Nöldur og ljótar hugsanir..!

29. nóv. 2002

Ég held að ég sé illa haldin af ROAD RAGE. Allaveg…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:20

Ég held að ég sé illa haldin af ROAD RAGE. Allavega get ég pirrað mig endalaust þegar ég er að keyra í vinnuna á morgnana yfir einhverjum bévítans slöttólfum sem keyra á 40 Suðurlandsbrautinni, ekki séns að komast fram hjá þeim þannig að oft lendir maður á rauðu þegar mar hefði nú getað sleppt því! Og oft og iðulega lendi ég í því að einhver fífl taki tvær umferðarbrautir á Vesturlandsveginum. Svona fólk á barasta ekki að hafa ökuskírteini. Það getur tekið strætó þar sem það getur haldið áfram sínu sight-seeing í friði og hættir þar með að stofna lífi, limum og geðheilsu minni í hættu.

Ég hef nöldrað!

28. nóv. 2002

Ég er í svo vondu skapi! Ég hef náttla ekki enn…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:05

Ég er í svo vondu skapi!

Ég hef náttla ekki enn fengið greitt frá helvítis Símver, þannig að ég fékk að skreppa í dag úr vinnunni í VR. Talaði þar við mann sem heitir Þorgrímur að ég held. Hann gat nú svo sem lítið fyrir mig gert, því ég hef enga launaseðla. Ég hef nú reynt alveg slatta til að ná þeim, en ekkert hefur gengið.

Hringdi í Héraðsdóm Reykjavíkur til að athuga hvort að Símver hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta, en það virðist ekki vera. Allavega ekki ennþá , en það hlýtur að koma að því.

Hringdi svo í Tollstjórann til að athuga með staðgreiðsluna. Talaði við alveg súperfína konu þar sem heitir Ágústa. Hún var algert yndi, sagði mér, sem kom mér nú svo sem ekkert á óvart, að það hafi enginn staðgreiðsla verið greidd á árinu frá Símver og í fyrra (2001) hafi eingöngu svokallaður 13. mánuður verið greiddur. Sumsé karl helvítis gröfturinn hann Hákon Hákonarson hefur greitt alla summuna þegar hann hefur fengið á sig kæru.

Kom mér nú á óvart liðlegheitin hjá Tollstjóranum, því mar hefur heyrt þvílíkar tröllasögur af uppþornuðum kellingarbikkjum með attítjúd problem sem væru grónar við sætin.

Hringdi svo í Ríkisskattstjórann til að athuga með rétt minn út af skattinum, vegna þess að mig vantar auðvitað launaseðlana. Talaði við kellingarbreddu þar sem heitir Hulda. Sú var með attítjúd problem andskotans! En hún sagði að ég væri basicly í kúk og skít vegna þess að ég hef ekki neina launaseðla. Spurði þá hvort að það væri ekki hægt að kalla eftir staðgreiðslunni frá Símver, þeir höfðu jú verið með fólk á launum hjá sér. Meina ég er bara að hugsa um minn rass og ekkert annað. Nenni sko ekki að standa í einhverju helvítis veseni í ágúst á næsta ári vegna skattsins. En nei, hún vill ekkert gera nema ég hafi launaseðla!

Halló! Ég er litla fólkið! Má ekki bögga stóra fólkið líka?

Jæja… hafði loksins upp á símanúmeri hjá Hákoni Hákonarsyni (825-0050) sem er nú að vinna hjá vátryggingarmiðlun sem heitir Tryggingar og ráðgjöf s:568-6300, Ok. ég kynni mig og spyr hvort að hann geti nú ekki reddað mér launaseðlum sem ekki hafi skilað sér. Hann bendir mér á Dísu, en hún er í nákvæmlega sama pakkanum og ég. Dísa er ekki með neina launaseðla segi ég, og það er heldur ekki búið að greiða mér út laun! Og hvað gerir þessi helvítis fótasveppur! Hann skellir á mig! Reyni að hringja aftur, en hann skellir bara á. Þetta er greinilega virkilega ósvífið ógeð.

Ég er satt að segja búin að gefa upp á bátinn að ég fái nokkurn tímann þennan pening. En ég vil að karl-druslu-pungs-gyllinæðin fái helvítis vesen og leiðindi yfir sig, og þurfi að standa í lögfræðingarugli, leiðindum og böggi næstu fimm árin. Og næstu fimm ár þar á eftir fari eingöngu í það að borga lögfræðikostnaðinn hans! Svo vil ég að restin af hans lífi fari í það að borga sektir, vexti, vaxtavexti, dráttarvexti og annann viðbjóð. Svona karlar eiga ekki skilið að fara inn á t.d. Kvíarbryggju. Liggja bara í ljósabekkjum og skoða ósóma á netinu. Það á að senda þá í garnaþrif á Kópaskeri, og fá eingöngu vatn og brauð fyrir!

En jæja, nóg er sagt. Vissi ekki fyrr en í dag að orðið bögg er eldgamalt skandínavískt orð yfir endaþarmssamfarir karlmanna. Jamm… orðið tók á sig nýja merkingu fyrir mér. Hef nú aldrei verið neitt sérstaklega mikið fyrir þetta orð, mér hefur fundist ónáða alveg verið fullnægjandi hingað til. En nú ætla ég að vona að sem flestir taki sig til og böggi Hákon, bæði í nýju og gömlu merkingunni.

27. nóv. 2002

Ég gerðist góður borgari í dag og gaf blóð. Voða f…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:06

Ég gerðist góður borgari í dag og gaf blóð. Voða fínt, parkeruðu bara bílnum hérna fyrir framan. Er samt eitthvað hálf tuskuleg á eftir, kem einhvernvegin engu í verk og langar að leggja mig í svona klukkutíma eða svo. Ég er samt að spá. Er þetta orsök eða afsökun. Ég meina mig langar í lúr núna, og mig langar yfirleitt alltaf í lúr. Er ég kannski eins og margir alkar sem ég hef heyrt um, fá eina deyfisprautu hjá tannsa og eru svo dottnir í það. Finn ég einhverja afsökun til að fá mér lúr. Bara einhverja lame ass. Ætli það séu til svefnlistar/sleepoholics. Hvernig ætli meðferð fari fram í þannig tilfellum. Ég meina á maður þá að henda öllu kúridótinu? Skipta út dúnsænginni fyrir eitthvert lak?Fara að sofa á natóbörum og skella rúminu inn í skáp?

Held að ég fari núna og nái mér í kaffi. Get samt sætt mig við að ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn þá kemur sko stóri lúridagurinn! Legg til að laugardagar verði lagðir niður og lúridagar teknir upp í staðinn. Ætla að klára Séð og Heyrt og athuga svo á morgun hvað ég var að steypa hérna.

26. nóv. 2002

Nú get ég ekki beðið eftir að einhverjir skutli up…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:44

Nú get ég ekki beðið eftir að einhverjir skutli upp jólaskrautinu hjá sér í hverfinu mínu. Er ekki alveg tilbúin til að vera fyrst í þessu. Er bara alls ekki nógu mikill frumherji eða eikkva.

Er að vinna í afstemmingum í vinnunni. Það mætti halda að það væri nú eitthvað hundleiðinlegt, en nei nei. Það er bara drullugaman að leita að núllum!

Svo eru allir búnir að svíkja mig um pásu. Fór á klósettið með þráðlausa. Sem betur fer hringdi ekki neinn. Efast samt um að ég hefði svarað í miðri bunu!..

Fór á árshátið með vinnunni á Hótel Örk á laugarda…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 14:02

Fór á árshátið með vinnunni á Hótel Örk á laugardaginn. Ekkert smá gaman! En hótelið er bara sjoppulegt. Skítugt, illa lyktandi og greinilega enginn metnaður þar í gangi. Við vorum fjórar í tveggja manna herbergi og fengum bara einn aukabedda! Svo þegar við báðum um fjórðu sængina þurftum við að ná í hana sjálfar!! Og ekki einu sinni búið að setja á hana sængurver. Svo þegar Perlan ætlaði að setja utan um hana höfðum við bara fengið tvö lök!!! Og maturinn var ömó.

Skemmtiatriðin voru fín og fyndin. Og sumir komu nú bara helvíti mikið á óvart. En greyið sem vann svona sælulykill á hótelið, en samt… hann getur kannski gefið einhverjum hann í hefndarskyni?!

En skítt með hótelið, við héldum bara partý upp á herbergi í staðinn. Gítarar og einn gaur með skeiðar og læti, bara gaman! Hljómsveitin var nú heldur ekkert að brillera. Hún heitir Pass. Held bara að flestir hafi nú sagt pass á hana og skemmt sér annarstaðar.

Máluðum meira segja einn gaurinn af verkstæðinu, ekki neinn dragfílingur heldur meira svona Rocky Horror. Tókum myndir af herlegheitunum en hann á myndavélina þannig að hann eyddi þeim út. Svínið!

Hentum síðasta út um fimmleytið og fórum að lúlla allar í kös í bjórstybbu og öskubakkalykt. Jööömmí… Tókum svo okkar hafurtask um morguninn og fórum. Við vorum bara að gera þeim sem sefur þarna næst stóran greiða. Það verður allavega tekið til!

Já ég var næstum því búin að gleyma!!! Það var skitið á bílinn minn! Það gerist bara á Hótel Örk!

22. nóv. 2002

Það er einhvern veginn allt of mikið í gangi í dag…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:04

Það er einhvern veginn allt of mikið í gangi í dag + ég er svo syfjuð. GEISP Ég held meira að segja að ég hafi dottað aðeins í vinnunni. Held að það hafi samt reddast. Var bara með lokuð augun, en ekki með hausinn hangandi niður á bringu eða slefandi á lyklaborðið. Jú jú þetta reddaðist, allavega er enginn búinn að koma með einhver grínskot.

21. nóv. 2002

Ég varð svooooo fegin í dag! Það var slökkt á helv…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:46

Ég varð svooooo fegin í dag! Það var slökkt á helvítis jólaógeðslegsykurleðjubleikuslímu útvarpsstöðinni Létt 96,7 og settur geisladiskur í græjurnar í staðinn. Meira að segja Moby. Life is gooood!

20. nóv. 2002

Archive Error MY ASS!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:24

Archive Error MY ASS!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þetta er nú meira ljóta dótið mar!!!!! Kemur baras…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 17:22

Þetta er nú meira ljóta dótið mar!!!!! Kemur barasta átta sinnum inn sama færslan!!! Er búin að arga og garga og það liggur við að ég sé hætt að spá í símanum. Sama hvað ég geri þá get ég ekki leiðrétt þetta. DRASL!

urrrrrrrrrrrrrrr…………………..

19. nóv. 2002

Sofnaði í sófanum í gær og missti af ALIAS, er enn…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 18:02

Sofnaði í sófanum í gær og missti af ALIAS, er enn með bömmer yfir því… ég meina Rúv endursýnir nánast aaallt nema þessa þætti, svo það er ekki einu sinni hægt að redda sér þannig. Þetta er samt fínt á mig. Held ég þurfi að fara í sjónvarpsafeitrun. Og samt er ég ekki með Skjá Einn! Mér finnst það nú eiginlega ekki við hæfi að búa ca. 30 skrefum frá þeim og ná ekki útsendingunni, en svona er lífið og augun mín verða ekki kassótt fyrir vikið.

Talandi um augu! Nú sé ég bara ekki rassgat nema að vera með gleraugun á nefinu!!! Ég bíð bara eftir því að þurfa að skella þeim upp líka til að tala í símann. Sé þetta alveg fyrir mér… Það hringir einhver um miðja nótt… og ég get ekki talað orð af viti fyrr en gleraugun eru komin á sinn stað, og ég kveiki ekki einu sinni ljósið!

-Hhhhaaalló…… ZZZZzzzzzZZZ

– Hva var ég að vekja þig?

-Bí bí bíddu aðeins, þarf að finna gleraugun.

–Hvað ertu að meina! Þarftu gleraugun til að tala við mig!!!

-Haaaa hvað varstu að segja??

–Æi farðu aftur að sofa!

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com