Nöldur og ljótar hugsanir..!

29. ágú. 2003

Ég er alveg búin að komast að þeirri niðurstöðu að…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:43

Ég er alveg búin að komast að þeirri niðurstöðu að þessi helvítis höfuðverkur sem er búinn að hrjá mig síðustu þrjá daga sé helvítis tannlækninum að kenna.

Bitið er allt einhvern veginn skakkt og hriiikalega sárt ef ég bít óvart fast saman. Samt er þetta nú barnaleikur miðað við hvernig þetta var áður en ég lét hana taka af þessu fjalli sem var einu sinni tönnin mín. En núna er svona hóll eftir og hann er að gera mig gjörsamlega gráhærða. Get ekki hætt að skoða hann með tungunni og glamra saman tönnunum bara af því að það er eitthvað þarna sem bara á alls ekki að vera þarna.

Læt helvítis tannlækninn heyra það á mánudaginn… en voðalega er ég hugrökk núna. Enda ábyggilega á því að afpanta og panta svo aldrei hjá henni aftur og forðast símtöl frá henni… en ef ég verð alveg rosalega hugrökk segi ég henni að ég sé það óánægð með hennar vinnubrögð að ég ætli ekki að kaupa hennar þjónustu framar. Ef mér tekst að koma þessu út úr mér, þá verð ég rosalega montin með sjálfa mig.

Þoli ekki svona fólk sem hlustar ekki á hvað maður hefur að segja. Þetta eru jú mínar tennur..!

(Þetta er ekki einhver tannlæknafóbíuafsakanir, þarf að finna annan til að laga helvítið.)

Auglýsi hér með eftir góðum tannlækni, helst einhvern sem svæfir mann (t.d. úr leiðindum, en lyf er vel þegin) og gerir mann ekki gjaldþrota út af einni fyllingu.

Alveg týpískt..! Svona oftast nær þegar ég ákveð …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:49

Alveg týpískt..!

Svona oftast nær þegar ég ákveð að mæta í pæjuskónum með megahælnum, enda ég á hlaupum um allt hús..!

Og það fer ekkert á milli mála þegar ég er á ferðinni á flísunum hérna..!

klonk klonk klonk hljóð þegar ég er á svona melló hraða.

klankedí klankedí klankedí klang þegar ég er að flýta mér

og svona klank klank klank þegar ég er að dóla mér…

Og þá vitiði það..!

Var dregin óvissuferð í gær, Ingibjörn er alveg óþolandi eftir að hann fór í þennan lífvarðaskóla, það er ekki hægt að ná neinu upp úr honum. Allavega þá kom hann og náði í mig og svo í vini sína um níuleytið þá byrjar hann rúnta um einhverstaðar út í rasskati..!

Ég og Inga erum svo á endalausu tuði…

-Ingibjörn! Hvert erum við að fara..?

–Það kemur í ljós.

-Ingibjörn! Hvað erum við að fara að gera?

–Það kemur í ljós.

-Iiiingiiibjööööörn..! Seeegðu okkur…

–Það kemur í ljós.

Needless to say þá var kvenfólkið orðið frekar pisst á þessu “það kemur í ljós”

En við fórum á Freddy vs. Jason , sem var alveg ótrúlega vel til fundið því ég eeelska hryllingsmyndir.

Svo er erla perla búin að bjóða mér með sér á hjálpartækjakynningu á morgun. Þetta eru víst ekki hækjur ef einhver er að spá í því.

28. ágú. 2003

Ég hef stundum furðað mig á fólki sem þarf alltaf …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:48

Ég hef stundum furðað mig á fólki sem þarf alltaf að hafa sinn fasta stað. Eins og beljur á bás. Var að vinna í frystihúsi einu sinni og það lá við slagsmálum stundum þegar sumarstelpurnar fóru “óvart” við borðið hjá föstu tjellingunum. Þekki eina sem getur ekki sest í kaffinu og borðar brauðið sitt og kakóið ef einhver situr í sætinu hennar. Ég hef hreinlega látið svona fólk fara í taugarnar á mér og oft gert mér í far um að passa upp á akkúratt þetta að festast ekki á einhverjum bás.

Eeen svo get ég orðið alveg snarbrjáluð ef einhver er búinn að leggja í stæðið mitt heima hjá mér. Verð bara sármóðguð og finnst á einhvern hátt að það sé verið að troða á mér. Til dæmis var í gær einhver ljótur skódi í stæðinu mínu. Hugsaði feitt til allra fugla á svæðinu hvort þeir væru nú ekki til í að skíta soldið vel á hann..!

27. ágú. 2003

Alltaf gerist nú eitthvað skemmtilegt hérna upp á …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:54

Alltaf gerist nú eitthvað skemmtilegt hérna upp á hálsi..!

Rétt í þessu komu tveir gaukar eikkva skrýtnir í framan með þessa líka risapöddu í farteskinu..! Voru að testa nýju fimmuna þegar það kemur þessi svaða bjalla og ræðst á þá..! Þeir bremsuðu med det samme og svo upphófst víst æsileg hálftíma veiðiferð inn í burruss. Mér finnst þeir vera soldið hugrakkir. Ef ég hefði verið ein og þetta flykki hefði svifið til mín, hefði ég bremsað á punktinum, sama hvar ég hefði verið og hlaupið svo öskrandi til fjalla. En ef einhver hefði verið með í för hefði ég nú bitið á jaxlinn, skrúfað niður allar rúður og reynt að koma skrímslinu út. Með harðlokaðan munninn og ef ég gæti lokað eyrunum líka..!

En þeir sniðugir… vildu ekki láta ófögnuðinn fjölga sér á okkar ástkæra landi.

oj

26. ágú. 2003

Fyndið svona skítkast á bloggdrottningar landsins,…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:47

Fyndið svona skítkast á bloggdrottningar landsins, katrin.is og Beturokk eins þessi á www.trukkalesba.tk. Þetta er bara til að vekja á sér athygli og ekkert annað..!

það er point með því að ekki voru settir inn tenglar.

Skadi.First priority: Winning. Which female char…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:59

Ragnarok is coming, we can't avoid it, can't change it, the least we can be is ready.
Skadi.
First priority: Winning.

Which female character from Ragnarok are you?
brought to you by Quizilla

Mér varð einmitt hugsað til Sidney Bristow þegar é…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:08

Mér varð einmitt hugsað til Sidney Bristow þegar ég lá andvaka í nótt. Sidney er svaða skutla og njósnari. Fyrst þegar ég sá Sidney á skjánum voru vondu kallarnirn búnir að ná henni og dunduðu sér við að draga úr henni tennurnar. Auðvitað slapp hún og náði til góðu kallana þar sem hún sat og talaði við njósnara hönkið pollróleg með engar tennur. Mér finnst þetta vera hámark hugrekkisins.

En ætli svona njósnara píndarar hafi aldrei lent í því að ætla að pínda einhvern og hann bara… -Been there…. done that..! og skutlar úr sér fölsku tönnunum, sem bíta sig fastar um leið við nef píndarans og leka úr sér eitri þannig að píndarinn fær makleg málagjöld og deyr kvalafullum niðurgangsdauða.

já já var smá súr í nótt..! Og verð líklega súr í allan dag. Var nebbla hjá tannsa í morgun. En ég hef alveg nóg til að dreyfa huganum, því það eru þvílíku staflahaugarnir sem hafa safnast saman hérna í sumar og svo er ný að byrja hérna á morgun og mar vill náttla ekki láta neinn koma að svona. Gæti fælt frá sko..!

En með tannsann. Ætla að láta hana laga þetta sem liggur á og svo má druslan bara fara til helvítis. Mitt litla tannlæknahræddafóbíuhjarta má ekki við svona. Er ekki enn ánægð með HELVÍTIS fyllinguna, hún er allt of gróf, eins og sandpappír, ekki slétt eins og tennur eiga að vera. Ég þurfti að biðja hana sérstaklega um að pússa helvítið. Og hún bara eikkva

- nú en ég er búin að því.

– Nei! hún er allt of gróf og ég finn það meira segja með fingrunum, pússa takk..! (ógisslega stolt af mér! ég kom upp orði!)

- (tannsi) jaaa stundum þarf að pússa svona aftur… tungan er svo næm sko.

- Þú varst ekkert búin að pússa þetta.

– núú…. (á innsoginu) og ábyggilega hugsað um hvað þessi sé nú djöfulli erfið.

Druslan pússaði, en ekki nóg.

Ég bara skil ekki að konan hafi nokkurn einasta fastakúnna… ætli hún lifi ekki á svona ösnum eins og mér..! Eða af túristum sem villast upp til hennar og hei! Tannlæknir! kannski ég láti kíkja á tannpínuna.

Eins gott að ég er ekki norn, annars væri kellingarhelvítið dauð. En ljótt karma bítur mann í rassinn..!

25. ágú. 2003

Helgin byrjaði nú ekkert ossa vel… Fór í bjútíl…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:44

Helgin byrjaði nú ekkert ossa vel…

Fór í bjútíleik til Maju og fengum við okkur rauðvín og fínt. En þegar ég er að labba heim fer ég að velta fyrir mér hvað væri eiginlega vitlaust við töskuna mína… hún var eikkva svo asskoti létt..! Það kom svo fljótt í ljós að engir hússlyklar voru á svæðinu… Lilli bró á djamminu og ég var ekki búin að þjálfa köttinn nógu vel. Þannig að það eina sem hægt var að gera var að grenja í lilla bró um að koma og bjarga stóru systur. Þannig að ég sat í fýlu frá kl. 01:53 til 02:07 á tröppunum mínum… en varð ekki vör við neinn jarðskjálfta… en það er svo sem ekkert að marka. Tröppurnar mínar láta alltaf eins í stórsjó.

En restin var bara ossa fín. Fór ekki lengra frá rúminu en ég þurfti… náði að klára Dreamchatcer eftrir uppáhaldið mitt og næstum því að klára sjalið fyrir Gnesu.

En það fór lítið fyrir útstáelsi. Kannske af því að ég fékk ekki bara ungfrú bólu í heimsókn, heldur helvítis maddömmu með offituvandamál..! Oj…

22. ágú. 2003

Sýningin í gær tókst bara alveg með ágætum..! Þó é…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:13

Sýningin í gær tókst bara alveg með ágætum..! Þó ég sæi nú ekki tilgang með veru minni þar. Labbaði um með kampavínsglas í hönd, dreypti á og spjallaði þess á milli við liðið sem var þar… fínt, var á launum. Er að drepast í helvítis tönninni eftir tannsa… greyið ég! Með tannlæknafóbíu dauðans og þarf að fara aftur. Fyllingin er of stór eða eikkva. muuu…

En á mjög svo interressant deit við rúmið mitt. Á allavega inni slatta kvóta af nætursvefni sem ég þarf að vinna upp.

Góðar stundir.

21. ágú. 2003

Ég er nú meiri helvítis lúserinn..! Fór til tan…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:35

Ég er nú meiri helvítis lúserinn..!

Fór til tannsa í morgun og var ekki búin að sofa nema kannski í þrjá tíma bara út af pjúra helvítis stressi.

Svo var ég auðvitað látin svitna aðeins í biðstofunni í hálftíma og ekkert þar að lesa nema gamall Skinfaxi.

Það var kominn allsvaðalegur flóttasvipur á mig þegar ég var kölluð inn og þá var ég búin að bíða aaallt of stutt… Skinfaxi var bara orðinn áhugaverður.

Það var baaara verið að skipta um fyllingu og faktíst séð hefði ekki þurft að deyfa mig, en þegar tannsi bað mig vinsamlegast um að eyðileggja ekki stólinn hennar þá birtist deyfisprautan. Fínt að fá plástur á sálina.

En ég er alltaf eins og bjevuð drusla eftir svona lífsáreynslu og langar bara að vera upp í rúmi og grenja. En ekki fara að vinna á helvítis sýningu á eftir fyrir “fína” fólkið, þar sem maður á að vera súperhress og “mingla”. Sérstaklega þar sem ég er einstaklega drusluleg og lít út eins og ég hafi verið að grenja úr mér augun sl. viku eða svo. Er með tannpínu líka… fékk mér kaffi áðan og ég sá bara stjörnur og sólir…

muuu…..

Mig svíður líka í peningaveskið mitt..!

muuu…..

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com