Nöldur og ljótar hugsanir..!

31. júl. 2003

Tannsi var næstum því ekkert terrible..! Þurfti e…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:23

Tannsi var næstum því ekkert terrible..!

Þurfti ekki að vinda sokkana mína, né skipta um bol og svo kostaði þetta ekki margar millur..!

En þegar ég kom var hún búin að rústa tölvunni sinni og sagði eitthvað í þá áttina að ég ætti bara ekkert að komast til tannsa..! Ég var fljót að sjá útgönguleið og var bara að flýja af svæðinu… hún sá held ég, flóttalegt augnaráðið og var fljót að koma mér í stól til að taka myndir…

-Svona gæskan… ég get alveg án tölvunnar verið.

–Er það..? Ég get alveg komið aftur seinna (eða bara aldrei)

-Ekkert mál. Er ekki þræll tölvunnar.

–Ertu alveg viss.

-Já. Fáðu þér sæti. (hvass tónn)

Og auðvitað þorði ég ekki öðru.

En hvað var ég að spá… ég með mína tannlæknafóbíu. Konan er með svona eftirnafn… en spáði ekkert mikið í það því það er íslenskt. En kvensan er sumsé þýsk…

Best að reyna að vera ekki með svona þjóðafordóma… alltílæ með kana samt..!

Komst að því hjá tannsa að ég er rosalega þróuð. Ég er ekki með endajaxla. Þannig að núna get ég lagt á hilluna eitt af mínum stærstu martraðarefnum.

Komst einnig að því að tannsinn fyrir vestan vinnur á steinaldarstiginu. Það var nebbla þannig að nýr jaxl táknaði heimsókn til tannsa… hann spólaður upp og fylltur á ný… og feit dæld í budduna hjá mútter. Tannsi var ekkert smá hneykslaður.

ó guð ó guð ó guð… Ég er að fara til tannsa á e…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:59

ó guð ó guð ó guð…

Ég er að fara til tannsa á eftir…

ó guð ó guð ó guð……

Og það er aldrei gott þegar töllukallinn sest fyrir framan töllunna hjá manni og segir bara “Ó shit!” …!!!!

29. júl. 2003

ojj… frakkar eru ekki í náðinni núna..!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:33

ojj… frakkar eru ekki í náðinni núna..!

28. júl. 2003

sko…. Ekki búin að jamma lengi en nú var sko te…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 12:24

sko….

Ekki búin að jamma lengi en nú var sko tekið á því um síðustu helgi..!

Strætó var byrjaður að ganga þegar ég var á leiðinni heim á laugardagsmorgninum og sólin komin upp um heimferð á sunnudagsmorgninum.

Ógisslega gaman..!

Þarf að gera þetta oftar.

En merkilegt hvað vinnan læðist oft að manni… var að dansa með Gósk og þá fékk ég bara þessa þvílíku hugljómun um hvernig best væri nú að senda eitt helvítis helvíti aftur til heimahúsanna.

Jæja… fór á barinn og drakk bara meira. Ekki sniðugt… nei nei nei nei… mar á ekki að hugsa um vinnunna… drekka meira… dansa meira.

Svo í morgun þegar ég fór að huga að helvítinu… sá ég að þetta var bara ekki svo galin hugmynd..! Allavega það litla sem ég mundi. ehemmm…

Annars er það að frétta af mér að ég lét loksins verða af því að panta tíma hjá Tannsa. Fer á fimmtudaginn… en mig vantar ennþá svona róandi töflur og bíður einhver sig fram til að halda í höndina á mér… og draga mig að stað? Held að ég yrði rosalega fegin að lenda bara í einu stykki litlu bílsslysi á leiðinni til tannsa.

Ó guð…!

22. júl. 2003

Fjárfesti í gær í límbyssu svo að ég gæti nú farið…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:52

Fjárfesti í gær í límbyssu svo að ég gæti nú farið að föndra aðeins og auðvitað tókst snillingnum mér að brenna á mér putta..!

Er með ágætis blöðru á fingurgómnum á vísifingri… ekki gott get ég sagt ykkur.

En mig langar svooo til að sprengja helvítið… eða að pota í’ða með nál…

veit að það má ekki…

en mig langar samt…

Sprengja eða ekki sprengja… það er spurningin…

Sprengja eða ekki sprengja… það er kvölin

Sprengja eða ekki sprengja… ætli bólufetish’ið taki völdin…

Sprengja eða ekki sprengja… …

Sprengja eða ekki sprengja… ætli mar reyni ekki að vera skynsamur einu sinni eða svo

21. júl. 2003

hei..! Ég var að fá rauðvínsflösku og blóm..!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:12

hei..!

Ég var að fá rauðvínsflösku og blóm..!

Helgin með skrímslunum var bara ekkert agaleg..! …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:08

Helgin með skrímslunum var bara ekkert agaleg..!

Fór með liðið í sund og svo í tívolí þannig að þau yngstu voru orðin hálf svona rasssíð um kvöldið.

En það er alltaf gaman af því hvað kemur stundum upp úr þeim:

Hann Gunnar sjarmör er ellefu ára gamall og með kærustu númer fjögur eða eikkva og það vinsæll að það eru tvær búnar að biðja hann að byrja með sér síðan núverandi.

-Gunnar..?

–jamm…

-Er kærastan sæt?

–jamm

-Hefurðu kysst hana?

–jamm

-Á munninn?

–já audda mar….!!!

-En með tungunni?

–OOOooojjjjjjjj (hryllingsviprur og grettur dauðans) aldrei!!!!!!

hehehehe

Svo áttum ég og Katrín svona “af hverju er grasið grænt” umræður en þar áður kom þetta…

-Hvadda bláa?

–Þetta er Gleym mér ei

-Hvadda gula?

–Fífill

-Hvadda hvíta?

–Smári

-Hvadda fjólubláa?

–Nú veit ég bara ekki… því miður

-Þetta er blóm!!!! (þú átt að vita þetta. Þú ert fullorðin)

Það er stundum erfitt að standa sig í stykkinu.

Svo þessi hestaóða elska….

Í einum labbitúrnum okkar keyrir fram hjá okkur bíl með Palomino fellihýsi með þessarri svaða mynd af hrossi.

Vááá hvað hún var flott..! og svo hvarf bíllinn og fellihýsið… þá kom annað hljóð í mína…

Hún hélt nebbla að það væri hross í fellihýsinu og það mátti sko alls ekki því að þá myndi hesturinn kremjast og hún var ekki á því að trúa því að það væri tjald í vagninum en ekki eitt stykki hross snyrtilega samanbrotið. Og það var ekki hætt fyrr en það var búið að ganga Þorlákshöfn þvera og endilanga þar til að fellihýsið var fundið. Hún þurfti að athuga málið sjálf..! Fellihýsið fannst og eitt bank í hliðina var nóg til að sannfærast, enginn hestur bara ossa flott mynd… en akkurru mátti hún þá ekki bara eiga myndina… úfff…. þá gafst ég upp… og þrjóskukindin var dregin heim í kvöldmat.

18. júl. 2003

uss…. Er að fara að passa skrímslin hjá systur …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:13

uss….

Er að fara að passa skrímslin hjá systur minni um helgina. Búin að láta plata mig með þau í tívolí og sund.

úff… hvað ætli gráu hárin verði orðin mörg á mánudag…?

úff… ætli ég verði með hár..?

Fokkitt mar… set þau bara á dúndrandi sykurfyllerí þannig að þau geta sig hvergi hrært.

….

17. júl. 2003

Ég held að það sé alveg kominn tími á það að ég pl…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:12

Ég held að það sé alveg kominn tími á það að ég plati einhvern í útlöndum að versla fyrir mig koffíntöflur.

Í gær, heitasta dags sumarsins var ég komin upp miðja Ártúnsbrekku þegar ég fatta að það er sólskin úti. Já og seytján stiga hiti. Sumsé alltof langt að heiman til að snúa við og fara úr flíspeysunni, svörtu buxunum og lokuðu skónum. oj…

Svo í morgun var ætlunin að fara snemma á fætur, (oft er þörf en nú var nauðsyn) en nei… snooze’ið notað út í það óendanlega. Fattaði svo ekkert hvað kötturinn var að væla þegar ég var að fara. (ohhh en sætt…. strax farin að sakna mín) Gleymdi að gefa henni að borða.

Held að málið sé bara tvær töflur á náttborðinu og feitt vatnsglas… en bara eftir svona tvö snooze…

16. júl. 2003

Æi hvað það er fínt að fara á símann í smástund og…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 12:42

Æi hvað það er fínt að fara á símann í smástund og fá smá pásu..!

Fyndið hvernig hlutir sem aldrei klúðruðust áður, fara til andskotans þegar manneskjan sem kann allt og veit allt fer í frí.

Rosalegt að hugsa til þess að einn helvítis blaðsnepill skuli hafa getið sett alla mína tilveru á annann endann.

Eeen hitti út af essu einn svaðalega sexxxý tollara… újé..! eða kannski var etta bara búningurinn.

En annars þá fór ég í bústað um síðustu helgi með vinum mínum. Mikið drukkið, mikið borðað og legið allt of mikið í pottinum ..!

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com