Nöldur og ljótar hugsanir..!

27. des. 2008

Litla vanrækta krílið mitt…

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 16:20

Ég var hreinlega næstum því búin að gleyma því að ég ætti lítið illilega vanrækt blogghorn í útgeimum internetsins.

En já, annáll ~ hvernig væri það..!

Janúar – ég eignaðist þurrkara. Hvernig ég fór að áður er ofar mínum skilningi. Fékk nýjan bíl nr. 8 held ég… og svo skilur enginn af hverju er kreppa á skerinu. Ég átti afmæli og ló end behóld..! Ég hélt upp á það.

Febrúar – hmmm…. áfall yfir visa reikningum býst ég við. Man því miður ekkert eftir febrúar á því herrans ári 2008. Ábyggilega reynt nokkrum sinnum samt við skítabaðkarið á Skjólbrautinni sællar minningar.

Mars – Páskar – Aldrei fór ég suður hátíðin = fyllt lambalæri á la mamma, stuð, stemmari og þynnka.

Apríl – Árshátíð í vinnunni – ég lasin en tók hana með trompi á bandarískum verkjatöflum. Ég mætti í kjól. Galakjól.

Maí – Ég komst loksins í Þórsmörk. Án þess að blotna. Það er til videó. Á youtube. Jarðskjálftar og uppsagnir.

Júní – Einn sólríkasti mánuður sem Ísland hefur upplifað. Ég skilaði rúmlega 80+ yfirvinnutímum þann mánuðinn. Þannig að lítið fór fyrir freknusöfnun. Eignaðist nýjan nágranna, kynni mín við hann mun hafa áhrif á mig fram á grafarbakkann.
Ég fór á ættarmót fyrir norðan í lok mánaðarins. Það snjóaði á Akureyris. Engin sól þar, bara í hjartanu. Styrkti grun minn um að Akureyringar eru veðurljúgandi bullarar um allan helming.

Júlí – Fór í Húnaver í lúxus útilegu. Skrapp til Vestmannaeyja með ma, pa og lilla bró. Hitti Matta minn sem ég er búin að tala við í síma í að verða sex ár. Fékk óvænt til leigu íbúð í Hafnarfirði á besta stað sem þýddi kassar og flutningar á mettíma á heitasta degi ársins. Ég eignaðist uppþvottavél.

Ágúst – ég fór í sumarfrí í sæluna. Keypti flugmiða til New York.

September – Mætti til vinnu og búin að fá skrifstofu undir rassgatið á mér. Nýtt fólk. Meiri uppsagnir, vanlíðan og skítur.

Október – F5 takkinn á tölvunni minni bíður þessa mánaðar aldrei bætur. Hamaðist eins og asni á þessum takka til að sjá hvaða næsta katastrófa var að hellast yfir. Sá að ég bý í bananalýðveldi. Enn meiri uppsagnir, vanlíðan og skítur.

Nóvember – F5 takkinn fékk pásu. Hætt að kíkja á gengisskráningar, grenjaði pínu yfir reikningnum frá Lýsingu. Yndislegur klovn/klám skilmysingur á hárgreiðslustofunni. Hætti að horfa á fréttirnar.

Desember – New York! Æðis æðis æðis! Mig langaði bara ekkert aftur heim. Jólafrí með tilbehör. Sokkaheimtur voru góðar upp úr jólapökkunum þetta árið. Keypti flugmiða til London í janúar. Kreppa hvað. Enn ekki búin að taka fréttatímann í sátt.

22. júl. 2008

Jahá –

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 20:18

Í dag fékk ég símtal. Frá Tryggingastofnun Ríkisins.
Vegna vinnunnar, get alveg rætt þetta án þess að brjóta nokkurn trúnað en já sumsé, pappír til þessar ágætu ríkisstofnunar var ekki eftir höfði þessarar sem hringdi.
Ég var nýreykt, nýpissuð, með þetta fína kaffi og já bara í gúddí fíling.

En eftir þetta símtal var ég ansi há á pirr skalanum. Ég held meira að segja að ég hafi endað símtalið með – þú sendir bara pappírin til mín vinan.
Með tón.

En svo fór ég að hugsa…. þeir sem eru að nota þjónustu þessar ríkisstofnunar eru nú yfirleitt ekki að gera það að gamni sínu. Hlýtur að vera agalegt að lenda þá á svona tussu.
Geðið var í góðu lagi fyrir hringingu, það var ekki í lagi eftir símtalið.

Svo er maður búin að heyra í gegnum tíðina alls konar fáránlegar sögur af samskiptum fólks við þessa stofnun. Stundum hef ég hugsað hvort að sumt af þessum sögum séu nú ekki pínu ýkjur, smá svona verið að trölla þetta upp.
En ekki eftir þetta.

Vinan

03. júl. 2008

Sjáiði….

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 21:51

hvað ég fæ að launum þegar ég gleymi kaktusnum mínum í allt of allt of langan tíma

08. jún. 2008

júre bjútífúl its trú

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:40

Ég var að fá nýjan nágranna hérna fyrir ofan mig.
Nafnið á bjöllunni er soldið latínó og hann er sjálfur suðrænn og seiðandi.
Soldið svona fótboltadúddalegur með múskla og gel í hárinu og notar einum of skratti mikið af ilmvatni.
Þegar ég sá kauða fyrst á föstudaginn heyrðist bara “hobba hobba” í hausnum á mér. Hrifiningin minnkaði aðeins við að finna lyktina af kauða. Er eiginlega stolt að hafa haldið meðvitund. Ekki gott ef að það hefði steinliðið undirritaða vegna ilmvatnstynku, hann gæti haldið að ég hefði fallið í yfirlið sökum hrifningar.
En ef ilmvatnið hefði ekki farið með það sem eftir var þá er það búið eftir daginn í dag.
Ég held að greyið sé í ástarsorg því að lagið You’re Beautiful með James Blunt er búið að spilast ógurlega oft núna í dag, og svo syngur hann með og snöktir hástöfum.

Hér er linkur á ógurlega lagið

Geðheilsu minnar vegna má hann helst ekki vera að gera mikið meira af þessu, því að hljóðin frá honum hafa svipuð áfhrif eins og þegar ungbarn fer að gráta, nema hvað mig langar ekki að hugga, heldur að skreppa til hennar mömmu minnar og ná í haglarann. Fjárbyssan hans pabba myndi ekki ná í gegnum gelið.

úfff…

17. maí. 2008

Þórsmörk here I come..!

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 00:06

Ræs snemma í fyrramálið, ég er að fara í Þórsmörk á morgun með fullt af fólki.
Taka 2 í að komast þangað, ég er búin að biðja nokkra um að biðja um gott veður og enga rigningu og lítið í ánum því að síðast þegar ég reyndi að fara þangað, var ég næstum því bara nett dáin.

En þið þjófar sem hugsið ykkur nú gott til glóðarinnar þar sem ég er að fara úr bænum, hann lilli bró verður heima og ætlar eftir því sem mér heyrist að nota tækifærið og spássera hér um allt á sprellanum. >.<

Góðar stundir.

11. maí. 2008

Uppskrift dagsins.

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 19:18

Franskar að hætti lilla bró.

Kveikja á bakaraofninum.
Skoða b2.is
Muna eftir ofninum.
Setja franskar í ofn.
Brenna sig smá.
Ofn lokaður.
Bíða þar til reykskynjarinn fer í gang.
Taka batterí úr reykskynjara.
Taka franskar út og tína verstu frá.
Borið fram með kokteilsósu.

Ef fólk vill vera grand á því, lofta út.

05. maí. 2008

Hí á …

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 19:39

… Toyota Prius.

Jamm, ég get sko alveg híað á Toyota Prius sem rennur ó svo hljótt um götur landsins.
Það er nefnilega að koma í ljós að Prius’inn hefur bara ekkert með að monta sig með það að vera vistvænastur í geimi.
Neibb.
Feitasti Range Rover í bensínsvelgsútgáfu ku vera umhverfisvænni þegar til kemur heldur en tvinnmonthaninn. Það þarf víst að farga þessum hybrid bílum eins og öðrum. Svo er víst nastý framleiðslan á hybrid mótorum.

Dísel bimmi eyddi líka minni en þessi bíll í sparaksturskeppni sem farin var London – Genúa.
Bílstjórinn í Bimmanum steig meira að segja út ferskur og fínn þar sem hann meira að segja brúkaði AC’ið og útvarpið á leiðinni, en bílstjóri tréfaðmarans sté út argur og sveittur og illa lyktandi.

Ég er að setja þessi orð niður í tilefni þess að eyðslumælirinn sýnir alveg ó svo fallega tölu, eða 6,4 pr 100 km. Þess má geta að sparakstur eða jarðarfararakstur er ekki stundaður hér á bæ.
Bílkvikindið afrekaði það í Ástralíu af öllum stöðum að vera með 3,2 L pr. 100 km.
Toyota Prius var með 5,2

Nanananabúbú!

Djís samt hvað ég vona að greys ökumaðurinn í Ástralíu hafi fengið að nota AC’ið.

03. apr. 2008

Ó, hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað?

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 19:56

Titillinn er ósköp dramatískur og hátíðlegur og inniheldur óskaplega mikinn söknuð og armæðu.
Lífið er ekkert hræðilegt. Ég sit bara heima með smá pest og helvítið hann lilli bró tekur ekki eftir öllum hintunum að það sé súkkulaðilaust.

12. mar. 2008

Íslandspóstur

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 00:12

er skítabúlla!

Um daginn pantaði ég mér nokkrar flíkur af netinu. Pantaði þær á föstudagskvöldi og fékk meil að þær færu farnar frá BNA um klukkustund síðar. Svo var ég mjög kát þegar ég prufaði að tracka pakkann minn inn á USPS daginn eftir og sá þar að hann var bara þegar á leiðinni á skerið. Á þriðjudegi sé ég inn á heimasíðu Íslandspósts að pakkinn er kominn þannig að ég sendi tölvupóst á tolladeildina með reikningnum.
Á fimmtudegi er komin melding að pakkinn sé “á ákvörðunarpósthúsi”. Fimmtudag og föstudag er ég komin heim extra snemma úr vinnunni. Alveg klukkann fimm þannig að ég fái nú alveg örugglega pakkannn.
Á laugardaginn var ég í fýlu. Enginn pakki.

Er bara sár og svekkt, kíki af rælni inn á heimasíðu póstsins og rek þar augun í þessa frétt http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-29/26_read-327/
s.s. eru hættir að bera út það sem kemst ekki inn um bréfalúgurnar.

230 milljóna hagnaður er auðvitað bara til háborinnar skammar og auðvitað er besta leiðin til að hagræða er að minnka þjónustuna.
Svo er eins gott að vera ekkert að auglýsa verri þjónustu nema með smá klausu.
http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-29/26_read-442/

Megi ykkur vera illt í EBITDA’unni.

Á mánudeginum fer ég á mitt pósthús og spyr eftir pakkanum. Er með sendinganúmerið meira segja með mér á miða.
Barnið sem afgreiddi þarna eyddi tops tuttugu sekúndum á bakvið og segir mér afskaplega sorgmæddur að enginn sé pakkinn.
Ég bruna heim og fer á þetta fína vefspjall hjá póstinum til að láta leita að pakkanum mínum.
Daginn eftir fæ ég meil frá þjónustudeildinni sem segir mér að pakkinn minn sé á pósthúsinu sem og afsökunarbeiðni að pakkinn skildi ekki hafa fundist þarna deginum áður.
Ég mæti á pósthúsið daginn eftir, rek augun í það að konan sem verið var að afgreiða er að undirrita tollskýrsluna fyrir pakkanum sínum. Svo spyr konan hvar pakkinn sinn sé. Segir ekki annað barn sem var að vinna þarna að hann sé í grindum á bak við og það sé allt of mikið vesen að ná í hann og hann nenni því bara ekki.
Konan labbaði út án þess að segja múkk, hún gat eiginlega ekki talað samt, var með kjálkann fyrir neðan hné. Mér var eiginlega skapi næst að ná í konuna og segja henni að svona bara líður maður ekki! En ég var bara of hissa, svo er ég ekkert svakalega mikið fyrir að tala við ókunnuga.

Jæja ég er næst.
Barnið tekur á móti mér með ólundarsvip. Ég segi að ég eigi pakka þarna og segi honum sendingarnúmerið, hann fer á bak við og er í mesta lagi fimmtán sekúndur þarna á bak við, herra ólundarsvipur kemur aftur og segir mér að pakkinn sé ekki þarna, ég verði bara að hafa samband við þjónustuverið á morgun.
Fyrirhyggjusama ég var búin að prenta út meilið frá þjónustuverinu sem ég rétti herra fúll á móti og segi honum að pakkinn sé nú bara þarna samkvæmt þjónustuverinu. Herra Sæll fer þá á bakvið og eyðir fimm sekúndum betur heldur en síðast og kemur til baka með pakkann minn. Herra sólskinsbros liggur við grýtir í mig pakkanum. Ég þurfti að spyrja Herra þjónustulund hvort að við ættum ekki að klára tollinn.
Af hverju er ég svona heiðarleg…. það er spurning.

Greinilega orðin gömul mýta að bandaríska póstþjónustan sé sú glataðasta í heimi.

Stutt útgáfa
Íslandspóstur sökkkar
USPS rúlar.

14. feb. 2008

Með böggum hildar.

Flokkað undir: Nöldur — by Ragnheiður @ 23:05

Ég fór aðeins að spá í þessu orðtiltæki þegar ég las frétt á Vísipúnkturis um þegar einhver kappinn var að spóla á plani og klessti á vegg, svo þegar þegar haft var samband við kompaníið var konan á skiptiborðinu með böggum hildar og vildi ekki segja múkk.
Nokkrum dögum síðar var Gillzenegger með böggum hildar af því að annar af nautunum í Euró var annað hvort ekki nógu appelsínugulur eða ekki nógu úttútinn.

Þarna var ég orðin svolítið rugluð, svo þegar einhver jakkafatalakkinn var með böggum hildar út af einhverju smáræði var ég endanlega hætt að skilja þetta orðtiltæki.
Þá lagðist ég í gúgl, sem sagði mér ekki neitt. Ræddi við íslenskufasistann í vinnunni sem játaði með skömm að vita ekki hvað þetta þýddi.

Hringdi því í hann karl faðir minn.

Pabbi gat alveg með ágætum útskýrt þetta fyrir mér.

Baggar = byrðar, hildar = hildarleikur, stríð
berða byrðar eftir tap, að vera miður sín.

Svo heyrðist í kalli.
Já sko dóttir góð! (sagt með tóninum sem hann notar þegar hann einhvern veginn hálfliggur í eldhússtólnum og nuddar saman tánum)
það þýðir bara á góðri íslensku að vera á bömmer.

BÖMMER!

Skömmin ég var að keyra mínus handfrjáls, ég var næstum því búin að keyra á staur, pabbi minn segir ekki bömmer.

Pabbi snillingur.

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com