Hafið þið tekið eftir hversu margir bora í nefið á sér á rauðu ljósi..? Það eru nefnilega alveg glettilega margir..!
Svo glöddu strákarnir í Eimskip mig rosa mikið. Þeir vippuðu sér úr að ofan þegar þeir sáu mig koma inn á Bílavöll. En tómatasyndromið fer skjótt af stað og það lá við að eyrum á mér hafi borið varanlegan skaða. Sem betur fer var ég ekki með eyrnalokka, annars hefðu hlotist af brunasár..! he he he …
En Óli lilli bró átti afmæli í gær. Til mikla lukku með það..!
Fórum við því vinirnir á Old West og svo í bíó.
Fórum sumsé á Phone Booth sem er ekki alveg nógu góð. Allavega saknaði ég þess mikið að það er ekki Snake í símanum mínum og ég sá að það voru fleiri í þeim hugleiðingum. Well better luck next time…. stefni á Bruce Almighty.