Nöldur og ljótar hugsanir..!

29. apr. 2003

Ég verð að játa soldið ógeðslegt. Þegar ég snýti m…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:11

Ég verð að játa soldið ógeðslegt. Þegar ég snýti mér, skoða ég alltaf árangurinn. Ekki veit ég af hverju, en svona er þetta bara. En alltaf skal ég rýna í hlutina. Er gult, er grænt, er blóð, er eitthvað þurrt, hvað er magnið..? Nei vááá… Að sjá þetta..!

En ég reyni nú venjulega að fara leynt með þetta svona kringum ókunnuga.

Svo í gær kom í ljós ástæðan fyrir tannpínu djöfulsins. Ég var með stíflaða kinnholu. Það er vont, og enn verra þegar það losnar um helvítið. Það er nebblilega ekki slím sem kemur út, heldur eikkva annað miklu verra og ógeðslegra. En á meðan ég kúgaðist og snýtti mér í einu eins og mófó, þá hríslaðist um mig þvílíkur fögnuður og léttir, JESSSS..! ég þarf ekki til tannsa. Bara sýklalyf og snýtingar í viku. En árangurinn þarna er nú reyndar ekki skoðaður..!

28. apr. 2003

Dí mar..! Gleymi ég svo að taka út skjáta.is..! …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:53

Dí mar..!

Gleymi ég svo að taka út skjáta.is..!

Þetta var nú hálf sorglegt ef ég á að segja eins og er. Hún harna kynnirin var nú bara pathetic, Solla eða hvað sem hún heitir. En gaurinn í Djúpu Lauginni var fínn. En hún lagaðist strax og hún var ekki í beinni útsendingu.

Kjólarnir sem þær komu fram í voru nú bara sér á parti. Litu út eins og gardínur. Þessar sem maður rykkir í til að stytta. Þannig að sumar af þessum stúlkum sem eru bara ekki með neitt utan á sér litu út eins og rúllupylsur. Og til hvers..!

Þar sem ég var búin að fá dæmalaust ógeð á sýningunni löngu fyrirfram, skemmti ég mér mest við það að horfa á liðið sem sótti þetta ofan af svölunum. Alltaf gaman að skoða fólk..! Úrslitin komu mér samt á óvart. Ég hélt með Svetlönu sem endaði í þriðja sæti minnir mig. Hún var bara langflottust af þeim fannst mér. Svo var hún ekki grenjandi hérna með einhverja helv…. gelgjustæla eins og margar af þeim voru með vaðandi hérna. Og hin frá Lettlandi eða wattever, þessi sem er að vinna á Kaffi París, Irena held ég. Þær voru bara proffessional í þessu. Þær hlutu náð fyrir mínum augum. Plús mig langar í brjóstin hennar. Stór en greinilega ekki silikon… En það var annars fátt um fína drætti með brjóstamálin, það voru eiginlega ekki nein. Mest svona tepokar.

Fór og fékk mér sígó þegar Sigurjón Kjartansson var með tölu, ætli ég hafi misst af einhverju?

Náði að grenja út tíma í fyrramálið hjá tannlæknin…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:41

Náði að grenja út tíma í fyrramálið hjá tannlækninum. Ef það verður ekkert bloggað á morgun, þá er tannsi búinn að drepa mig. Megi ég hvíla í friði. Blóm og kransar afþakkaðir. En þeir sem vilja minnast mín er bent á að styrkja Köttdísi með kattamat og túnfisk eða kannske ýsuflaki ef gjafmildin er mikil.

Talandi um fóbíur. Ég þoli heldur ekki blöðrur. Ég…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:53

Talandi um fóbíur. Ég þoli heldur ekki blöðrur. Ég fæ bara gæsahúð og hroll dauðans þegar ég heyri ískrið í blöðru. Hljóðið fer verr í mig en þegar ég sé smákrakka japlandi á blautum ullarvettlingi. (Hrollur, vibbi og ógeð..!) Og ef ég þyrfti að taka á blöðru langar mig helst til að gera það með töngum. Svo ef ég kemst í þá aðstöðu að það á að blása upp þessi helvíti reyni ég að lauma mér í burtu hið snarasta. En um helgina var svona blöðrufólk hérna til að skemmta krökkunum, hevý flott hjá þeim. En ég var bara með tárin í augunum yfir þessu. muuu…

En ekki veit ég af hverju ég þoli ekki blöðrudruslur, meina… þar er ekki eins og þær valdi einhverjum skaða ef þær springa, eða stökkvi til og bíta mig í rassinn..!

Nú gæti ég sko grátið. Það er eikkva helvíti að t…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 11:42

Nú gæti ég sko grátið.

Það er eikkva helvíti að troða sér út fyrir ofan aftasta endajaxlinn, með tilheyrandi sársauka og volæði. Og þá þarf maður virkilega á tannsa að halda, en ég er með tannlæknafóbíu. Fékk tíma 6. maí og þangað til verð ég grátandi, með martraðir og í alveg hroðalegu stresskasti. Ég ætti kannske að fá að tala við einhvern geðlækni áður og fá svona hundrað valíum töflur þangað til. Ekki veitir af.

25. apr. 2003

Bamm ba ramm bamm bamm..! Sit nuna fyrir ofan ver…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:15

Bamm ba ramm bamm bamm..!

Sit nuna fyrir ofan verkstaedid med thradlausa, i tolvu med enga islenska stafi. Eg sumse fludi af svaedinu thar sem Vynill og Irafar voru ad aefa fyrir kvoldid. Snidugt eda hitt tho heldur. Eiginlega allt fyrirtaekid er fluid af stadnum og eg sit i supunni..! :( En madur verdur bara ad redda ser..! :)

muuu…

En svo er thad barasta ad kikja a gripasyninguna i kvold. Svo verd eg ad vinna alla helgina. Eg a ekkert lif.

23. apr. 2003

Er með boðsmiða á skjáta.is, ef einhverjum langar,…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:44

Er með boðsmiða á skjáta.is, ef einhverjum langar, látið mig vita. Búin að fá alveg nóg að þessum gelgjum, Eru með tónlistina í botni við að æfa einhver spor, og ég er farin að hljóma eins og gömul kelling “Viljiði LÆKKA!!!! Ég heyri EKKI í sjálfri mér, hvað þá í grey kúnnunum. Og þær eins og ekta gelgjur, jú þær lækka, í svona tíu sekúndur, og svo hækka þær aftur, grey ég.

Var að spjalla við einn sem er að vinna hjá sameinaða Tal og Íslandssíma, Og Vodafone og spurði hann út í þetta OG sem fer alveg svaðalega í pirrurnar á mér. Það byrjar ekkert nafn á og. En hann tjáði mér að þetta væri bara mesta bull íslandssögunnar. Alveg sammála.

Ojjj… hér kemur sko hrakfallasaga. ojjjj… fék…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:57

Ojjj… hér kemur sko hrakfallasaga.

ojjjj… fékk svona útbrot á kálfann sem klæjaði alveg hrikalega í. Ætlaði nú bara að harka þetta af mér og sjá til. En svo varð þetta bara mest ógisslegt. Og af því að ég er ég þá gat þetta ekki verið eikkva einfalt. Tjellingarnar hérna upp í vinnu allar búnar að pota í þetta og alls konar hugmyndir í gangi, allt frá fæðuútbrotum til þess að geimvera væri búin að taka sér bólfestu í kálfanum á mér. Íííjúúúúú..! (Var að horfa á Dreamcatcher um daginn. Ekki skemmtileg tilhugsun.) Hrollur, vibbi og ógeð..!

Svo þegar ég var næstum því farin að hugsa alvarlega um að naga löppina af við hné, þá drullaðist mín á læknavaktina. Þar beið ég á fullri biðstofu með gargandi/hrínandi smákrökkum í fokkings klukkutíma..! Ojjj… fólk var virkilega veikt og viðbjóðslegt þarna inni. Eldri maður þarna var svo illa haldinn að hann gubbaði í derhúfuna sína. Svo loksins þegar ég kemst inn til doksa eftir allann þennann taugatrekkjandi tíma, lítur kella á fótinn og þremur millisekúndum seinna þrumar hún úr sér á vélbyssuhraða. “Þú ert með Starrabit. Áttu kött? Þeir bera þetta inn.”

Dí mar… Alveg hefði ég getað sagt mér þetta sjálf. En nei… Ragnheiður var komin með það á heilann að hún væri komin með ofnæmi fyrir kartöflum eða eikkva. Þannig að ég keypti mér bara kláðakrem og hundskaðist heim fullt af peningum fátækari.

Mórall sögunnar er: Ekki mikla hlutina um of, þeir eru oftast einfaldari en maður heldur.

Og aldrei aftur á læknavaktina.

22. apr. 2003

-Perfect- You’re the perfect girlfriend. Whichmean…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:58

You're Perfect ^^
-Perfect- You’re the perfect girlfriend. Which
means you’re rare or that you cheated :P You’re
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend’s friends and be silly. You don’t
care about presents or about going to fancy
placed. Hell, just hang out. You’re just happy
being around your boyfriend.

What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla

hmmm….. en hvar er svo…?

Kvót mánaðarins. "Ooohhh hvað það er gegt erfitt a…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:11

Kvót mánaðarins. “Ooohhh hvað það er gegt erfitt að labba sona ógisslega saddur! Ég ætla barasta ekkert að borða á föstudaginn.” Heyrt eftir stóra máltíð sem samanstóð af gúrkum og vatni með sítrónu í. Jamms “gegt” þungt í maga..!

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com