjör viðbjóður, og fannst mér vont að geta ekkert nöldrað yfir því. Það er nebbla smá ókostur að vera í svona nefnd. Þá má mar ekki nöldra neitt, heldur bara vera úberhress og segja. -Hva! nei nei engann aumingjaskap.. það er ekkert að veðri.. bara að klæða sig vel..!

En það var bara ein þraut af nokkrum sem var úti þannig að þetta slapp.

Ein þrautin var að fara braut á fjórhjólum.. s.s. driverinn var með bundið fyrir augun og svo átti annar að leiðbeina. Minns var driver… og fyrst þá átti maður að keyra hring í kringum staur og þ.a.l. varð maður alveg gjörsamlega áttavilltur. En þetta tókst nú með ágætum hjá okkur.

Hinar þrautirnar gengu einnig allar á traust og samvinnu. Ein þrautin var þannig að það héldu allir í kaðal með annarri hendi, og svo áttum við að hnýta hnút og það mátti ekki sleppa hendinni af kaðlinum og ekki anda frá sér einu einasta orði..!

Og náttla teknir upp nokkrir bjórar..! eða shitlóds réttara sagt.

Þegar í bæinn var komið, hafði mar smá tíma til að greiða sér og svo var farið niður í bæ, þar sem var drukkið meira og skemmt sér enn meira.

Needless to say… þá var ég með þynnku helvítis og dauðans í gær. Svei mér þá ef það er ekki enn vottur af þynnkuhelvítinu..!

Lilli bró aumkaðist yfir mig með einn feitann hammarra og franskar og ég náði rúminu af mömmu um hádegisbil… var alltílæ eftir það og þrjár treo töflur.

Held barasta að mar ætti að vera sniðugur eins og sumir… hætta að drekka um miðnætti og halda sig við kranavatnið.

Svo er mér skítkalt í dag. Sit hérna með húfu og horfi löngunaraugum á vettlingana mína. Eru frekar girnó sko..!

Jammsss sit í móttökunni með allt of stóra babybláa húfu með dúskum á. Lekkert eða hitt þó heldur..! Svo snýti ég mér líka þegar mér sýnist..! Er bara virkilega girnileg í dag eða hitt þó..!

19. sep. 2003

mikið ossalega er ég nú stolt af mér..! Mútter ko…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:29

mikið ossalega er ég nú stolt af mér..!

Mútter kom í heimsókn á miðvikudagskvöldið sem er nú ekki í frásögur færandi nema það var ekki farið út í einhverjar svaða hreingerningar, heldur var bara farið í það að ríma fyrir dínunni. Ekki þörf á svaða hreingerningum… allt tekið jafnóðum.

En ég neita því alls ekki að ég var með Ryksugulagið á heilanum allann helvítis miðvikudaginn..!

Ryksugan á fullu, étur alla drullu,

tralalala…

Sópa burtu ryki, með kústi og gömlu priki,

tralalala…

Ef þú getur ekki sungið reyndu þá að klappa.

Og ef þú getur ekki klappað reyndu þá að stappa.

Svo söngflokkurinn haldi sínu lagi

og syngi ekki sitt af hvoru tagi.

Út með allan skítinn, svo einhver vilji líta’inn,

tralalala…

Skúra, skrúbba og bóna, rífa af öllum skóna,

tralalala…

Ef þú getur ekki sungið reyndu þá að klappa.

Og ef þú getur ekki klappað reyndu þá að stappa.

Svo söngflokkurinn haldi sínu lagi

og syngi ekki sitt af hvoru tagi.

Er búin að vinna mest lítið í dag… endalaust stúss í sambandi við ferðina á morgun.

Fór í Egils og fékk hellings af gosi gefins, já og shitlóds af snakki..!

Svo er spáin agaleg fyrir morgundaginn. Stormviðvörun þakka þér fyrir..! En mar lætur sollis ekki á sig fá. Bara að klæða sig vel. En það þýðir að ég verð að banka upp hjá öllum vinum og kunningjum og nágrönnum ef allt annað bregst. Regngallinn er nebbla fyrir vestann. Mar er orðinn svo fínn með sig hérna að bíllinn eru einu skjólklæðin sem þörf er á.

17. sep. 2003

núna sl. korterið eða svo hef ég verið í því að ve…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:47

núna sl. korterið eða svo hef ég verið í því að vera vond við frekju.

Vonandi fær hann feitann símareikning.

Aldrei vera óggislega dónalegir við símadömur… það er aldrei að vita nema hún geti gert einhvern andskotann..!

16. sep. 2003

dúmm dúmm dúmm dúúmm dúúmm… I’m gonna fight ‘…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:08

dúmm dúmm dúmm dúúmm dúúmm…

I’m gonna fight ‘em off

A seven nation army couldn’t hold me back

They’re gonna rip it off

Taking their time right behind my back

Ég er að fara til Indriðastaða á laugardaginn í ævintýraferð sem við erum búin að skipuleggja.

Hlakka bara ekkert smá til..!

And I’m talkin’ to myself at night

Because I can’t forget

Back and forth through my mind

Behind a cigarette

Hélt samt að það væri nú minnsta málið að skella í eina svona ferð, en þetta er aðeins flóknara en það. Fullt af smáatriðum sem mar spáði barasta ekki í..!

And the message comin’ from my eyes says leave it alone…

Svo fékk ég líka þennann fína díl á Vídalín um kvöldið..! VEI..!

Don’t wanna hear about it

Every single one’s got a story to tell

Everyone knows about it

From the Queen of England to the Hounds of Hell

Jeppaferðin var fín..! Að vísu rigndi eins og andskotinn og það varð alltaf bálhvasst ef mar þurfti eitthvað að stoppa.

Svo var grillað upp í Kerlingafjöllum og það kom bara fínt veður á meðan, bara eins og einhver hefði legið á bæn og fengið pöntunina afgreidda.

And if I catch you comin’ back my way

I’m gonna serve it to you!

And that ain’t what you want to hear

But that’s what I’ll do

Ég hélt bara einu sinni að ég myndi deyja… og fæ auðvitað að heyra glósur frá drivernum það sem eftir er… he he he…

Svo var bíllinn með þriggja millimetra þykkt lag af drullu á sér… ossa sætur..! og þar sem ég er pempía í þriðja veldi þá var ég með latexhanska á mér til að opna bílinn og auðvitað fékk ég enn meira djók á mig út af því..!

And the feeling coming from my bones says find a home…!

Við vorum tvö saman í bíl með heilt helvítis grill og einhverjar grindur og stállappir fyrir borð og þetta hristist allt saman svona rosalega vel allt saman þarna afturí. Grillið hélt þetta rosalega trommusóló og hitt reyndi eftir megni að slá það út.

I’m going to Wichita

Far from this opera forevermore

I’m gonna work the straw

Make the sweat drip out of every pore

Við vorum svo komin í bæin um níuleytið, pínu skítug og slompuð. En það var auðvitað ákveðið að nokkur okkar myndi fara og fá okkur eins og einn öllarra eða svo.

Bara heim í sturtu fyrst og greiða sér og svona… já já…

And I’m bleeding, and I’m bleeding, and I’m bleeding

Right before the Lord

All the words are gonna bleed from me

And I will think no more

Þegar ég kom heim ákvað ég nú aðeins að setjast í sófann áður en ég færi í sturtu og gerði mig sæta.

Ég grjótsofnaði þar í skítugu fötunum, og vaknaði ekki aftur fyrr en seint um nótt og skreiddist inn í rúm.

Enginn okkar mætti í bjórinn… allir dauðir í sófanum..!

And the stains comin’ from my blood tell me “Go back home”…

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com