Ég fer heim í heiðardalinn á morgun ví ví ví ví..!
Fer í kvöld á aðalfund starfsmannafélagsins. Það er búið að ýja eikkva að því að ég taki að mér gjaldkerann, en þegar ég heyri svona samræður – já hann þessi ætlar kannske í formanninn, Ragnheiður! Hvað með þig og gjaldkerann..? Þá er ég bara eikkva humm humm humm og lumma mér í burtu. En ef enginn vill þá tek ég þetta að mér. Ætli Siggi helli mig fulla og ég segi já eða eikkva..?
En talandi um hann Sigga elsku… hann var að koma frá Spáni og þessa dúlla kom með tvö karton af salem lights fyrir mig. Þarf ekki að kaupa rettur fyrr en í haust..!
Ég var að passa Matta fyrir Majus meðan hún fór í kvöldskólann á mánudaginn. Ekkert mál eða þannig… hún svæfði hann og ég sá fram á rólegheit fyrir framann imbann. En nei..! Minn bara vaknaði korteri eftir að Majus gekk út um dyrnar. Og minns var bara reiður, og þá meina ég rooosalega reiður. Það voru bara öskur og svo var kvartað og nöldrað þess á milli sem barnið varð fimmfalt í framan af frekju. Og það var bara ekkert sem ég gat gert..! En það var ekki eins og ég hafi ekki reynt..! En svo gat ég huggað mig við það að Majus ætlaði að koma eftir hálftíma. En nei… það var bara full kennsla hjá minni..! Og Maja símalaus. Þá var bara að þreyja þorrann.
Mattilíus gafst svo loksins upp eftir heila tvo tíma af hjartaskerandi ógeðslega svekkjandi frekjuöskrum. Spáið í þoli..! Hann sá sumsé að þetta var ekkert að virka og fór bara að horfa á sjónvarpið. Eftir korter kom svo Majus og ég fór heim… búin á því andlega… og undrast enn hvernig mömmur fara að því að eiga ekki tveggja lítra dunk af valíum á góðum stað inní baðskáp.