Nöldur og ljótar hugsanir..!

30. des. 2002

Flúbbarnir eru með einhverja hevý flugeldasölu hér…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:16

Flúbbarnir eru með einhverja hevý flugeldasölu hérna. Það er svooo satt sem mar heyrði á sínum yngri árum í Tindum. Það eru bara skrítnar skrúfur í Flúbbunum. Gaukarnir eru svona merkjanöllar, hef ekki enn tékkað á reimunum á skónum en kæmi mér samt ekki á óvart að flúbbamerkið kæmi þar einhverstaðar fyrir. Sumir af þessum gaukum líta út fyrir að sofa einnig í core-tex gallanum og rífast ábyggilega um hver eigi flottustu plastskóna, hver sé með flottasta jöklapokann og minnstu siglínuna eða eikkva. Gellurnar… jaaaa… trukkalessur frá helvíti. Nuff said. (Það má alveg vera kvenlegur og líka vera í björgunarsveit. Alveg satt.)

Það var hálf dapurt að fara að vestan. Það var ekk…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:15

Það var hálf dapurt að fara að vestan. Það var ekki mikið sagt fyrr en Ísó var alveg horfin sjónum. snifff…

Einnig skrítið að fara að sofa í gær og enginn til að segja góða nótt við.

Bjóst við dísaster í íbúðinni minni eftir jólagestina. Nei nei… allt svo skínandi hreint og fínt. (bara æði spæði) Skógrindin var samt eitthvað svo brakandi ný og fersk. hmmm…. Þá hafði einn hundurinn bara fengið sér eitt stykki skógrind í jólamatinn. Ammi namm!

What kind of tattoo are you? brought to you by Qu…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:03

IAmTheCuteTattoo
What kind of tattoo are you?

brought to you by Quizilla



hmmmm…. líkist ekkert mínum…

Díssusss!!! Shitload af pósti sem safnast upp á ek…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 10:24

Díssusss!!! Shitload af pósti sem safnast upp á ekki fleiri dögum…

28. des. 2002

Your New Year’s Resolution Should Be: Marry Fo…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:35
marry for money

Your New Year’s Resolution Should Be: Marry For Money!

Most your relationships end in a flash

So you might as well be in it for cash



vúúúúúú….. mar ætti kannski að prufa!!!

Mystery
Which Ultimate Beautiful Woman are You?

brought to you by Quizilla



Jæja ætla að hætta þessu kjaftæði…

Fór á Eyrina í gær með Gósk minni… Eyrin er núna…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:26

Fór á Eyrina í gær með Gósk minni… Eyrin er núna orðin að Ikea höll andskotans. Jæji mér finnst það svona hálf súrt þar sem ég var alger Eyrarrotta á tímabili… En tímarnirn breytast og mennirnir með. Svo var Skúli Fúli að trúbba og svo kom að Ljónsveitinni. Hevý keyrsla í gangi hjá þeim og svona öskursöngur til að toppa alles. Held að míns sé orðin gömul! Var bara ekki að fíla þetta…. Kannski á öðrum tíma og á annarri stund. Hef nefnilega ekki hitt hana Gósk mína lengi og okkur langaði að spjalla. Ekki einhvern tákn með öskrum fíling og enda svo með því að senda hvorri annarri sms yfir borðið. pfff….

Fékk svo innanpíkubleikan drykk hjá Ævari. Allavega mæli ekki með Passoa Diablo oj.

Svo var Skúli Fúli í mjaðmabuxum… og hvað gerist þegar mar sest niður í mjaðmabuxum!!!??? Það sést í naríurnar og í hans tilfelli hevý myndarleg píparaskora.

Jömmí….

Kíktum svo aðeins á rúntinn… enduðum með því að rúnta mest út í Hnífsdal. Hörku ball þar með vestfirskum hljómsveitum. Ísó var tómari heldur en á Eurovisjón kvöldi!!!

Fínt að rúnta… mar nær að ræða málin þar… ná upp þriggja mánaða skammti af slúðri.

Svo fór ég að spá…

Hvað ætli krakkarnir þeirra sem eru í t.d. Slipknot geti hlustað á svo að þeir hreinlega ærist!! Eða Till Lindemann í Rammstein kominn á fimmtugsaldurinn að öskra á táninginn á heimilinu að lækka í þessu helvíti… En hvaða helvíti!!!

hmmm… Celine Dion… Mariah Carey… En þær verða audda löngu off þegar hér er komið að sögu… Meina þær eru alveg off nú þegar….

Æi bara að spá…

24. des. 2002

hmmmmm… Er enn að leita að jólastuðinu… finn…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 01:02

hmmmmm…

Er enn að leita að jólastuðinu… finnst ekki… leita betur… niii fannst ekki heldur!

Var bara ógisslega dugleg í dag eða hitt þó. Jú ég bónaði burruss. Ég segi „ég” en nei nei… Fór inn í áhaldahús og Guðni frændi spólaði sollis í kringum bílinn að ég komst ekki að. Fékk að þurrka af húddinu. Fínt mál. Það er viðbjóðslega leiðinlegt að bóna.

Skutlaði upp jólatrénu og skreytti. Lenti í basli með kisu, hún vildi fá að naga, ég vildi ekki leyfa henni, og svo gekk þetta heillengi hjá okkur þangað til að ég fann spreybrúsann góða. Þá loksins urðum við sáttar. Ég fékk að hafa jólatréð í friði og hún var í fílu út í horni. En við sættumst að lokum og hún fékk sér smá lúr í fanginu á mér. En sælan endist ekki lengi… Ma og Pa komu heim úr skötuveislu angandi eins og ja… mothafo…. En nóg um það… heldurðu að mín vakni ekki við stynkinn og fari að hnusa eins og crazy út í loftið. vúúúúú mí lækí…. Ætli kötturinn drepist ef henni er gefinn smá skata…. bara að pæla. Pabbi er þá allavega kominn með fína lausn á því að ná kisu til sín. Gefur henni bara smá skötu og þá mun pjattrófan dóttir hans ekki vilja sjá hana suður aftur stynkandi eins og gömul keita.

Svo fékk ég mömmu til að særa aðeins á mér kollinn. Jæja mín byrjar bara með skærin á milljón! Allt í lagi með það… svo fer ég að heyra svona „þykkir lokkar að klippast af hljóð” bara shit!.. Svo heldur mútter áfram að fara hamförum á kollinum á mér, ég bít bara í tunguna, svitna, titra og farin að upphugsa einhverja grátlega dramaqueens ræðu með maskarablöndnum tárum og alles… ó mæ gad!!! En þetta er bara fínt hjá henni. Takk mamma.

Jólaskapið er ekki enn fundið. Fundarlaunum heitið.

Hvar er svo eiginlega snjórinn?

21. des. 2002

Það er gott að vera kominn heim Vorum einhverja…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 22:05

Það er gott að vera kominn heim

Vorum einhverja sjö tíma á leiðinni. Strákarnir keyrðu og ég sat aftur í með fangið fullt af jólapökkum og ferðataska til fóta. Tókum því bara rólega og enginn var eitthvað að glannast á leiðinni. Jú nema kannski bara ég sjálf… fannst hálf ömó að keyra framhjá Ísó til að skutla Ingabirni út í Vík. En hvað gerir maður nú ekki fyrir vini sína. Allavega eins gott að ég hitti ekki löggimann á Óshlíðinni, annars hefði ég ábyggilega fengið feita sekt. Löggurnar hérna á Ísó eru líka hlægilega hættulegar. Svo eru pabbi og Óli litlibró að klampra saman skáp og nærveru minnar var ekki óskað þannig að ég skrapp bara í tölvuna.

Fór á Kaffibrennsluna með Perlunni í gær eiginlega strax eftir vinnu, fékk mér þetta margumtalaða pecan-pie. Bjóst við fullnægingu en fékk ekki… djöh! Var samt fín. Svo bjór og rauðvín og hellings af sígó og sátum alveg til hálf tólf eða eikkva. Er orðinn alger hænuhaus, varð bara nokkuð í annarri tánni af tveimur rauðvínsglösum. En Ó MÆ GOD!!! Eikkva fullorðið par/pakk á næsta borði sem vissi ekki hvort það var að koma eða fara, það var svo drukkið, svo þegar kallinn var að slumma upp í kellu / eða að sjúga úr endajöxlunum á henni varð manni vara hálf um og oj. Ógisslegt.

Allavega skemmti mér bara fínt!

Best að snúa sér að jólaöli og spjalli.

20. des. 2002

The Ultimate *Which Harry Potter Character are Yo…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:25

Ég og Perlan tékkuðum á nýja mégane II bílnum á h…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 15:41

Ég og Perlan tékkuðum á nýja mégane II bílnum á hádeginu í dag. Gegt sportý þótt að rumburinn á burruss eigi seint eftir að venjast. Það er bara aldrei að vita að ég fái mér hann á næsta ári þegar ég þarf að skila inn clio’inum mínum. Eða kannski að ég fái mér barasta einhverja druslu sem ég get svo fundið eitthvað dúllu nafn á.

Eins og Perlan á hann Pjakk sinn, Maja vinkona átti Grænu-frænkuna (ekki hættuna) og Fífi á undan henni og pabbi á Fjósa-rauð.

Það er bara ekki eins mikill karakter í einhverju beint úr kassanum, á sko ekki skilið að fá einhver gælunöfn.

Ég og Maja tókum um daginn nostalgíukast um Frænkuna. Hún var æði! Alger dama fram í fingurgóma, mar mátti ekki bölva því þá fór hún að hiksta. Svo varð hún aldrei bensínlaus með einhverjum fyrirvara, mar kannski að keyra á 80 og þá var hún bara dauð. Þrjósk fram í rauðan dauðann! Bakkgírinn fannst ekki fyrr en maður lofaði að hreinsa aðeins af ruslinu út og svo fattaði maður ekki fimmta gírinn fyrr en eftir mikið maus og þurfti þá venjulegast að skipta aftur niður í þriðja. Svo setti maður venjulega í hlutlausan ef maður var á leiðinni niður Breiðadalsbrekkuna, annars kvartaði Frænkan eins og hás óperusöngkona. Ég sakna þín Frænka!

Kláraði öll jólakortin í gær, skrifaði, horfði á sjónvarpið og talaði í símann og allt í einu… rosa multi tasking í gangi! Fannst ógeðslega góð hugmynd hjá Miröndu í Sex and the City að legga sig bara undir skrifborðinu. Maður testar þetta kannski við tækifæri.

Svo hefur einhver farið allgressilega á beit í mackintosh dollunni hérna. Þannig að múturin mín fóru fyrir lítið. En spáið í því að hreinlega að drepast úr nammiáti eins og gaukurinn út í Tyrklandi sem át tvö kíló af sírópsköku, lá svo í dái í þrár vikur og drapst svo að lokum. Oj maður verður þá að að passa sig svo að maður lifi það af að sjá nýja árið.

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com